Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þór
Þór
Lengjudeild karla
Boginn
Kaldari inni en úti
3 - 1
Njarðvík
Njarðvík
Sigfús Fannar Gunnarsson 6'1 - 0Rafael Alexandre Romao Victor 25'2 - 0Ingimar Arnar Kristjánsson 72'3 - 03 - 196' Tómas Bjarki Jónsson
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Sungu Þórsara á toppinn

Hvað réði úrslitum?

Þetta var á pari í dag, frammistaða Þórsara inn á vellinum og svo frammistaða stuðningsmannanna, Mjölnismanna, í stúkunni. Magnaður stuðningur sem hófst löngu fyrir leik og hafði klárlega áhrif á Þórsliðið í dag - gaf liðinu mikinn kraft. Þór var ofan á í fyrri hálfleiknum og leiddi sanngjarnt, Njarðvík bankaði í seinni en markið sem vantaði til að opna leikinn kom ekki fyrr en munurinn var orðinn þrjú mörk og nánast ekkert eftir.

Bestu leikmenn

1. Yann Emmanuel Affi

Þvílíkur fengur fyrir Þór þessi leikmaður, besti miðvörður deildarinnar. Hef áður sagt það en segi aftur, maður sá þetta ekki í honum miðað við fyrstu leiki hans sem vou alls ekki góðir.

2. Sigfús Fannar Gunnarsson

Jafnmarkahæsti leikmaður deildarinnar. Skoraði sitt tólfta deildarmark og hefði hæglega getað skorað fleiri. Lagði upp þriðja markið og var mjög öflugur.

Atvikið

Annað mark Þórs. Davíð Helgi var þjáður og settist í grasið, varnarlína Njarðvíkur færðist ofar þannig hann sat eftir og við það myndaðist stórt svæði sem Rafael Victor nýtti sér og tvöfaldaði forskot heimamanna.

Hvað þýða úrslitin?

Þórsarar eru komnir á topp Lengjudeildarinnar í fyrsta sinn í háa herrans tíð. Fimm sigrar í röð og sjö í síðustu átta. Þetta var annað tap Njarðvíkur í röð og liðið er komið í þriðja sætið eftir sigur Þróttara fyrr í dag.

Vondur dagur

Allt Njarðvíkurliðið virkaði vankað í fyrri hálfleik, Freysteinn kannski líflegastur. Þjálfari liðsins var ósáttur með Aron Snæ í fyrsta markinu og Davíð Helga í öðru markinu. Þeir fá þetta box.

Dómarinn - 7

Fannst Vilhjálmur Alvar dæma þennan leik heilt yfir mjög vel, sammála spjöldunum fyrir utan eitt því ég ætla að fá að setja stórt spurningamerki við atvik í uppbótartíma þar sem ég held að Sigurjón hefði átt að fjúka út af fyrir að grípa í Ingimar á sprettinum. Rautt spjald og vítaspyrna eins og ég sé þetta, brotið heldur áfram inn í teig.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.