SKÝRSLAN: ÍR þarf bara eitt stig til að tryggja umspil
Hvað réði úrslitum?
ÍR-ingar komu fáránlega vel stemndir til leiks og einfaldlega keyrðu yfir Keflvíkingana í fyrri hálfleik. Leikurinn var mjög skemmtilegur, nóg af færum og það hefðu getað komið fleiri mörk báðu megin. ÍR-ingar áttu heilt yfir betri færin og nýttu þau vel.
Bestu leikmenn
1. Bergvin Fannar Helgason (ÍR)
Bergvin skorar tvö mjög góð mörk. Er týpa af framherja sem er ótrúlega erfitt að eiga við, sterkur og áræðinn.
2. Breki Hólm Baldursson (ÍR)
ÍR-ingar voru að ná að yfirmanna vinstri kantinn mjög vel með hlaupunum hans Breka upp kantinn. Hann var mjög ógnandi, og óheppinn að skora ekki sjálfur.
Atvikið
Sjálfsmarkið sem Axel Ingi skorar var mjög pínlegt. Engin hætta í kringum hann og hann neglir fyrirgjöf sem er að koma inn í teiginn í eigið net.
Hvað þýða úrslitin?
ÍR er í 4. sæti sex stigum frá Keflavík og þarf aðeins eitt stig til þess að tryggja sér umspils sæti. Einnig eru þeir aðeins fjórum stigum frá efsta sætinu. Keflavík er þremur stigum frá HK í fimmta sæti, og þurfa að treysta á að þeir misstígi sig svo þeir geta komist í umspilið.
Vondur dagur
Axel Ingi fékk mjög litla hjálp í varnarvinnu þar sem mennirnir fyrir framan hann virtust ekki nenna að hlaupa til baka. Auk þess skorar hann þetta sjálfsmark, erfiður dagur fyrir hann.
Dómarinn - 8
Mjög vel dæmdur leikur, leyfði leiknum að fljóta og var með stóru atriðin á hreinu.



