Fotbolti.net
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
HK
HK
Lengjudeild karla
Kórinn
Góður hiti og logn.
0 - 2
Fylkir
Fylkir
0 - 186' Pablo Aguilera Simon (víti)0 - 289' Benedikt Daríus Garðarsson
Dómari: Arnar Þór Stefánsson

SKÝRSLAN: Sneri aftur eftir leikbann og var rekinn af velli

Hvað réði úrslitum?

Það var lítið um færi í Kórnum í kvöld. HK-ingar héldu betur í boltann og stýrðu leiknum upp að vissu marki, án þess að nýta þessa yfirburði. Leikurinn stefndi í jafntefli, þar til að Arnar Þór bendir á punktinn og dæmir vítaspyrnu á HK, ásamt því að reka Aron Kristófer af velli. Í kjölfarið kemst Fylkir yfir, við það köstuðu HK-ingar öllu fram og fengu annað mark í andlitið.

Bestu leikmenn

1. Pablo Aguilera Simon

Pablo gerði ekki mikið framan af, en á sendinguna ætlaða Guðmundi í vítadómnum, skoraði úr vítinu ásamt því að eiga stóran þátt í seinna marki Fylkis.

2. Arnþór Ari Atlason

Arnþór góður í dag, kom sér í nokkur skallafæri og var góður í spili HK á miðjunni. Vert að nefna Bart Kooistra hér líka, stóð sig vel í sínum fyrsta byrjunarliðsleik fyrir HK þrátt fyrir að skora ekki.

Atvikið

Umtalaði vítadómurinn fær þessa nafnbót. Annars vil ég kasta hugheilum kveðjum á Eið Atla, miðjumann HK. Sá fékk að finna fyrir því í dag, nelgdur niður trekk í trekk, áður en hann var tekinn af velli undir lok leiks.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkir er komið í afar góða stöðu í fallbaráttunni, í 7. sæti, fjórum stigum frá fallsæti. HK er í harðri baráttu við Keflvíkinga, sem töpuðu einnig í dag, um 5. sætið. HK er með þriggja stiga forskot á Keflvíkinga, nú þegar tvær umferðir eru eftir.

Vondur dagur

Aron Kristófer Lárusson braut af sér í vítadómnum. Honum verður þó ekki kastað undir rútuna vegna brotsins. Aron sneri aftur í dag til baka eftir að hafa tekið út leikbann í síðasta leik. Hann fékk að líta rauða spjaldið gegn Grindavík fyrir tveimur umferðum síðan og fagnaði endurkomunni með öðru rauðu í dag. Hvort sem þetta var óheppni eða ekki, þá var þetta í hið minnsta eftirminnileg endurkoma.

Dómarinn - 3

Arnar Þór og félagar stóðu sig prýðilega framan af, leyfðu leiknum að fljóta og ég var, aldrei þessu vant, nokkuð ánægður með dómgæslu leiksins, þá sérstaklega framan af leik. En undir lok leiks gerðist Arnar sekur um að dæma vítaspyrnu þegar Aron Kristófer er búinn að taka sér stöðu fyrir framan Guðmund Tyrfingsson sem fellur við. Í mínum (ásamt mörgum öðrum) bókum er þetta aldrei vítaspyrna og út frá þessu hirtu Árbæingar stigin þrjú.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.