Fotbolti.net
Besta deildin
@GunnarBjarturGunnar Bjartur Huginsson
Fram
Fram
Besta-deild karla
Lambhagavöllurinn
Sól og toppaðstæður
2 - 1
Valur
Valur
0 - 124' Aron JóhannssonSimon Tibbling 59'1 - 1Simon Tibbling (víti) 91'2 - 1
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: Framarar stálu sigrinum af toppliði Vals

Hvað réði úrslitum?

Einstaklingsgæði skinu svolítið í gegn á þessum leik. Freyr Sigurðsson var mjög góður í leiknum ásamt Simon Tibbling.

Bestu leikmenn

1. Freyr Sigurðsson

Freyr var stórkostlegur í kvöld. Undirbúningurinn í fyrsta markinu var algert augnakonfekt og svo skaut hann í hendina á Sigurði sem varð að víti.

2. Simon Tibbling

Hann er bara einn gæðamesti leikmaður deildarinnar. Skoraði tvö mörk í dag og sveif um völlinn.

Atvikið

Vítadómurinn í lok leiks verður að vera atvik leiksins. Það skilaði Fram sínum fyrsta sigri síðan 5. júlí.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Fram situr í síðasta sæti efri hlutans eða 6. sæti. Þar sem að Víkingur og Breiðablik gerðu jafntefli, þá sitja Valsmenn enn á toppi deildarinnar en aðeins með eins stigs forskot.

Vondur dagur

Bara heilt yfir fyrir Val. Náðu ekki að klára nokkur færi nægilega vel. Þeir áttu líklegast skilið jafntefli og má deila um nokkra dóma í leiknum.

Dómarinn - 6

Nokkrir vafasamir dómar sem ég á bara eftir að sjá betur. Rangstöðudómur á Tryggva Hrafn, vítadómurinn og víti sem Valsarar vildu fá undir lokin.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.