Fotbolti.net
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Lengjudeild karla
AutoCenter-völlurinn
ÍR
ÍR
1 - 2
HK
HK
0 - 138' Dagur Orri Garðarsson0 - 276' Dagur Orri GarðarssonGuðjón Máni Magnússon 89'1 - 2
Dómari: Jens Elvar Sævarsson

SKÝRSLAN: Svona á fótboltaleikur að vera

Hvað réði úrslitum?

Það var mikil harka í leiknum. Þetta var bara alvöru fótboltaleikur, blóm og kransar afþakkaðir. Auðvitað spilað á grasi, mikil harka og engar krúsídúllur. Þó svo að ÍR-ingar héldu betur í boltann, var ekkert voðalega mikið um færi hjá þeim. HK-ingar ógnuðu þá með skyndisóknum og komu bæði mörk HK úr slíkum sóknum. Mikill andi í HK-ingum sem fögnuðu hverri tæklingu og hreinsun af mikilli innlifun.

Bestu leikmenn

1. Dagur Orri Garðarsson

Dagur ótrúlegur, þarf bara að sjá markið og hann skorar. Greinilega nautsterkur líkamlega, líkt og sást í fyrra markinu.

2. Ólafur Örn Ásgeirsson

Veit ekki hversu margar fyrirgjafir Ólafur greip í marki HK, frábær í dag.

Atvikið

Guðjón Máni Magnússon fékk afbragðsfæri undir lok leiks er hann var óvaldaður í teig HK eftir hornspyrnu en hann hitti ekki rammann. Fór um HK-inga þarna, enda síðasta færi leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

ÍR-ingar tapa sínum fyrsta leik og það á heimavelli. Þeir eru þó ennþá í toppsæti deildarinnar, en HK-ingar skammt undan einu stigi frá í öðru sæti.

Vondur dagur

ÍR-ingarnir höfðu einungis fengið 6 mörk á sig fyrir þennan leik. Sigurður Karl Gunnarsson og Marc Mcausland hafsentar liðsins réðu illa við Dag Orra sem refsaði með að setja tvö mörk.

Dómarinn - 6

Þetta var eflaust ótrúlega erfiður leikur til að dæma. Nokkrir alveg fáránlegir dómar sem skiptu þó litlu máli í stóra samhenginu, en pirruðu ÍR-inga. Þá voru engir stórir dómar sem klikkaði.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.