Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
Besta kvenna
Þróttur R.
19:15 0
0
FH
Besta kvenna
Gri/Nja
62' 1
1
Þór/KA
Þróttur R.
0
0
FH
30.04.2026  -  19:15
AVIS völlurinn
Besta kvenna
Dómari: Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson
Byrjunarlið:
1. Mollee Swift (m)
3. Mist Funadóttir
5. Jelena Tinna Kujundzic
8. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (f)
14. Alexia Marin Czerwien
16. María Eva Eyjólfsdóttir
21. Kayla Marie Rollins
22. Sigríður Theód. Guðmundsdóttir
23. Sæunn Björnsdóttir
26. Þórdís Elva Ágústsdóttir
27. Unnur Dóra Bergsdóttir
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
20. Hafdís Hafsteinsdóttir (m)
2. Sóley María Steinarsdóttir
6. Rósey Björgvinsdóttir
7. Brynja Rán Knudsen
11. Hekla Dögg Ingvarsdóttir
12. Madison Jeanne Ditta
17. Kristrún Ýr Holm
18. Kristrún Rut Antonsdóttir
19. Þórdís Nanna Ágústsdóttir

Liðsstjórn:
Jóhann Kristinn Gunnarsson (Þ)
Guðrún Þóra Elfar
Þórkatla María Halldórsdóttir
Freyja Karín Þorvarðardóttir
Sara Ó. Þrúðmarsdóttir Finnsson
Gísli Þór Einarsson
Orri Sigurjónsson
Björg Gunnlaugsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár! Þróttur
Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þróttar gerir 1x breytingu á sínu liði.
Sigríður Theódóra kemur inn í byrjunarliðið og Madison Jeanne Ditta tekur sæti á bekknum.

FH
Bræðurnir Guðni og Hlynur gera 3x breytingar á liði FH frá því í síðasta leik.
Berglind Freyja, Jónína Linnet og Ingibjörg Magnúsdóttir koma inn í liðið en Anna Heiða, Andrea Rán og Hafrún Birna setjast á bekkinn.
Fyrir leik
Fyrri viðureignir liðanna Það eru alltaf hörkuleikir þegar þessi 2 lið mætast

Liðin mættust síðast í lengjubikarnum 21. febrúar sl. Þar sem Þróttur fór með 3-2 sigur af hólmi.

Þá mættust liðin þrívegis í Bestu deildinni síðasta sumar þar sem FH fór tvisvar með sigur af hólmi bæði skiptin á heimavelli, annars vegar 4-0 og hins vegar 3-0.

Þróttur hins vegar vann 4-1 í fyrsta leik liðanna á sínu heimavelli.

Þetta vonandi gefur fyrirheit um skemmtilegan leik í kvöld!

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
FH FH konur sitja fyrir leikinn í 6. sæti með eitt stig líkt og Þór/KA í 7. sætinu.

Eftir stórmeistara 1-1 jafntefli fyrir norðan í fyrstu umferðinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH seldi þrjá leikmenn út á síðasta tímabili og hafa fengið inn 4 leikmenn fyrir komandi átök.

Komnar
Mackenzie Smtih frá Fram
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir frá Haukum
Nia Christopher frá Bandaríkjunum
Helena Errington frá Bandaríkjunum

Farnar
Thelma Karen Pálmadóttir í Häcken
Arna Eiríksdóttir í Vålerenga
Elísa Lana Sigurjónsdóttir til Kristianstad
Maya Hansen
Macy Elizabeth Enneking
Margrét Brynja Kristinsdóttir í Val
Valgerður Ósk Valsdóttir í Hauka
Harpa Helgadóttir í Fram (lán)


Fyrir leik
Þróttur Þróttur sitja eins og staðan er núna í 10. og síðast sæti deildarinnar án stiga. Líkt og Grindavík/Njarðvík og Fram í 9. og 8. sæti.

Þær mættu ríkjandi íslandsmeisturum Breiðabliks í fyrstu umferðinni og töpuðu þar 2-0.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur er líklega liðið sem hefur breyst hvað minnst frá því á síðasta tímabili en þær hafa þó misst stóran póst á miðjunni en Katie Cousins hélt til Portúgals eftir tímabilið.

Komnar
Maddie Ditta frá Bandaríkjunum
Björg Gunnlaugsdóttir frá FHL
Rósey Björgvinsdóttir frá FHL
Lexi Czerwien frá FHL
Kristrún Ýr Holm frá Keflavík

Farnar
Lea Björt Kristjánsdóttir í Grindavík/Njarðvík
Katie Cousins til Portúgals
Sierra Lelii hætt
Klara Mist Karlsdóttir í HK á láni


Fyrir leik
Katrín Ásbjörns spáir í 2. umferð Fyrrum markahrókurinn Katrín Ásbjörnsdóttir spáir í leikina. Hún spáir naumum sigri heimakvenna í Þrótti.

Þróttur R. 2 - 1 FH
Sterkur heimasigur hjá Þrótti a móti mjög svo góðu liði FH. Öll mörkin koma i seinni hálfleik. Kayla kemur Þrótturum í 1-0 með skalla eftir horn eða fyrirgjöf og Þórdís Elva kemur með eina sleggju fyrir utan teig. FH nær að troða einu marki rétt fyrir leikslok frá Ídu.

   29.04.2026 12:00
Katrín Ásbjörns spáir í 2. umferð Bestu kvenna
Fyrir leik
2. umferðin Tveir leikir eru á dagskrá í kvöld, Grindavík/Njarðvík taka á móti Þór/KA klukkan 17:30 og svo stórleikur Þróttar og FH

Í gær:
Breiðablik - Fram 2-0
Stjarnan - Valur 2-0

Í dag:
Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 17:30
Þróttur - FH 19:15

Föstudagur (á morgun):
ÍBV - Víkingur R. 13:00

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins Á flautunni í dag verður Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson og honum til halds og trausts verða Tijana Krstic og Nour Natan Ninir aðstoðardómarar.

Eftirlitsmaður er Jóhann Gunnarsson og fjórði dómari í kvöld er Ronnarong Wongmahadthai

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta deildin kallar Heil og sæl kæru lesendur!

Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá AVIS vellinum þar sem Þróttur tekur á móti FH í 2. umferð Bestu deildarinnar

Leikurinn hefst á slaginu 19:15!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir
5. Mackenzie Elyze Smith
6. Katla María Þórðardóttir (f)
7. Nia Raisa Christopher
9. Berglind Freyja Hlynsdóttir
10. Ída Marín Hermannsdóttir
11. Thelma Lóa Hermannsdóttir
13. Deja Jaylyn Sandoval
37. Jónína Linnet
41. Ingibjörg Magnúsdóttir
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Steinunn Erna Birkisdóttir (m)
3. Anna Heiða Óskarsdóttir
8. Helena Maree Errington
15. Hrönn Haraldsdóttir
23. Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir
29. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
36. Unnur Thorarensen Skúladóttir
39. Eva Marín Sæþórsdóttir
42. Hafrún Birna Helgadóttir

Liðsstjórn:
Guðni Eiríksson (Þ)
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Hjörtur Hinriksson
Dagur Óli Davíðsson
Brynjar Sigþórsson
Harpa Finnsdóttir
Valur Elli Valsson
Arnar Sigþórsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: