Watkins og Sesko efstir á óskalista Man Utd - Newcastle hefur einnig áhuga á Sesko - Everton vill Grealish
Njarðvík
0
0
HK
29.07.2025  -  19:15
JBÓ völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Sveinn Arnarsson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Njarðvík Njarðvíkingar sóttu sterkt stig í Breiðholtið í síðustu umferð þegar þeir gerðu 2-2 jafntefli við topplið ÍR.

Njarðvík sitja í 2.sæti deildarinnar með 28 stig, stigi á undan HK sem eru í 3.sætinu og stigi á eftir toppliði ÍR. Njarðvíkingar fara með sigri upp í efsta sætið um stundarsakir hið minnsta.

Njarðvíkingar hafa verið iðnir við kolan í sumar og skorað flest mörkin í deildinni eða 33 talsins.

Mörkin hafa raðast niður á:

Oumar Diocuk - 9 mörk
Dominik Radic - 6 mörk
Valdimar Jóhannsson - 3 mörk
Tómas Bjarki Jónsson - 3 mörk
*Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
HK HK unnu iðnaðarsigur gegn Leikni R. í síðustu umferð og stimpluðu sig af krafti inn í toppbaráttuna í deildinni í leiðinni.

HK sitja í 3.sæti deildarinnar með 27 stig, stigi á eftir Njarðvíkingum í öðru sæti og tveimur stigum á eftir toppliði ÍR. HK gæti með sigri í kvöld farið á topp deildarinnar um stundarsakir hið minnsta.

HK hafa skorað 26 mörk í sumar og hafa þessi mörk raðast á:

Dagur Orri Garðarsson - 10 mörk
Jóhann Þór Arnarsson - 4 mörk
Tumi Þorvarsson - 3 mörk
*Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið Sveinn Arnarsson heldur utan um flautuna í kvöld og honum til aðstoðar verða Bryngeir Valdimarsson og Arnþór Helgi Gíslason.
Eftirlitsmaður KSÍ er Einar Örn Daníelsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á JBÓ völlinn! Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Njarðvík og HK í Lengjudeild karla sem fram fer á JBÓ vellinum í Njarðvík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: