SKÝRSLAN: Markaleikur í Laugardalnum
Hvað réði úrslitum?
Þróttarar voru betri fyrstu mínúturnar og það var frekar jafnt í fyrri hálfleik milli liða. Víkingar voru fannst mér betri í seinni og voru með yfirhöndina alveg þangað til Kayla skorar þessi rugl mörk.
Bestu leikmenn
1. Kayla Rollins
Kayla átti frábæran leik eftir hún kom inná. Lét strax finna fyrir sér og skorar svo nátturulega þessi mörk í lok leiks til að tryggja sigurinn fyrir Þrótt.
2. Bergdís Sveinsdóttir
Bergdís var líka mjög góð í dag og skoraði 2 stórglæsileg mörk og virtist ætla gulltryggja þetta þegar hún skoraði seinna markið á 85.
Atvikið
Verður að vera lokamínúturar í þessum leik.
Fyrra markið var frábært. Flottur bogi á þessari aukaspyrnu sem fer beint á kollinn á Kaylu sem skallar honum inn.
Seinna markið er svo algjört rugl. Mist dúndrar boltanum í slánna af mjög löngu færi utan teigs og boltinn fellur niður á Kaylu sem smeygir honum inn og gulltryggði sigurinn fyrir Þrótt.
Hvað þýða úrslitin?
Heimakonur í Þrótti sitja jöfn að stigum með FH í 3. sæti og Víkingar falla niður í 6. sæti eftir tapið og sigur Stjörnunnar á Breiðablik.
Vondur dagur
Jelena ekki með góðann dag. Fær gult fyrir að rífa Freyju niður og svo seinna gula fyrir að brjóta á Dagnýju Rún og verður þar með í banni í næsta leik gegn Breiðablik.
Dómarinn - 8
Guðmundur flottur í kvöld og tók lítið af feilsporum.




