Önnur umferð Bestu deildar kvenna hefst í kvöld með tveimur áhugaverðum leikjum. Fyrrum markahrókurinn Katrín Ásbjörnsdóttir spáir í leikina og spurning hvort hún geri betur en Arna Eiríksdóttir sem var með tvo rétta í fyrstu umferðinni.
Við á Fótbolta.net erum með hlaðvarpið Uppbótartímann fyrir kvennaboltann og er hægt að hlusta á fyrsta þátt þessa tímabils í spilaranum neðst í fréttinni og á öllum hlaðvarpsveitum.
Við á Fótbolta.net erum með hlaðvarpið Uppbótartímann fyrir kvennaboltann og er hægt að hlusta á fyrsta þátt þessa tímabils í spilaranum neðst í fréttinni og á öllum hlaðvarpsveitum.
Breiðablik 4 - 0 Fram (19:15 í kvöld)
Afar erfitt verkefni fyrir Framara að mæta í Kópavoginn. Blikastelpur taka þetta mjög svo sannfærandi með tveimur mörkum frá Ásu og ég spái því að Agla María reimi markaskóna á sig og bæti við öðrum tveimur. Ef Bryndís Arna fær fleiri mínútur í þessum leik en á móti Þrótti þá er hún mjöööög líkleg til að opna markareikninginn í þessari viðureign. Þá endar það 5-0 og með alvöru fagni frá BAN10.
Stjarnan 2 - 1 Valur (19:15 í kvöld)
Stjarnan vinnur mikilvægan leik á móti Val. Anna María Baldurs ætlar að setja eitt skriðtæklumark eftir horn. Valur jafnar með marki frá Ísabellu Söru en stjarnan kemst yfir með neglu frá Úlfu Dís og mun hún koma sér á blað fyrir sumarið, mikilvægt fyrir hana og stjörnuna.
Grindavík/Njarðvík 1 - 1 Þór/KA (17:30 á morgun)
Ætla að setja varnarjaxlana og reynsluboltana Nathösu og Örnu Sif sem markaskorara fyrir sín lið. Bæði mörk koma eftir föst leikatriði og þær eiga báðar eftir að enda með gult spjald. Munum sjá mikla baráttu í þessum leik enda eru landsbyggðarlið að mætast i alvöru slag.
Þróttur R. 2 - 1 FH (19:15 á morgun)
Sterkur heimasigur hjá Þrótti a móti mjög svo góðu liði FH. Öll mörkin koma i seinni hálfleik. Kayla kemur Þrótturum í 1-0 með skalla eftir horn eða fyrirgjöf og Þórdís Elva kemur með eina sleggju fyrir utan teig. FH nær að troða einu marki rétt fyrir leikslok frá Ídu.
ÍBV 1 - 4 Víkingur R. (13:00 á föstudag)
Jasmín verður allt í öllu í liði Víkinga. Hún nennir, ég skal sko segja ykkur það og hendir í góð tvö mörk og assist. Freyja setur eitt og Bergrós fjórða markið. IBV stelpur ná inn einu marki i leiknum frá Allison Lowrey. 3 stig heim í hamingjuna og Jasmín er hamingjusöm.



