Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
Besta karla
Stjarnan
45' 2
2
Valur
Besta karla
Víkingur R.
43' 0
0
ÍA
Besta karla
Breiðablik
45' 1
0
Þór
Besta karla
KR
LL 4
2
FH
Besta karla
Fram
LL 5
1
ÍBV
Fram
5
1
ÍBV
Atli Þór Jónasson '11 1-0
Atli Þór Jónasson '32 2-0
Þorri Stefán Þorbjörnsson '49 3-0
3-1 Róbert Elís Hlynsson '72
Kyle McLagan '76 4-1
Kristófer Konráðsson '88 5-1
27.04.2026  -  17:30
Lambhagavöllurinn
Besta karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
5. Kyle McLagan
8. Haraldur Einar Ásgrímsson ('82)
10. Fred Saraiva
12. Simon Tibbling ('82)
17. Atli Þór Jónasson ('77)
18. Ægir Jarl Jónasson
19. Kennie Chopart (f) ('77)
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('59)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
1. Sigurjón Daði Harðarson (m)
7. Kristófer Konráðsson ('82)
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson ('77)
15. Jakob Byström ('59)
16. Israel Garcia ('82)
23. Már Ægisson ('77)
25. Freyr Sigurðsson
33. Kajus Pauzuolis
38. Guðmundur Ágúst Héðinsson

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Helgi Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson
Einar Haraldsson
Friðgeir Bergsteinsson
Sævar Halldórsson
Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson
Kristján Finnbogi Finnbogason

Gul spjöld:
Kyle McLagan ('71)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
+2 Stórsigur er staðreynd hér!

Ég þakka kærlega fyrir mig, viðtöl og skýrsla koma í kvöld
90. mín
+2 Milan Jezdemirovic ógnar í blálokin. Á skot á mark en Viktor ver þetta og ÍBV fær horn
90. mín
+1 Dómarinn bætir 2 mínútum við
88. mín MARK!
Kristófer Konráðsson (Fram)
Staðfest, skjalfest, þingfest! Kristófer er aleinn á hægri kantinum, lætur vaða og boltinn fer í stöngina á leiðinni inn!

Gulltryggt fyrir heimamenn
88. mín
357 mættir í stúkuna!
85. mín
Góð sókn hjá heimamönnum Ógna tvisvar í þessari sókn! Már tekur síðan skot sem Marcel rétt nær að verja útaf
82. mín
Inn:Israel Garcia (Fram) Út:Simon Tibbling (Fram)
82. mín
Inn:Kristófer Konráðsson (Fram) Út:Haraldur Einar Ásgrímsson (Fram)
79. mín
Inn:Eiður Atli Rúnarsson (ÍBV) Út:Milan Tomic (ÍBV)
77. mín
Inn:Arnar Breki Gunnarsson (ÍBV) Út:Arnór Ingi Kristinsson (ÍBV)
77. mín
Inn:Már Ægisson (Fram) Út:Kennie Chopart (Fram)
77. mín
Inn:Bjarni Páll Linnet Runólfsson (Fram) Út:Atli Þór Jónasson (Fram)
76. mín MARK!
Kyle McLagan (Fram)
Stoðsending: Haraldur Einar Ásgrímsson
Nú held ég svei mér þá að þetta sé búið! Haraldur með frábæra stoðsendingu úr aukaspyrnu hægra megin rétt hjá teignum.

Boltinn fer svo í fallegum boga beint á kollinn hans Kyle sem nær frábærum skalla!
75. mín
Búið að bæta í vindinn. Marcel reynir að hreinsa en boltinn snýst til baka
72. mín MARK!
Róbert Elís Hlynsson (ÍBV)
ÞVÍLÍKA SPYRNAN!!! Róbert Elís svoleiðis þrumar honum í vinstra hornið! Viktor Freyr nálægt en nær ekki fingurgómunum í hann!

Blæs þetta mark lífi í Eyjamenn?
71. mín Gult spjald: Kyle McLagan (Fram)
Gult á Kyle og ÍBV fær aukaspyrnu á vænlegum stað rétt fyrir utan D-bogann
68. mín
Fram fær aukaspyrnu á hættulegum stað, hægra megin við teiginn.

Vicente nær að skalla boltann frá
67. mín
Annað horn fyrir heimamenn Verður ekkert mikið úr því, endar í innkasti
65. mín
DAUÐAFÆRI FYRIR ÍBV Vicente tekur aukaspyrnu vinstra megin á vængnum, ég sé ekki svo hver á skotið, en Viktor Freyr ver frábærlega yfir!!

63. mín
Fram fær horn Haraldur sendir stutt á Fred sem í kjölfarið sendir til baka á Harald, sem reynir krossið en boltinn fer af varnarmanni útaf og Fram fær annað horn.

