Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Breiðablik

LL
2
1
1

Lengjudeild kvenna
Fylkir

LL
1
1
1

Besta-deild kvenna
Stjarnan

LL
2
2
2

Besta-deild kvenna
Þór/KA

LL
4
0
0

Lengjudeild kvenna
ÍBV

LL
4
1
1

Breiðablik
2
1
Virtus

0-1
Stefano Scappini
'11
, víti

Valgeir Valgeirsson
'31
1-1
Tobias Thomsen
'55
, víti
2-1

21.08.2025 - 18:00
Kópavogsvöllur
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Dómari: Mikkel Redder (Danmörk)
Áhorfendur: 1164
Kópavogsvöllur
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Dómari: Mikkel Redder (Danmörk)
Áhorfendur: 1164
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
7. Höskuldur Gunnlaugsson
('46)

8. Viktor Karl Einarsson
11. Aron Bjarnason
('63)

15. Ágúst Orri Þorsteinsson
17. Valgeir Valgeirsson

18. Davíð Ingvarsson
('63)

19. Kristinn Jónsson
21. Viktor Örn Margeirsson (f)
44. Damir Muminovic
77. Tobias Thomsen
('76)
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
33. Gylfi Berg Snæhólm (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
9. Óli Valur Ómarsson
('63)

10. Kristinn Steindórsson
('46)

23. Kristófer Ingi Kristinsson
('63)

26. Alekss Kotlevs
28. Birkir Þorsteinsson
29. Gabríel Snær Hallsson
31. Gunnleifur Orri Gunnleifsson
39. Breki Freyr Ágústsson
99. Guðmundur Magnússon
('76)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Halldór Árnason (Þ)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Særún Jónsdóttir
Haraldur Björnsson
Eiður Benedikt Eiríksson
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Naumur sigur Breiðabliks
Blikar taka með sér 2-1 stöðu til San Marinó, þetta hefði átt að vera stærra og Blikar vita það. Nú þurfa þeir að klára þetta í San Marínó að viku liðinni.
90. mín
Mark!!!! nei...
Gummi Magg kemur boltanum í netið og Eitt fyrir klúbbinn fer í gang í græjunum en Daninn er með flaggið á lofti. Enn 2-1.
90. mín
Kiddi Jóns með hörkuskot sem Samuele ver frábærlega, er svo tæklaður í frákastinu og vill víti en Daninn ekki á sama máli.
87. mín
Gummi Magg í dauðafæri!
Gummi Magg er hér með boltann bara nánast á marklínunni en nær ekki að ná völdum á boltanum almennilega. Flaggið á loft að lokum þó.
85. mín

Inn:Simone Benincasa (Virtus)
Út:Stefano Scappini (Virtus)
Markaskorarinn af velli.
82. mín
Milsami Orhei frá Moldóvu unnu fyrri leikinn gegn Virtus með einu marki í seinustu umferð en steinlágu 3-0 úti. Blikar þurfa að skora meira til þess að koma í veg fyrir dramatík í seinni leiknum.
78. mín
Óli Valur leikur listir sínar úti á hægri kantinum og skýtur að marki en Samuele öruggur, hann hefur verið flottur í rammanum.
76. mín

Inn:Guðmundur Magnússon (Breiðablik)
Út:Tobias Thomsen (Breiðablik)
Skorar Gummi Magg sitt fyrsta Evrópumark?
74. mín

Inn:Matteo Zenoni (Virtus)
Út:Tommaso Lombardi (Virtus)
Virtus hrista upp í þessu
74. mín

Inn:Andrea Montanari (Virtus)
Út:Armando Amati (Virtus)
Virtus hrista upp í þessu
72. mín
Daninn í ruglinu
Nicola Gori allt of seinn í Valgeir. Nicola er á gulu spjaldi og ætti að fjúka út af hér en Daninn dæmir ekki einu sinni aukaspyrnu.
67. mín
VAR?
Lombardi virðist slá til Valgeirs sem liggur eftir, spurning hvort VAR skoði þetta.
63. mín

Inn:Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Út:Aron Bjarnason (Breiðablik)
Blikar hrista upp í þessu
63. mín

Inn:Óli Valur Ómarsson (Breiðablik)
Út:Davíð Ingvarsson (Breiðablik)
Blikar hrista upp í þessu
55. mín
Mark úr víti!

Tobias Thomsen (Breiðablik)
Er VAR bilað?
Tobias skorar af miklu öryggi, sendir Samuele í rangt horn.
Þetta var nú samt aldrei víti, Valgeir fór niður í teignum eins og hann hafi verið skotinn. Það snerti hann enginn. Það er VAR í leiknum en þeir sammælast niðurstöðu dómarans.
Þetta var nú samt aldrei víti, Valgeir fór niður í teignum eins og hann hafi verið skotinn. Það snerti hann enginn. Það er VAR í leiknum en þeir sammælast niðurstöðu dómarans.
51. mín
Blikar heimta víti eftir að Tobiasi virðist hrint á fjærstönginni en Daninn er ekki á þeim buxunum.
46. mín

Inn:Kristinn Steindórsson (Breiðablik)
Út:Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik)
Höskuldur tekinn af velli í hálfleik.
45. mín
Tölfræði af heimasíðu UEFA
Marktilraunir: 9-2
Hornspyrnur: 8-0
Rangstöður: 2-0
Gul spjöld: 0-2
Hornspyrnur: 8-0
Rangstöður: 2-0
Gul spjöld: 0-2
45. mín
Hálfleikur
Fengu ekki að taka hornið
Daninn flautar til hálfleiks. Blikar eru með jafna stöðu hér eftir fyrri hálfleik. Það verður að segjast að þetta Virtus lið er alls ekki upp á marga fiska, Blikar hljóta að klára þetta í seinni.
45. mín
Gult spjald: Armando Amati (Virtus)

Sparkar í boltanum þegar honum er stillt upp í aukaspyrnu, kjánalegt.
45. mín
Gult spjald: Alessandro Golinucci (Virtus)

Brýtur á Ágústi Orra sem var á blússandi siglingu.
44. mín
Blikar liggja enn á Virtus enn í þau fáu skipti sem Virtus sækja hratt finnst mér Blikar alltaf vera í smá brasi.
39. mín
Niang niður í teignum og er eitthvað biðja um víti en það var nákvæmlega ekkert í þessu.
36. mín
Höskuldur ekki með miðið alveg upp á 10 hérna í kvöld.
Kiddi Jóns með fyrirgjöf sem Samuele nær ekki að koma nægilega langt í burtu og boltinn beint á Högga sem á skot sem er arfaslakt og langt framhjá.
Kiddi Jóns með fyrirgjöf sem Samuele nær ekki að koma nægilega langt í burtu og boltinn beint á Högga sem á skot sem er arfaslakt og langt framhjá.
31. mín
MARK!

Valgeir Valgeirsson (Breiðablik)
Stoðsending: Kristinn Jónsson
Stoðsending: Kristinn Jónsson
Blikar jafna!
Kiddi Jóns leikur sér að vörn Virtus og leggur boltann út í teiginn á Valgeir sem á skot sem fer í tvo varnarmann og þaðan í netið.
Mikilvægt mark fyrir Breiðablik.
Mikilvægt mark fyrir Breiðablik.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Aron Bjarna leggur boltann út á Högga sem er í hörkuskotfæri á vítateigslínunni og reynir að snúa boltanum í samskeytin en skotið afleitt og vel yfir.
23. mín
Nálægt því Virtus!
Stórhættuleg aukaspyrna inn á teiginn og þar sem Stefano er nálægt því að tvöfalda forystuna en skallinn rétt framhjá.
23. mín
Kristinn Jónsson kemst upp að endalínu og á stórhættulega fyrirgjöf sem Samuele handsamar eftir smá bras. Nú liggur einhver Virtusmaður eftir og tefur.
16. mín
Virtus næstum komnir í 2-0, komast framhjá Antoni en ná ekki að gera sér mat úr þessu.
11. mín
Mark úr víti!

Stefano Scappini (Virtus)
Blikar eru lendir undir...
Scappini sendir Anton í vitlaust horn og kemur Virtus yfir.
Þetta var í fyrsta sinn sem Virtus fer yfir miðju í leiknum.
Úfff....
Þetta var í fyrsta sinn sem Virtus fer yfir miðju í leiknum.
Úfff....
10. mín
Víti!
Virtus fær víti.
Frábær skyndisókn hjá Virtus og Viktor Örn fellir Buonoconti innan teigs.
Frábær skyndisókn hjá Virtus og Viktor Örn fellir Buonoconti innan teigs.
10. mín
Hvernig skoraru ekki
Ágúst Orri gerir listilega vel úti hægra megin og rennir boltanum svo fyrir á Tobias sem þarf bara að renna boltanum í opið netið en hittir ekki boltann!
7. mín
Dauðafæri!!!
Kiddi Jóns kemst hér upp að endalínu og á fyrirgjöf á Tobias sem er fyrir opnu marki en skallar yfir.
5. mín
Damir!!!
Kiddi Jóns með hornið beint á pönnuna á Damir sem á fastan skalla sem Samuele ver vikrilega vel!
4. mín
Valgeir!!
Valgeir með hörkuskot hérna sem Samuele ver vel, Davíð Ingvars tilbúinn að pota inn frákastinu en Golinucci hreinsar á ögurstundu í horn.
Fyrir leik
Breiðablik spesjal er í boði á epic þar sem hægt er að taka á stuðlinum 5 að Blikar vinni með þremur mörkum eða meira, Virtus skorar ekki og Breiðablik fær 7 hornum meira en gestirnir
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, gerir fjórar breytingar á sínu liði frá leiknum gegn FH á sunnudag. Arnór Gauti Jónsson tekur út leikbann og þeir Ásgeir Helgi Orrason, Gabríel Snær Hallsson og Kristinn Steindórsson taka sér sæti á bekknum. Inn koma fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson, Valgeir Valgeirsson, Viktor Karl Einarsson og Kristinn Jónsson.
Fyrir leik
Danir með flautuna
Dómarateymið í leik kvöldsins er frá Danmörku og er aðaldómari leiksins Mikkel Redder og aðstoðardómararar Deniz Yurdakul og Rene Risum. Lasse Graagaard er svo fjórði dómari og Mads Kristoffersen myndbandsdómgæsludómari.

Fyrir leik
Breiðablik
Breiðablik byrjaði Evróputímabilið á því að vinna Egnatia frá Albaníu, 5-1 samanlagt. Síðan þá hefur þó hallað verulega undan fæti bæði í Evrópu og heima fyrir. Liðið mátti þola stórt tap gegn Lech Poznan frá Póllandi, 8-1 samanlagt áður en Zrjinski Mostar frá Bosníu sigraði, 3-2 samanlagt.
Blikar þurfa því að láta sér duga að spila í umspili í Sambandsdeildinni en blessunarlega er mótherjinn Virtus frá San Marínó, sem er með litla Evrópureynslu.
Blikar þurfa því að láta sér duga að spila í umspili í Sambandsdeildinni en blessunarlega er mótherjinn Virtus frá San Marínó, sem er með litla Evrópureynslu.

Fyrir leik
AC Virtus Acquaviva
Virtus eru meistararnir frá San Marínó en liðið hefur unnið deildina þar í landi seinustu tvö ár, fyrstu tveir deildartitlar í sögu félagsins.
Liðið dróst gegn Zrjinski Mostar í fyrstu umferð Meistardeildarinnar og líkt og Blikarnir þá lutu Virtus í lægra haldi gegn bosníska liðinu. Virtus duttu þó heldur betur í lukkupottinn og fengu að sleppa því að keppa í annari umferð Sambandsdeildarinnar og fóru beint í þá þriðju þar sem liðið vann magnaðan sigur gegn Milsami Orhei frá Moldóvu, 5-3 samanlagt.
Sigurinn gegn Milsami var fyrsti Evrópusigur Virtus í sögunni.

Okkar að setja tóninn
„Ég skynja mikinn gír í mönnum að henda í kröftuga frammistöðu hér á Kópavogsvelli. Maður veit ekkert mikið um þetta lið, og þessa deild. Að einhverju leiti gæti það bara verið fínt, þannig við erum bara að pæla í okkur og það sem við gerum okkar upp á tíu. Gerum það sem við getum gert, eins vel og við getum gert. Að því sögðu er þjálfarateymið búið að leggja fyrir okkur strategískt leikgreiningu, og prófíla mannskapinn hjá þeim. Ég lít á þetta þannig að þetta er okkar að setja tóninn á Kópavogsvelli á morgun, ekki spurning," segir Höskuldur Gunnlaugsson.
Breiðablik hefur ekki verið að ná í góð úrslit að undanförnu og langt síðan þeir unnu síðast leik. Leikmenn finna auðvitað fyrir því þegar langt er síðan síðasti sigur kom.
„Þetta er ekki taktur sem við viljum vera í. Alveg eins og þú getur dottið á gott 'rönn' og tengt saman marga sigra. Þá getur alveg myndast mynstur þar sem maður er eitthvað höktandi, og takturinn er ekki alveg upp á tíu. Það er bara kjörið tækifæri á morgun að snúa því gengi við, og byrja að fá w, á blað," sagði Höskuldur.
Breiðablik eru með töluvert yngra lið en Virtus og gætu því mögulega nýtt sér þá orku til að hlaupa yfir liðið líkt og þeir gerðu gegn Egnatia.
„Ég held það svona fyrirfram. Kannski burt séð frá einhverjum aldri hjá þeim. Þá held ég bara að henda í svona sjokkerandi háa ákefð á Kópavogsvelli, þegar að lið mætast og vita ekki alveg við hverju á að búast. Menn ætla aðeins að fara þreifa á hvorum öðrum fyrsta hálfleikinn eða slíkt í einvíginu. Þá að setja bara tóninn strax með háum ákefðar hlaupum fram og til baka, þá er oft erfitt fyrir andstæðinginn að ranka við sér við það. Það er bara eins og í box bardaga, að fá á sig vönkun eftir vönkun," sagði Höskuldur.

