Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Besta-deild karla - Neðri hluti
Meistaravellir
Fínasta veður en vindurinn lætur til sín taka.
KR
KR
2 - 2
Afturelding
Afturelding
Eiður Gauti Sæbjörnsson 13'1 - 01 - 190' Aron Elí Sævarsson (víti)Michael Osei Akoto 93'2 - 12 - 295' Elmar Kári Enesson Cogic

SKÝRSLAN: Er martröð KR að raungerast?

Hvað réði úrslitum?

Það var ljóst að mikið var í húfi fyrir bæði lið, lítið um færi framan af leik. KR skoraði snemma og héldu mun meira í boltann. Afturelding gerði lítið í fyrri hálfleik, en mættu þó mun sterkari út til leiks í þeim síðari og voru búnir að hóta jöfnunarmarkinu sem kom loks úr vítaspyrnu undir lok leiks. Þessar lokamínútur eru líklegast þær rosalegustu sem ég hef séð. KR svaraði jafnri stöðu strax og komust yfir en Mosfellingar svöruðu þá sömuleiðis. Jafntefli sanngjörn niðurstaða þegar á botninn er hvolft.

Bestu leikmenn

1. Michael Akoto

Erfitt að velja mann leiksins í dag. Akoto var nálægt því að gerast hetja KR-inga þegar hann skoraði undir lok leiks, en hann var einnig heilt yfir flottur í vörn KR.

2. Hrannar Snær Magnússon

Var potturinn og pannan í sóknarleik Mosfellinga. Þeirra helsta ógn og fiskaði vítið.

Atvikið

Auðvitað er mark Elmars Kára atvik leiksins. Ég vil þó tilnefna ríg stuðningsmanna Aftureldingar og Miðjunnar í stúkunni. Góður banter á milli stuðningsmanna. Meðal söngva sem heyrðist var: „Er þetta stórveldi? Nei þetta er smáveldi!“ og fleiri álíka söngvar frá stuðningsmanna beggja liða.

Hvað þýða úrslitin?

Stigið gerir ekkert heilmikið fyrir liðin. KR er enn á botninum tveimur stigum frá öruggu sæti, Afturelding stigi fyrir ofan KR. Skyldi Vestri vinna á morgun getur KR verið fimm stigum frá öruggu sæti þegar sex stig eftir í pottinum.

Vondur dagur

Gyrðir braut á Hrannari Snæ undir lok leiks og fékk dæmda vítaspyrnu á sig sem var verulega klaufalegt, en hann hafði verið góður í leiknum áður en að hann gerðist sekur um þessi mistök. Jökull Andrésson, markvörður Aftureldingar, virkaði verulega ósannfærandi. Missti boltann einu sinni, tvisvar og kýldi boltann frá í aðdraganda seinna marksins en hefði getað haldið honum að mínu mati. En það kom þó ekki að sök. Liðsfélagi hans Elmar Cogic átti ekki sinn besta dag sem fölsk nía, en hann reyndist hetja Mosfellinga því hlífum við honum frá þessari nafnbót.

Dómarinn - 8

Sigurður Hjörtur og félagar sluppu þokkalega frá þessum leik. Ekki hægt að sleppa þessu víti þó að það hafi verið soft.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.