Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Njarðvík
Njarðvík
Lengjudeild karla
JBÓ völlurinn
Léttskýjað og logn
3 - 1
Leiknir R.
Leiknir R.
Oumar Diouck 32'1 - 0Oumar Diouck 53'2 - 0Valdimar Jóhannsson 80'3 - 03 - 184' Adam Örn Arnarson
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Njarðvíkingar aftur á sigurbraut og halda pressu við toppinn

Hvað réði úrslitum?

Leikur þar sem úrslitin voru nánast aldrei í neinni hættu. Njarðvíkingar voru sterkari og unnu sanngjarnan og sannfærandi sigur. Smá móment með Leikni í lokin en aldrei þannig að það ógnaði sigri Njarðvíkinga að einhverju leyti.

Bestu leikmenn

1. Oumar Diouck

Er orðin markahæstur í deildinni eftir leikinn í kvöld. Skoraði tvö góð mörk og hefur verið frábær fyrir Njarðvíkinga í sumar.

2. Arnleifur Hjörleifsson

Fannst hann virkilega öflugur í vinsti bak í kvöld. Óheppin að skora ekki og lagði svo upp þriðja markið. Happafengur fyrir Njarðvíkinga í sumar.

Atvikið

Leiknismenn eru við það að sleppa í gegn þegar staðan er 3-1 fyrir Njarðvíkingum undir lokin en flaggið fór á loft. Alls ekki sannfærður um að þetta hafi verið rangstæða en ef Leiknir hefði náð inn marki þarna hefði það hleypt leiknum upp í loft.

Hvað þýða úrslitin?

Njarðvíkingar halda pressu við toppinn en þurfa að láta annað sætið duga í bili allavega. Leiknismenn eru ennþá stigi fyrir ofan fallsæti en mæta liðunum í kringum sig í síðustu tveim leikjum svo þetta er í þeirra höndum.

Vondur dagur

Shkelzen Veseli spilaði fyrri hálfleikinn í kvöld en það sást ekki mikið til hans.

Dómarinn - 5

Sleppi teyminu með fimm en það voru nokkur atvik sem stungu. Hvernig Thomas Boakye hjá Njarðvík slapp án spjalds úr þessum leik er magnað. Rangstaðan í lokin [sjá atvikið] hefur mikið að segja líka. Alls ekki sannfærður. Hvort það hefði breytt niðurstöðu leiksins er hinsvegar erfitt að segja svo við sleppum þessu með fimm.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.