20.08.2025 15:41
„Það er bara eins og í box bardaga að fá á sig vönkun eftir vönkun"
Fyrir leik
Fyrir leik
Þurfa orkumikla frammistöðu
„Þetta er risa leikur, fyrir Breiðablik, risa leikur fyrir íslenskan fótbolta," sagði Halldór Árnason þjálfari Breiðabliks á fréttamannafundi fyrir fyrri leik Blika gegn Virtus frá San Marínó í umspili fyrir Sambandsdeildina. Sigurliðið í einvíginu kemst í deildarkeppnina.
„Við erum mjög vel undirbúnir og klárir að spila fyrri leikinn í þessu einvígi."
Breiðablik eru sigurstranglegri fyrir leikinn og Halldór segir að honum finnist hann vera með betra liðið.
„Við erum reynslumeiri á þessu sviði, en á sama skapi þá eru þeir ekki þarna fyrir tilviljun. Þeir slá út meistaralið frá Moldóvu með því að vinna þá 3-0 í síðasta leik. Það er engin heppni eða tilviljun. Þeir eru bara lið frá landi, líkt og Ísland, sem átti sér draum um að vera í riðlakeppni fyrir einhverjum árum sem var kannski óraunhæft. Það hefur breyst með þessu breyttu 'formati' í Evrópu. Þeir eru kannski á sama stað og íslensku liðin fyrir tveim til þrem árum, að ætla sér að skrifa söguna og vera fyrsta liðið til að tryggja sér í Evrópu. Þeir eru með mjög reynslumikið lið, hægt að segja gamalt lið. Mjög mikið af reynslumiklum leikmönnum sem kannski eru þarna, og ekki í b-deildinni á Ítalíu, því þeir hafa tækifæri að spila í Evrópu og upplifa draum um að spila í deildarkeppni í Evrópu áður en ferlinum lýkur. Þetta er bara fínasta lið og muna auðvitað mæta hérna til að hægja á leiknum, ná í úrslit, og fara með heim. Þannig að við erum reynslumeiri og ég tel okkur vera með betra lið, en það er enginn að fara gefa okkur neitt. Þeir eru ekki að fara leggjast hérna og láta pakka sér saman, það er algjörlega ljóst," sagði Halldór.
Virtus liðið er með þónokkra leikmenn í stórum hlutverkum sem eru orðnir mjög gamlir í fótbolta aldri. Breiðablik gæti því nýtt sér orkuna í yngri leikmönnum sem þeir hafa líkt og þeir gerðu gegn Egnatia.
„Það er hægt að gera það á annan hátt. Egnatia menn komu mjög hugrakkir inn í leikinn á móti okkur og ætluðu að pressa okkur út um allan völl maður á mann. Þeir kannski vanmátu Breiðablik á Kópavogsvelli þegar við gerum hlutina vel og hratt. Þetta verður allt öðruvísi leikur, þeir liggja mjög neðarlega og verja markið sitt neðarlega á vellinum. Við þurfum að spila hratt, við þurfum að vinna boltann hratt eftir að við töpum honum og halda þeim neðarlega á vellinum. Passa að þeir fái ekki súrefni til að koma sér inn í leikinn og líði eins og þeir fari að gera eitthvað. Ef við erum að tala um Egnatia þá er þetta allt önnur sviðsmynd, en já við þurfum mjög orkumikla frammistöðu, það er alveg ljóst," sagði Halldór.

20.08.2025 15:25
Dóri Árna svarar gagnrýnisröddum - „Ég vona einhver gefi þeim gott knús heima"
Byrjunarlið:
12. Samuele Guddo (m)
10. Ivan Buonocunto
11. Tommaso Lombardi
('74)

15. Nicola Gori

17. Alessandro Golinucci

18. Matteo Legittimo
19. Abdoul Aziz Niang
('90)

21. Armando Amati
('74)

26. Aron Giacomoni
45. Elia Ciacci
('90)

90. Stefano Scappini
('85)

Varamenn:
1. Mattia Manzaroli (m)
4. Andrea Montanari
('74)

6. Roberto Sabato
16. Jacopo Muggeo
('90)

20. Gabriel Capicchioni
('90)

25. Simone Benincasa
('85)

33. Matteo Zenoni
('74)

34. Umberto De Lucia
Liðsstjórn:
Luigi Bizzotto (Þ)
Gul spjöld:
Alessandro Golinucci ('45)
Armando Amati ('45)
Nicola Gori ('52)
Simone Benincasa ('88)
Rauð spjöld: