Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Afturelding
Afturelding
Besta-deild karla
Malbikstöðin að Varmá
1 - 2
FH
FH
0 - 129' Björn Daníel SverrissonHrannar Snær Magnússon (víti) 34'1 - 11 - 257' Sigurður Bjartur Hallsson
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Vafasamur dómur í fyrsta Bestu deildar leik Péturs í sumar

Hvað réði úrslitum?

FH-ingarnir byrjuðu leikinn mun betur en þeir misstu leikinn frá sér þegar Mosfellingar jöfnuðu af punktinum. Seinni hálfleikurinn var kaflaskiptur en heilt yfir voru Mosfellingar betri en FH-ingar nýttu sér þetta færi og unnu.

Bestu leikmenn

1. Kjartan Kári Halldórsson

Kjartan var að mínu mati besti maður vallarins. Leggur upp bæði mörkin þótt það verði eflaust ekki skráð stoðsending á hann. Mjög hættulegur á seinasta þriðjungnum.

2. Sigurður Bjartur Hallsson

Skorar markið sem skipti máli í dag. Gerði að mínu mati bara mjög vel í markinu, eftir að hafa skoðað það aftur fannst mér þetta átt að standa og rétt dæmt hjá Pétri.

Atvikið

Sigurmarkið sem Sigurður skorar. Mosfellingar brjálaðir og vildu fá brot á Sigurð en að mínu mati var þetta löglegt mark. Jökull var ekki með fullt vald á boltanum og mér sýndist Sigurður vera á undan í boltann.

Hvað þýða úrslitin?

FH-ingar halda áfram og eru sjóðandi heitir. Aftur vinna þeir á gervigrasi líka. Mosfellingar hins vegar ekki unnið síðan 23. júní gegn ÍBV, verður fróðlegt að sjá hvað þeir gera í úrslitakeppninni. Þeir eru komnir í alvöru brekku.

Vondur dagur

Ég verð því miður að gefa Jökli Andréssyni þessa nafnbót. Hann á að gera betur í sigurmarkinu hjá FH þegar ég horfi á þetta aftur og það er spurning hvort hann hefði getað farið út í boltann í fyrsta marki FH. Kannski er þetta bara bull í mér en þetta er það sem ég sé.

Dómarinn - 9

Frábær leikur hjá Pétri og hans teymi. Gaman að fá Pétur aftur í Bestu deildina en þetta var hans fyrsti Bestu deildarleikur í sumar sem hann dæmir. Þessi ákvörðun sem hann tekur í sigurmarki FH með því að láta markið standa virðist hafa verið hárrétt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.