SKÝRSLAN: Martröð á Meistaravöllum
Hvað réði úrslitum?
KR hélt mun betur í boltann, rúmlega sjötíu prósent með hann. Þeir gerðu ekkert með boltann og áttu varla færi. Víkingar biðu eftir þeim og þegar þeir unnu boltann þá refsuðu þeir. Varnarleikur KR-inga var skelfilegur, talning, ekki í línu, seinir og svo lengi mætti telja um hluti sem voru ekki í lagi þar. Víkingar hreinlega tóku KR-inga í kennslustund.
Bestu leikmenn
1. Valdimar Þór Ingimundarson
Skoraði þrennu og gerði KR-ingum lífið leitt.
2. Oliver Ekroth
Ekki á hverjum degi sem hann er með mark og stoðsendingu. KR-ingar sköpuðu lítið sem ekkert og er hann því fulltrúi varnarmanna Víkings hér.
Atvikið
Sjöunda mark Víkings, martröð KR hélt áfram. Jöfnuðu þar með stærsta tap KR í sögunni. Tapið kom þá eftirminnilega gegn FH í lokaumferðinni árið 2003, þegar KR-ingar höfðu þegar tryggt sér titilinn.
Hvað þýða úrslitin?
KR fer með lítið sjálfstraust inn í tvískiptinguna. Eru nú þremur stigum frá falli, en Afturelding og ÍA leika innbyrðis á morgun.
Víkingur er á toppi deildarinnar og verða það nema ef Valur vinnur Stjörnuna.
Vondur dagur
Hvar á ég að byrja? Held að það sé óþarfi að telja upp alla leikmenn KR. Varnarlínan í ruglinu, flest mörk (ef ekki öll) Víkings sýna hversu dapurt þetta var. Allir fjórtán KR-ingarnir sem komu við sögu í dag fá þessa nafnbót. Óskar Hrafn fær einnig að fljóta með.
Dómarinn - 9
Twana og félagar með allt í teskeið.




