Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   þri 29. júlí 2025 09:49
Elvar Geir Magnússon
Víkingur lánar Almo í Njarðvík (Staðfest)
Lengjudeildin
Almo, Ali Al-Mosawe.
Almo, Ali Al-Mosawe.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ali Al-Mosawe hefur verið lánaður frá Víkingi til Njarðvíkur út þetta tímabil. Hann er kominn með leikheimild en Njarðvík leikur gegn HK í Lengjudeildinni í kvöld.

Almo, eins og hann er kallaður, er 23 ára kantmaður sem kom til Víkings frá danska félaginu Hilleröd í apríl. Hann er fæddur í Danmörku en er með írakskan ríkisborgararétt.

Hann hefur komið við sögu í níu leikjum með Víkingi frá komu sinni, byrjaði tvo leiki, en ekkert spilað síðan 5. júlí.

Njarðvík er í 2. sæti Lengjudeildarinnar og vonast til þess að Almo hjálpi liðinu að komast upp í Bestu deildina.

Almo verður annar leikmaðurinn á láni hjá Njarðvík frá Víkingi því fyrir er U19 landsliðsmaðurinn Davíð Helgi Aronsson.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
Athugasemdir
banner
banner