Fotbolti.net
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Lengjudeild karla
AVIS völlurinn
Skýjað en sólin skín í gegn. Rennislétt og blautt gervigras
Þróttur R.
Þróttur R.
3 - 2
Keflavík
Keflavík
Aron Snær Ingason 32'1 - 01 - 135' Marin MudrazijaEiríkur Þorsteinsson Blöndal 58'2 - 1Kári Kristjánsson 86'3 - 13 - 288' Eiður Orri Ragnarsson
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: Fullt af atvikum í 50-50 leik sem Þróttarar vinna

Hvað réði úrslitum?

Þetta var mjög jafn leikur og ekki mikið um dauðafæri. Þróttarar nýttu sín færi betur og uppskáru sigurinn. Keflavík náði að gera leikinn spennandi í lokinn með því að minnka munninn strax eftir að Þróttarar komust í 3-1, en það reyndist ekki nóg.

Bestu leikmenn

1. Aron Snær Ingason (Þróttur)

Aron skoraði fyrsta markið, og átti líka mjög stóran þátt í öðru markinu. Hann er alltaf gríðarlega mikilvægur sóknarleik Þróttara.

2. Kári Kristjánsson (Þróttur)

Kári kom inn á í hálfleik ný búinn að jafna sig af einkirningssótt. Hrottaleg veikindi, sem undirritaður getur vottað um að er ekkert djók að ganga í gegnum. Hann leggur upp mark númer tvö og skorar svo það sem reyndist vera sigur markið.

Atvikið

Rauða spjaldið á Sindra Kristinn í uppbótartíma. Alvöru skógarhlaup hjá honum, þar sem hann bæði fer í boltann með höndinni og hann stöðvar hlaup Jakobs. Eins og Jakob sagði í viðtali eftir leik, í raun bara tvö rauð í einu.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttarar fara upp í fjórða sætið og eru aðeins fjórum stigum á eftir toppsætinu. Keflavík dregst aðeins aftur úr toppbaráttunni, eru þremur stigum á eftir Þrótturum, og sjö stigum á eftir toppsætinu.

Vondur dagur

Sindri Kristinn Ólafsson, fær til að byrja með á sig þrjú mörk þar sem hann átti líkast til að gera betur í fyrsta markinu. Svo lendir hann í tveimur atvikum þar sem ég tel hann heppinn að sleppa með rauða spjaldið í fyrsta skiptið en fær svo rautt í seinna skiptið.

Dómarinn - 6

Mig langaði að gefa Gunnari Odd og félögum háa einkunn þar sem tilfinningin mín á vellinum var að þeir hefðu dæmt þennan leik frábærlega. Hins vegar eftir nánari skoðun á tveim atvikum verða þeir að lækka í einkunn. Keflavík skorar mark sem virðist hafa verið fullkomlega löglegt, en þeir dæma rangstöðu. Svo er það fyrra atvikið með Sindra Kristinn, hann fer alveg greinilega með takkana í Baldur Hannes og mér finnst hann eiga að fá rautt þar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.