Þór
0
0
KA

02.05.2026 - 16:00
VÍS völlurinn
Besta karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
VÍS völlurinn
Besta karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Byrjunarlið:
Varamenn:
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Fyrir leik
1. ágúst 2002
Dagsetning síðasta heimaleiks Þórs gegn KA í efstu deild í knattspyrnu. Tæp 24 ár hafa liðið síðan þá og þó nokkrir leikmenn beggja liða ekki fæddir og Fótbolti.net á sínu fyrsta sumri.
Leiknum lauk þá með 1-0 sigri KA sem á þessum árum var þjálfað og Þorvaldi Örlygssyni nú formanni KSÍ. Fjölmargar kanónur var að finna í báðum liðum og nöfn eins og Jóhann Þórhallsson (Þór) Dean Martin (KA) Páll Viðar Gíslason (Þór) og Steingrímur Eiðsson (KA) eru flestum sem uppi voru á þessum tíma vel kunn.
Páll Viðar er ákveðinn samnefnari um Þórsara

Gísli Gotti spáir
Gísli Gottskálk Þórðarson, efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar árið 2024, spáir í leikina sem eru framundan í deild þeirra bestu. Hann leikur í dag með Lech Poznan í Póllandi.
Þór 1 - 2 KA
Sturlaður leikur og held ég algjört 50/50 en ætla setja traustið á Djuric, maður þekkir hvað hann getur í bolta og hann tryggir fyrsta sigur KA manna. Ágúst Hlyns verður samt maður leiksins.

Það gekk illa að velja sameiginlegt byrjunarlið. Svo mjög reyndar að Haraldur Örn fréttaritari Fótbolta.net og KA maður gagnrýndi skóla á Akureyri....... sem hann sjálfur gekk í...... sem reyndar útskýrir mjög margt ef út í það er farið.
Eru grunnskólar í þorpinu bara leikskólar fyrir eldri krakka? Þvílík veruleikafyrring https://t.co/y3NKuBW9Jj
— Öddi (@haraldur_orn) May 1, 2026
Fyrir leik
Dómarar og fylgifiskar
Það er farið í efstu hillu fyrir leik dagsins. Ívar Orri Kristjánsson sér um að dæma leikinn í dag. Birkir Sigurðarson og Guðmundur Ingi Bjarnason eru honum til aðstoðar svo. Gunnar Oddur Hafliðason fær það hlutverk að vera fjórði dómari. Bragi Bergmann fullkomnar svo teymið sem eftirlitsmaður KSÍ á þessum leik.
Fyrst Bragi er þarna, þessi leikur væri eflaust fullkominn fyrir dómara að vera með hljóðnema á sér.

Uppselt á leikinn
Ef þú ætlaðir þér að skella þér á völlinn og ert enn miðalaus þá er það vesen. Uppselt er á leikinn eins og eðlilegt er þegar þessi lið mætast.

Spenna hjá Sigga Höskulds
Sigurður Höskuldsson þjálfari Þórs fór ekki leynt með að hann væri spenntur fyrir leiknum er hann var til viðtals eftir leik gegn Breiðablik í síðustu umferð.
„Ég er rosalega spenntur, bæði lið að koma úr erfiðu tapi. Þannig það verður blóð á tönnunum hjá báðum liðum held ég. Þetta er ein mest spennandi leikur sem ég hef tekið þátt í þannig ég er mjög spenntur."

Haddi vill fá svar frá sínum leikmönnum
Hallgrímur Jónasson var ómyrkur í máli eftir 2-1 tap KA á heimavelli gegn Keflavík á dögunum. Ósáttur er hreinlega ekki nægjanlega sterkt lýsingarorð til þess að skýra frá skoðun hans á frammistöðu leikmanna sinna.
„Nei það er 'attitude'. Þú getur verið góður í fótbolta og æft uppspilið og taktík og allt það, en ef grunnurinn er ekki í lagi þá vinnur þú ekki fótboltaleiki. Keflavík var með það í lagi í dag og ég veit ekki hvort við héldum að við myndum rúlla yfir þá því þegar við fáum mark á okkur þá höfðum við fengið aðvaranir áður. Staðan er 1-1 og maður vill bara sjá betra 'attitude'. Við þurfum að átta okkur á því í KA og í seinni hálfleik er gjörsamleg þögn þegar staðan er 1-1 á heimavelli svo í lokin þegar við setjum Keflavík undir pressu síðustu tuttugu mínúturnar þá finnur maður smá orku og fá fólkið í stúkunni með, en þetta er ekki það sem fólkið í stúkunni vill sjá og við erum ekki ánægðir með frammistöðuna.“
Varnarvinnan í liðinu er ekki nógu góð og við þurfum að átta okkur á því að fyrsta kemur hugarfarið og svo getum við talað um annað. Það þýðir ekki að tala um það að KA muni hrökkva í gang af því bara. Við erum neðstir í töflunni með eitt stig og áttum ekkert meira skilið í dag og menn þurfa bara að átta sig á því. Mér er alveg sama hvað þú ert góður en ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilaru ekki í KA.

Ólíkt gengi liðanna það sem af er
Stigasöfnun hefur farið misvel af stað fyrir Akureyrarliðin þetta vorið. Heimamenn í Þór hafa sótt alls 6 stig í fyrstu fjórum leikjum sínum með sigrum á Val og Fram. Stór töp gegn KR og Breiðablik hafa komið á milli sigurleikja og markatala liðsins er 5-10. Taktur liðsins er þó þannig að sigur hefur unnist í öðrum hverjum leik og verði það áfram niðurstaðan verður gleði og glens í Þorpinu í kvöld.
Eitt stig er uppskera KA það sem af er móti. Liðið hefur tapað öllum þremur heimaleikjum sínum það sem af er og sótt þetta eina stig sitt á útivelli í Akraneshöllinni, markatalan 4-8