SKÝRSLAN: Víkingur Ó vann dramatískan leik fyrir austan
Hvað réði úrslitum?
Jafn leikur heilt yfir. Víkingar nýttu sín færi vel í dag, KFA fengu urmul dauðafæra en fóru oft illa með þau.
Bestu leikmenn
1. Hektor Bergmann
Mjög góður í þessum leik, Skoraði tvö og lagði upp eitt á Kwame, Virkilega mikilvægur í uppspili Víkinga og heldur boltanum vel.
2. Jón Kristinn
Svakalegur í marki Víkinga í dag, Varði hvert dauðafærið á fætur öðru og öruggur í sínum aðgerðum, Varði svo víti frá Heiðari í Vítaspyrnukeppninni og reyndist það mikilvægt.
Atvikið
Rauða spjaldið á Kwame, Hefði geta reynst Víkingum dýrt, En þeir eru örugglega í skýjunum að hafa náð að klára þetta.
Hvað þýða úrslitin?
KFA dottnir út og Víkingar komnir í undanúrslit og eiga ennþá séns á að komast á Laugardalsvöllinn!
Vondur dagur
KFA dottnir út og eru örugglega hundsvekktir með það, Þeir voru flottir í dag og þetta hefði getað dottið báðumeginn, En Svona er boltinn.
Dómarinn - 7
Fínn í dag, Auðvitað eitt og eitt atvik sem manni fannst kannski ekki alveg rétt en heilt yfir flottur bara.


