Fotbolti.net
Besta deildin
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Kópavogsvöllur
1 - 2
Stjarnan
Stjarnan
Samantha Rose Smith 25'1 - 01 - 151' Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir1 - 277' Birna Jóhannsdóttir
Dómari: Bríet Bragadóttir

SKÝRSLAN: Stjarnan seinkar Íslandsmeistaratitli Blika

Hvað réði úrslitum?

Þrátt fyrir að Blikar gætu staðfest Íslandsmeistara tiltilinn með sigri í dag, var það Stjarnan sem mætti miklu sterkari í leikinn. Blikar virtust vanta baráttuna í þessum leik.

Bestu leikmenn

1. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir

Gaf sig allt í þennan leik og skoraði mark og fékk eina stoðsendingu í þessum leik.

2. Bridgette Nicole Skiba

Stóð sig frábærlega á milli stanga og bjargaði sigrinum fyrir Stjörnuna, sérstaklega í lok leiksins.

Atvikið

Atvik leksins þarf að vera brotið á Elínu, sem virðist hafa handleggs brotnað, samkvæmt Nik þjálfara Blika. Hún þurfti að bíða á hliðarlínunni í 20 til 30 mínútur eftir sjúkrabílnum, sjúkraliðar Blika þorðu ekki að hreyfa á henni.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar liggja enn í efsta sæti efri hluta, á meðan Stjarnan færir sér upp í 5. sæti.

Vondur dagur

Blikar voru alveg andlausar í seinni hálfleik. Stjarnan sköpuðu mikla hættu og var vörnin alls ekki upp á sitt besta hjá Blikum. Þær sóttu mikið í lokinn til að jafna en það dugði ekki. Meiðsli Elínu höfðu möguleika áhrif á hausinn þeirra.

Dómarinn - 6

Ekkert merkilega dæmdur leikur hjá Bríeti og teymi. Nokkur mistök í hvaða lið áttu að eiga boltann eftir að hann fót út af en annars enginn stór atvik sem gerðust í þessum leik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.