Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 15:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Stjörnunnar og ÍA: Emil Atla kemur inn - 2011 módel á bekknum
Emil í liði Stjörnunnar.
Emil í liði Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lárus Orri breytir engu í byrjunarliðinu.
Lárus Orri breytir engu í byrjunarliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Breki er mikið efni.
Arnar Breki er mikið efni.
Mynd: Stjarnan
Klukkan 16:00 tekur Stjarnan á móti ÍA á Samsungvellinum. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á ELKEM vellinum á Akranesi en grasvöllurinn á Skaganum er ekki klár og ákváðu félögin að víxla á heimaleikjum og því er spilað í Garðabæ í dag.

Bæði lið töpuðu í síðustu umferð, ÍA gegn Víkingi og Stjarnan gegn Val. Stöðuna í deildinni má sjá neðst.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  0 ÍA

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar gerir eina breytingu frá leiknum gegn Val. Emil Atlason kemur inn í liðið og Andri Rúnar Bjarnason tekur sér sæti á bekknum. Á bekknum hjá Stjörnunni eru tveir kornungir leikmenn, þeir 35. Bjarki Friðjón Sæmundsson (2010) og Arnar Breki Björnsson (2011). Alex Þór Hauksson er áfram fjarverandi.

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gerir enga breytingu frá leiknum gegn Víkingi. ÍA er með nýjan varamarkvörð því Logi Mar Hjaltested var lánaður í Kára og inn á bekkinn kemur Isak Theodor Eidem (2009). Gísli Eyjólfsson, Steinar Þorsteinsson og Rúnar Már Sigurjónsson eru áfram fjarverandi.


Byrjunarlið Stjarnan:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
5. Guðmundur Kristjánsson (f)
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
11. Birnir Snær Ingason
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
19. Daníel Finns Matthíasson
21. Ibrahim Turay
22. Emil Atlason
23. Benedikt V. Warén

Byrjunarlið ÍA:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Johannes Vall
5. Baldvin Þór Berndsen
7. Haukur Andri Haraldsson
8. Guðmundur Þórarinsson
9. Viktor Jónsson
17. Gísli Laxdal Unnarsson
21. Böðvar Böðvarsson (f)
22. Ómar Björn Stefánsson
25. Markús Páll Ellertsson
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 5 5 0 0 22 - 9 +13 15
2.    Víkingur R. 4 3 1 0 10 - 3 +7 10
3.    Valur 5 3 0 2 11 - 9 +2 9
4.    Breiðablik 4 2 2 0 6 - 1 +5 8
5.    Fram 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
6.    Stjarnan 4 2 0 2 10 - 11 -1 6
7.    Þór 5 2 0 3 5 - 11 -6 6
8.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
9.    KA 5 1 1 3 5 - 8 -3 4
10.    ÍA 4 0 2 2 4 - 9 -5 2
11.    FH 4 0 1 3 5 - 11 -6 1
12.    ÍBV 4 0 1 3 5 - 14 -9 1
Slapp
banner
banner