Leik lokið!
Skagamenn vinna sinn fyrsta leik í deildinni á þessu ári. Einbeytingaleysi hjá heimamönnum sem gaf Skagamönnum sigur markið.

94. mín
Bjargað á línu!
Stjörnumenn með horn og boltinn dettur fyrir Emil en teigurinn er svo fjölmennur að hann endar á að skjóta í varnarmann á línunni. Stjörnumenn fá annað horn og það skapast hætta úr því en boltinn vill ekki inn.
93. mín
InnErik Tobias Tangen Sandberg
ÚtGuðmundur Þórarinsson
91. mín
Danni Finns reynir skotið beint úr aukaspyrnu. Boltinn fer af varnarveggnum og endar svo í lúkunum á Árna.
91. mín
Uppbótartími er að minnsta kosti fjórar mínútur.
91. mín
InnÍsak Máni Guðjónsson
ÚtMarkús Páll Ellertsson
90. mín
Andri fær hendina á varnarmanni í andlitið og Gunnar Oddur tekur sér smá tíma að hugsa áður en hann dæmir. Allir ósáttir við þennan dóm þar sem Stjörnumenn vilja spjald og Skagamönnum fannst þetta ekki neitt.
87. mín
Viktor þarf þá bara að hlaupa restina af leiðinni með boltann og koma honum yfir línuna sem hann gerir.

Eru Skagamenn að vinna þetta hér?
Viktor Jónsson
Skagamenn dúndra boltanum fram og af einhverri ástæðu er bara enginn Stjörnumaður í vörn. Árni Snær kemur þá lengst út úr markinu til að mæta Viktori, en Viktor fer framhjá honum næstum því við miðlínu.Viktor þarf þá bara að hlaupa restina af leiðinni með boltann og koma honum yfir línuna sem hann gerir.

86. mín
Þá skjóta Skagamenn yfir
Gummi Tóta fær boltann á enda teigsins og lætur vaða en þetta skot var ekki gott og fyrir markið.
84. mín
Slakt skot
Dankerlui kominn í mjög góða stöðu inn í teig en skotið hans fer hátt yfir markið.
83. mín
Bjargað á línu!
Skagamenn geysast upp í skyndisókn og Markús nær að pota boltanum framhjá Árna Snæ. Hann er þá bara að fara hlaupa með boltann í markið en Bjarki Hauks gerir stórkostlega í að stökkva á boltann og hreinsa!
82. mín
Andri í færi!
Vall missir boltann í öftustu línu eftir góða pressu hjá Emil. Emil leggur hann á Andra sem á skot en frámhjá.
78. mín
InnBjarki Hauksson
ÚtHeiðar Ægisson
Aðeins 10 mínútur hjá Heiðari
78. mín
InnGabríel Snær Gunnarsson
ÚtGísli Laxdal Unnarsson
78. mín
InnDamil Serena Dankerlui
ÚtGuðmundur Kristjánsson
73. mín
Jón Gísli reynir skotið úr mjög þröngu færi. Árni Snær ekki miklum vandræðum með að verja þetta.
69. mín
Turay rennur þegar hann er að taka á móti boltanum í eigin teig og stúkan er handviss um að boltinn fari í hendina á honu og vilja því auðvitað víti. Ég sá þetta illa þannig ég get ekki sagt til.
68. mín
InnHaukur Örn Brink
ÚtBirnir Snær Ingason
68. mín
InnHeiðar Ægisson
ÚtJóhann Árni Gunnarsson
67. mín
Flottur bolti inn á teig hjá Benedikt en Emil er hársbreidd frá því að komast i þennan bolta. Hefði verið frábært færi fyrir hann ef hann hefði komist í hann.
61. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtÖrvar Eggertsson
58. mín

Skagamenn jafna!
Markús Páll Ellertsson
Markús er í rosalega miklu plássi úti vinstra megin. Haukur finnur hann þar og Markús klárar þetta mjög snyrtilega.
55. mín
Stjörnumenn í hörku færi!
Birnir kemur með frábæra sendingu inn á teig þar sem Guðmundur Baldvin ætlar að koma boltanum fyrir Benedikt Warén. Skagamenn gera hins vegar vel og komast inn í þá sendingu.
50. mín
Jón Gísli renndi boltanum stutt á Gísla Laxdal sem reyndir fyrirgjöfina en í varnarmann og Skagamenn fá horn.
Gummi Tóta tók hornið en Stjörnumenn hreinsa frá.
Gummi Tóta tók hornið en Stjörnumenn hreinsa frá.
49. mín
Gult spjald
Benedikt V. Warén
Skagamenn fá aukaspyrnu í fínni fyrirgjafastöðu47. mín
Emil í dauðafæri!
Skagamenn gera mistök í öftustu línu og gefa boltann frá sér. Þá er Emil kominn einn gegn Árna Marinó en er ekki nógu góðu jafnvægi og skotið því slakt.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn
45. mín
Hálfleikstölfræði (Sýn)
Marktilraunir: 7-8
Skot á mark: 4-3
Með boltann: 39% - 61%
Heppnaðar sendingar: 137-241
Rangstöður: 0-1
Skot á mark: 4-3
Með boltann: 39% - 61%
Heppnaðar sendingar: 137-241
Rangstöður: 0-1
45. mín
Í hálfleik þá er tilvalið að kynna sér framboð Framsóknar í Garðabæ og áherslur þess en Hlynur Bæringsson, oddviti listans, leggur til að hækka hvatapeninga til íþrótta og tómstundaiðkunar barna og ungmenna upp í 100 þ kr.
Hér er frábær grein um málið
- Auglýsing -

Innkastið verður í beinni útsendingu á X977 í kvöld sunnudag klukkan 21:00 en þar verða leikir fimmtu umferðar Bestu deildarinnar gerðir upp.
Þetta verður í fyrsta sinn sem hlaðvarpsþátturinn Innkastið verður sendur út í beinni útsendingu Stefnan er sú að þátturinn verði framvegis af og til í beinni útvarpsútsendingu á X-inu, þegar vel liggur á. Það verður þá auglýst sérstaklega hér á síðunni.
Í hljóðveri verða Elvar Geir Magnússon og Valur Gunnarsson. Sérstakur gestur er Almarr Ormarsson.
Innkastið verður í beinni á X977 í kvöld klukkan 21

Innkastið verður í beinni útsendingu á X977 í kvöld sunnudag klukkan 21:00 en þar verða leikir fimmtu umferðar Bestu deildarinnar gerðir upp.
Þetta verður í fyrsta sinn sem hlaðvarpsþátturinn Innkastið verður sendur út í beinni útsendingu Stefnan er sú að þátturinn verði framvegis af og til í beinni útvarpsútsendingu á X-inu, þegar vel liggur á. Það verður þá auglýst sérstaklega hér á síðunni.
Í hljóðveri verða Elvar Geir Magnússon og Valur Gunnarsson. Sérstakur gestur er Almarr Ormarsson.
45. mín
Hálfleikur
Stjarnan leiðir í hálfleik, en það hefur verið kraftur í gestunum. Getur enn allt gerst í seinni.
45. mín
+2
Birnir reynir skotið fyrir utan teig, fínt skot en Árni ver vel.
45. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti tvær mínútur
44. mín
Örvar situr í grasinu eitthvað að kveina sér. Gunnar Oddur stoppar leikinn en Örvar hristir þetta af sér og heldur áfram.
41. mín
Vel varið!
Birnir með flotta fyrirgjöf inn í teig og Emil nær skallanum á markið. Árni Marinó stekkur eins og köttur og nær að verja þetta.
40. mín
Daníel Finns reynir skotið fyrir utan teig en þetta var mjög hátt yfir.
38. mín
Rétt framhjá!
Skagamenn í góðri sókn og þeir koma boltanum inn á teig. Þar er Gísli Laxdal, hann tekur einn snúning með boltann og skýtur svo, ekki fast og boltinn rúllar rólega rétt framhjá stönginni.
37. mín
Aðeins róast á leiknum, boltinn frekar fastur á miðjunni og kemst ekki nægilega nálægt marki.
31. mín
Árni Snær lendir næstum í smá veseni. Jón Gísli kemur með fastan bolta fyrir en boltinn stefnir bara á markið. Árni þarf þá að vera fljótur að hugsa og beina boltanum aftur fyrir markið.
28. mín
Skagamenn með nokkur veik köll um vítaspyrnu. Markús Páll er bara undir í baráttunni við Gumma Kri inn í teig.
23. mín
Markús Páll með flotta hreyfingu og nær að búa til pláss til að koma sér í skotið. En skýtur svo beint í varnarmann.
18. mín
brahim Turay með hörkuskot úr D-boganum sem Árni slær yfir markið.
17. mín
Benedikt aftur að komast í vænlega stöðu en Böðvar kemur boltanum frá. Stjarnan fær horn.
16. mín
Mikil orrahríð að marki Stjörnunar sem henda sér fyrir hvert skotið af fætur öðru.
Kraftur í liði ÍA þessa stundina.
Kraftur í liði ÍA þessa stundina.
14. mín
Skagamenn fá hornspyrnu.
Klessuhorn, boltinn á milli manna en flýgur að lokum yfir þverslánna í annað horn.
Klessuhorn, boltinn á milli manna en flýgur að lokum yfir þverslánna í annað horn.
12. mín
Stjarnan fær fyrstu hornspyrnu sína í leiknum.
10. mín