Fred tekur það en nær ekki að koma honum á sóknarmann þar sem hann svífur útaf
59. mín
Inn:Jakob Byström (Fram) Út:Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
58. mín
Inn:Liam Daði Jeffs (ÍBV) Út:Sesar Örn Harðarson (ÍBV)
Þreföld skipting hjá Eyjamönnum
58. mín
Inn:Halldór Jón Sigurður Þórðarson (ÍBV) Út:Viggó Valgeirsson (ÍBV)
58. mín
Inn:Vicente Valor (ÍBV) Út:Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
56. mín
Heldur betur búið að bæta í rigninguna! Nú fara menn ábyggilega að renna
55. mín
Arnór Ingi er kominn á vinstri væng, reynir sendinguna inn en hún er slök og Fred hreinsar
52. mín
Fram fær aukaspyrnu á hættulegum stað Slök spyrna frá Haraldi. Boltinn finnur hvorki koll né fót og fer útaf.
49. mín MARK!
Þorri Stefán Þorbjörnsson (Fram)
3-0!!!! Þorri fær boltann eftir slaka hreinsun og svoleiðis þrumar honum inn! Ég sé ekki fyrir mér að ÍBV nái að breyta gangi leiksins ef ég á að segja eins og er!
47. mín
Heimamenn fá horn Boltinn fer af Milan Jezdemirovic og út í annað horn.

Munaði litlu þarna! Marcel slær honum yfir og við fáum þriðja hornið!
46. mín
Við erum byrjuð aftur! Engar breytingar hjá báðum liðum.
45. mín
Tölfræði fyrri hálfleiks (frá Sýn)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marktilraunir: 6-4
Á mark: 2-1
Með boltann: 53% - 47%
Heppnaðar sendingar: 191-155
45. mín
XB

Rúnar Kristins og stúkan hristist!
Einar Þorsteins og knatthúsið rís!
Setjum X við B í borginni
https://framsoknrvk.is/

Það munar um 800 milljónir

- Auglýsing -
45. mín
Hálfleikur
+2 Framarar búnir að vera með yfirhöndina nær allan leikinn! Spennandi sjá hvernig leikurinn mun þróast í seinni!
45. mín
+1 Dómarinn bætir 2 mínútum við
43. mín
Róbert Elís tekur aukaspyrnu sem virðist ætla ógna en Fram hreinsar í horn.

Enn og aftur er Viktor fyrsti maður mættur og kýlir boltanum frá!
42. mín
Fram fær horn Fred þrumar boltanum í teig en svífur í fallegum boga út fyrir endalínu og endar í markspyrnu
38. mín
Vuk með skot sem ógnar Vuk fær boltann frá Fred og hleypur upp helming ÍBV og tekur skotið sem fer rétt framhjá!
34. mín
Gestirnir fá horn Viktor kýlir aftur frá
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín MARK!
Atli Þór Jónasson (Fram)
Stoðsending: Fred Saraiva
2-0!!!!!! Fred fær boltann á hægri vængnum, sendir á Vuk sem kemur honum aftur á Fred.

Fred sendir svo frábæran bolta inn í teig og þar er Atli réttur maður á réttum stað og nær góðu skoti inn!!
28. mín
Mikill darraðardans í teig Fram! Sesar með skot sem virðist fara í hendi varnarmanns, Eyjamenn skjóta síðan og boltinn fellur til jarðar sem er síðan hreinsaður í horn!

Viktor kýlir boltann burt en Eyjamenn ná að komast aftur á góðan stað en skjóta laflausu skoti beint á Viktor
26. mín
Atli með gott hlaup vinstra megin, snýr sér og sendir hann á Ægi. Hann tekur skotið en boltinn fer yfir grindverkið og út í á!
23. mín
Atli fiskar aukaspyrnu á vinstri vængnum. Haraldur nær frábærum boltann inn sem ratar beint á hausinn hans þorra og boltinn virðist frá mínu sjónarhorni fara rétt yfir samskeytin!
20. mín
Framarar vilja aukaspyrnu vinstra megin á teig ÍBV en fá hana ekki, menn eru ósáttir í stúkunni.
13. mín
Smá töf hér, netið á marki ÍBV búið að rifna sýnist mér. Menn eru mættir með tröppurnar að laga þetta!

Búið að laga þetta! Game on!
11. mín MARK!
Atli Þór Jónasson (Fram)
FRAM LEIÐIR!! Klaufalegur varnarleikur hjá ÍBV, Edeland skallar hann upp, Marcel hleypur að boltanum en Atli tekur hann snyrtilega framhjá og slúttar þessu frábærlega í vinstra hornið!
7. mín
Vuk liggur niðri eftir að Edeland straujar hann niður, Vuk fljótur að standa upp samt
5. mín
Annað horn fyrir heimamenn eftir að Fred sýnir flotta takta, hann tekur hornið.

Sendir stutt, fær boltann til baka og reynir spyrnuna inn en hann fer út fyrir
3. mín
Heimamenn fá horn eftir fína sókn Allt verður fyrir ekkert, Fred reynir einhverja takta og sendingu í teig en Eyjamenn hreinsa
2. mín
Boltinn rennur heilmikið til, Eyjamenn búnir að eiga tvær sendingar fram á völl sem hafa lent útaf
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir hefja leik
Fyrir leik
Liðin komin út á völl, þetta er að hefjast!
Fyrir leik
9° hér á Lambhagavellinum, svolítill suddi og vindur, alvöru Íslenzkt Fótboltaveður hér! Þetta verður veisla!

Liðin að hita upp og rúmar 25 í leik!
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, gerir eina breytingu á sínu liði frá tapinu gegn Þór á Akureyri. Fred Saraiva kemur inn á miðsvæðið fyrir Frey Sigurðsson sem sest á bekkinn. Fred kom inn á í hálfleik gegn Þór og olli talsverðum usla. Hann byrjar sinn fyrsta leik á tímabilinu í dag.

Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, snýr til baka úr leikbanni og hann gerir þrjár breytingar frá tapinu stóra gegn KR. Sesar Örn Harðarson (2006) kemur inn ásamt þeim Milan Jezdemirovic og Róberti Elís Hlynssyni. Sesar kom inn á gegn KR og skoraði seinna mark ÍBV í leiknum. Sesar byrjar í dag sinn fyrsta leik í Bestu deildinni en hann kom frá Selfossi í vetur. Róbert er lánsmaður frá KR og var því ekki með í síðasta leik. Þeir Arnar Breki Gunnarsson, Vicente Valor og Pisco taka sér sæti á bekknum. Það vekur athygli að serbneski framherjinn Filip Stuparevic er ekki í hóp og Emil Gautason (2010) kemur inn á bekkinn.
Fyrir leik
Dómaramál Ívar Orri Kristjánsson mun vera á flautunni í kvöld og honum til aðstoðar verða Birkir Sigurðarson og Arnþór Helgi Gíslason.

Fjórði dómari er Gunnar Oddur Hafliðason og eftirlitsmaður er Ólafur Ingi Guðmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Spá fyrir leik Stefán Þór Pálsson, leikmaður ÍR, spáði í spilin fyrir 4. umferð í Bestu Deild og hafði þetta að segja um slaginn í Dal draumanna.

Fram 2-1 ÍBV (18:00 á morgun)
Framararnir klára þennan leik 2-1. Róbert Elís skorar mark ÍBV

Fyrir leik
Eyjamenn fá Sturlu til ÍBV Sturla Sagatun Kristjánsson hefur fengið félagaskipti í ÍBV en hann kemur frá Bodö/Glimt. Sturla er miðjumaður sem hefur spilað með U19 liði Bodö/Glimt. Hann á að baki einn leik með aðalliði Bodö/Glimt, lék gegn Brönnöysund í norska bikarnum snemma árs 2024.


Fyrir leik
Magnús Ingi á förum? Þær fréttir bárust að Magnús Ingi, leikmaður Fram, vill fara frá félaginu, en Magnús var ekki í leikmannahópi Fram gegn Þór á fimmtudag eftir að hafa spilað rúmlega stundarfjórðung sem varamaður í bæði fyrstu og annari umferð.

Spurning hvort hann verði með í dag.


Fyrir leik
Nákvæmlega þessi viðureign átti sér stað í Bestu Deild kvenna laugardaginn var, en þar mættust þessi lið á Lambhagavellinum og fóru leikar 3-4 fyrir ÍBV. Spurning hvort við fáum jafn mikinn markaleik í dag!

Lestu um leikinn!
Fyrir leik
Seinasta umferð Seinasta umferð var ekki upp á marga fiska hjá báðum liðum. Fram tapaði sínum leik á VÍS-vellinum gegn Þór á Akureyri 1-0, á meðan ÍBV tapaði stórt heima gegn KR 2-6.
Fyrir leik
Gott kvöld kæru lesendur og verið velkomin á þráðbeina textalýsingu frá Lambhagavellinum í Úlfarsárdal þar sem Fram tekur á móti ÍBV!

mánudagur 27. apríl

Besta karla
17:30 Fram-ÍBV (Lambhagavöllurinn)
18:00 KR-FH (Meistaravellir)
19:15 Breiðablik-Þór (Kópavogsvöllur)
19:15 Víkingur R.-ÍA (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
Byrjunarlið:
1. Marcel Zapytowski (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon (f)
4. Mattias Edeland
6. Milan Tomic ('79)
7. Sesar Örn Harðarson ('58)
8. Bjarki Björn Gunnarsson ('58)
10. Viggó Valgeirsson ('58)
16. Milan Jezdemirovic
23. Arnór Ingi Kristinsson ('77)
26. Felix Örn Friðriksson
27. Róbert Elís Hlynsson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
9. Liam Daði Jeffs ('58)
14. Arnar Breki Gunnarsson ('77)
17. Emil Gautason
22. Eiður Atli Rúnarsson ('79)
28. Heiðmar Þór Magnússon
30. Vicente Valor ('58)
42. Pisco
80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson ('58)

Liðsstjórn:
Aleksandar Linta (Þ)
Óskar Elías Zoega Óskarsson
Elías J Friðriksson
Elías Árni Jónsson
Filipe Andre Alexandre Machado
Jakob Fannar Möller

Gul spjöld:

Rauð spjöld: