Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
FH
FH
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Kaplakrikavöllur
1 - 1
Valur
Valur
0 - 143' Fanndís Friðriksdóttir Thelma Karen Pálmadóttir 53'1 - 1
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Tinna Brá lék FH grátt

Hvað réði úrslitum?

Það má nefna ýmislegt. Lið FH mætti ekki af fullum krafti til leiks fyrr en í síðari hálfleik til að nefna eitt. Tinna Brá í marki Vals varði frábærlega úr dauðafærum til þess að neita FH um forystuna í leiknum og að lokum tókst Val að þvinga FH í að gera nákvæmlega það sem þær vildu að FH myndi gera lengi vel. Jafntefli sanngjörn niðurstaða í mínum bókum svona heilt yfir.

Bestu leikmenn

1. Tinna Brá Magnúsdóttir

Stórkostleg í síðari hálfleik. Gat svo sem lítið gert í marki FH en eftir það varði hún tvívegis í 1 á 1 stöðu og vann gott stig fyrir Val með því.

2. Thelma Karen Pálmadóttir

Síógnandi á væng FH og skoraði gott mark. Á öðrum degi hefði eflaust komið meira út úr upphlaupum hennar en hún verður ekki sökuð um að hafa ekki gefið allt í leikinn.

Atvikið

Fyrir mér er það að Sjá Örnu Sif Ásgrímsdóttur á vellinum aftur. Einstök íþróttakona þar á ferð sem sneri aftur á völlinn eftir tveggja ára fjarveru eftir meiðsli og barnsburð. Sönn fyrirmynd og holdgervingur þess að allt er hægt sé viljin fyrir hendi. Frábært að sjá hana á vellinum á ný.

Hvað þýða úrslitin?

FH heldur í 2.sæti deildarinnar á markatölu og á tæknilega séð enn möguleika á því að verða Íslandsmeistari þó vissulega aðeins í langsóttum stærðfræðidæmum. Valur í fjórða sætinu sömuleiðis á markatölu en leiðin er stutt niður í það 6.

Vondur dagur

Sóknarmenn FH naga sig í handarbökin að hafa ekki nýtt góð tækifæri í síðari hálfleik til þess að taka forystuna í leiknum. 1 á 1 færi sem misferst lítur aldrei vel út fyrir sóknarmenn.

Dómarinn - 7

Ekki erfiðasti leikurinn sem teymið hefur dæmt en það þarf að mæta í þá líka og skila sínu. Góð frammistaða heilt yfir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.