MARK!
Benedikt V. Warén
Stjörnumenn vinna boltann á miðjum vellinum og færa hann hratt út til vinstri. Benedikt leikur inn á völlinn og snýr boltann glæsilega í hornið fjær framhjá Árna Marinó í marki ÍA.
9. mín
Birnir Snær með boltann við teiginn úti til vinstri. Leikur inn á völlinn og reynir skot en snýr boltann framhjá stönginni fjær.
6. mín
Gísli Laxdal með frábæran bolta inn á teiginn frá hægri. Markús Páll lætur boltann fara á Ómar sem er í hörkufæri en skot hans afar kraftlaust og Árni ver.
Ómar Björn!
Gísli Laxdal með frábæran bolta inn á teiginn frá hægri. Markús Páll lætur boltann fara á Ómar sem er í hörkufæri en skot hans afar kraftlaust og Árni ver.
5. mín
Sendi hugheilar kveðjur á KA manninn Harald Örn sem er vonandi kominn langleiðina til Reykjavíkur frá Akureyri eftir leik Þórs og KA í gær. Hann tók vel á því við að fagna sigri og er eflaust heldur grár á að líta. Hann á að vera að skrifa hér um þennan leik og er vonandi væntanlegur á næstu mínútum.
En ef ekki var tilefni fyrir KA menn að fagna rækilega í gær hvenær þá?
En ef ekki var tilefni fyrir KA menn að fagna rækilega í gær hvenær þá?
4. mín
Aftur Markús Páll. Með boltann vinstra megin í teignum og nær skoti sem Árni ver, frákastið til Gísla Laxdal sem reynir skotið en varnarmenn á línunni koma boltanum frá.
Stórhætta í teig Stjörnunar
Aftur Markús Páll. Með boltann vinstra megin í teignum og nær skoti sem Árni ver, frákastið til Gísla Laxdal sem reynir skotið en varnarmenn á línunni koma boltanum frá.
3. mín
Ómar Björn með ágæta sendingu inn á teig Stjörnunar frá vinstri. Markús Páll í baráttunni um boltann en nær ekki valdi á honum og fer boltinn í fang Árna.
1. mín
Leikur hafinn
Gunnar Oddur blæs þetta af stað. Gestirnir frá Akranesi byrja hér með boltann.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar gerir eina breytingu frá leiknum gegn Val. Emil Atlason kemur inn í liðið og Andri Rúnar Bjarnason tekur sér sæti á bekknum. Á bekknum hjá Stjörnunni eru tveir kornungir leikmenn, þeir 35. Bjarki Friðjón Sæmundsson (2010) og Arnar Breki Björnsson (2011).
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gerir enga breytingu frá leiknum gegn Víkingi. ÍA er með nýjan varamarkvörð því Logi Mar Hjaltested var lánaður í Kára og inn á bekkinn kemur Isak Theodor Eidem (2009). Gísli Eyjólfsson, Steinar Þorsteinsson og Rúnar Már Sigurjónsson eru áfram fjarverandi.

