Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Keflavík
Keflavík
Lengjudeild karla
HS Orku völlurinn
7 - 2
Völsungur
Völsungur
Muhamed Alghoul 12'1 - 0Kári Sigfússon 17'2 - 02 - 126' Jakob Héðinn RóbertssonÁsgeir Páll Magnússon 43'3 - 1Muhamed Alghoul 47'4 - 1Stefán Jón Friðriksson 66'5 - 1Stefan Alexander Ljubicic 83'6 - 16 - 286' Gestur Aron SörenssonMarin Mudrazija 87'7 - 2
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: Keflavík lagar markatöluna í baráttu um að komast í umspilið

Hvað réði úrslitum?

Stórfurðulegur og skemmtilegur fótboltaleikur. Keflavík byrjaði af krafti og skoraði fyrstu tvö mörk leiksins. Leikurinn sveiflaðist svo til Völsungs sem tóku þá öll völd á vellinum og náðu að minnka muninn. Keflavík skorar svo þriðja markið fyrir hlé sem gaf þeim mikið. Heimamenn skora svo beint úr horni á fyrstu mínútu seinni hálfleiks og eftir það var leikurinn aldrei í neinni hættu og Keflvíkingar kláruðu dæmið.

Bestu leikmenn

1. Muhamed Alghoul

Var frábær fyrir heimamenn í dag. Skoraði tvö mörk og var alltaf til vandræða framarlega.

2. Stefan Ljubicic

Skoraði langþráð mark og fær sætið hér fyrir það. Var í færunum í dag og átti markið sitt svo innilega skilið.

Atvikið

Þriðja mark Keflavíkur þegar Ásgeir Páll ætlar að koma með fyrirgjöf fyrir markið frá vinsti en boltinn svífur bara í bláhornið fjær. Mómentið var með Völsungi þegar þetta gerist og gaf Keflavík mikið fyrir hálfleikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík lagar markatöluna í 6.sætinu og eru bara þremur stigum á eftir ÍR og HK í 5.-4.sæti og mæta ÍR einmitt í næstu umferð. Völsungur eru þremur stigum frá fallsæti í 7.sæti og mæta Grindavík í næstu umferð sem eru stigi á eftir þeim í 8.sæti.

Vondur dagur

Varnarleikur Völsungs horfði sjö sinnum á eftir boltanum í netinu. Ívar Arnbro átti nokkrar góðar vörslur sem komu í veg fyrir stærra tap en heilt yfir var þetta ekki spes frammistaða aftast eins og úrslitin gefa til kynna.

Dómarinn - 6

Þokkalegasta frammistaða í dag. Völsungur vildi fá peysutog í aðdraganda þriðja marksins þegar Kári Sigfússon rífur klárlega í treyju leikmanns Völsungs þegar Keflavík vinnur boltann aftur. Ef það er tekið út fyrir sviga þá var þetta bara fínasta frammistaða. Ekki slæmt en ekki frábært heldur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.