Gísli Gottskálk Þórðarson, efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar árið 2024, spáir í leikina sem eru framundan í deild þeirra bestu. Hann leikur í dag með Lech Poznan í Póllandi.
Stjarnan 2 - 1 ÍA
Þetta verður fínasti leikur. Biddi heldur áfram að delivera og kemur að báðum mörkunum og Stjarnan tekur 3 stig.

Gísli Gotti spáir

Gunnar Oddur Hafliðason er með flautuna á Samsung í kvöld. Hitaði vel upp sem fjórði dómari í leik Þórs og KA í gær og er klár í slaginn.
Honum til aðstoðar eru Kristján Már Ólafs og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Hreinn Magnússon er fjórði dómari og eftirlitsmaður KSÍ er svo Kristinn Jakobsson.

Dómarar

Það eru mörk í leikjum Stjörnunar það er klárt. Jökull Elísabetarson myndi samt eflaust þiggja að meirihluti þeirra væri skoraður af hans liði.
Eftir 2 góða 3-2 sigra í byrjun móts hefur hallað undan fæti hjá Garðbæingum. 3-2 tapi gegn Víkingum á útivelli var fylgt eftir með 4-2 tapi gegn Val á heimavelli og markatala Stjörnunar 10-11. Ekki beint vísbending um traustan og öruggan varnarleik þó sóknarlega hafi vissulega gengið betur.

Stjarnan

Skagamenn hefðu eflaust viljað meira af stigum eftir fjóra leiki en raunin er. 2 stig er uppskeran eftir jafntefli við Fram og KA og töp gegn Breiðablik og Víkingum.
Stóru nöfnin sem fengin voru til liðsins í vetur hafa ekki verið að sýna sitt rétta andlit og vonast Skagamenn eftir því að það breytist fljótt.

ÍA

Leikurinn átti upphaflega að fara fram á Elkemvellinum á Akranesi. Grasið þar er þó ekki alveg tilbúið og var því brugðið á það ráð að liðin skiptu á heimaleikjum.
Annað vandamál tók þá við en körfuboltalið Stjörnunar á einnig heimaleik í dag. Leiktíminn varð því fyrir valinu. Það verður allavega eitthvað að gera fyrir aðdáendur Stjörnunar í dag.
Heimaleikjum víxlað og mikið að gera í Garðabæ
Leikurinn átti upphaflega að fara fram á Elkemvellinum á Akranesi. Grasið þar er þó ekki alveg tilbúið og var því brugðið á það ráð að liðin skiptu á heimaleikjum.
Annað vandamál tók þá við en körfuboltalið Stjörnunar á einnig heimaleik í dag. Leiktíminn varð því fyrir valinu. Það verður allavega eitthvað að gera fyrir aðdáendur Stjörnunar í dag.
Fyrir leik
Samsungvöllurinn heilsar
Fótbolti.net er mættur á Samsungvöllinn í Garðabæ þar sem fram fer leikur Stjörnunar og ÍA í 5.umferð Bestu deildar karla.

sunnudagur 3. maí
16:00 ÍBV-Breiðablik (Hásteinsvöllur)
16:00 Stjarnan-ÍA (Samsungvöllurinn)
18:00 Keflavík-Víkingur R. (HS Orku völlurinn)
18:00 FH-Fram (Kaplakrikavöllur)

sunnudagur 3. maí
16:00 ÍBV-Breiðablik (Hásteinsvöllur)
16:00 Stjarnan-ÍA (Samsungvöllurinn)
18:00 Keflavík-Víkingur R. (HS Orku völlurinn)
18:00 FH-Fram (Kaplakrikavöllur)