Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 13:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
ÍA og Stjarnan víxla heimaleikjum - Leiktíminn fer eftir körfuboltanum
Úr leik ÍA og Stjörnunnar 2024.
Úr leik ÍA og Stjörnunnar 2024.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikur ÍA og Stjörnunnar sem fram átti að fara á ELKEM vellinum á Akranesi næsta sunnudag mun fara fram á Samsungvellinum í Garðabæ. Félögin hafa samþykkt að víxla heimaleikjum. Grasvöllurinn á Akranesi er ekki alveg orðinn tilbúinn.

Þetta staðfestir Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, í samtali við Fótbolta.net.

„Það er frágengið að því leyti að við munum samþykkja víxlun á leiknum en við erum að bíða eftir því hver leiktíminn verður. Hann verður sama dag, en leiktíminn verður ekki ákveðinn fyrr en í fyrramálið," segir Birkir.

Fer það eftir því hvernig körfuboltaleikur Tindastóls og Stjörnunnar fer í kvöld?

„Já, ef það verður körfuboltaleikur í Garðabæ á sunnudag þá getur leikurinn ekki byrjað klukkan 18:00," segir Birkir.

Ef Stjarnan vinnur Tindastól í leik þrjú í undanúrslitum Bónus deildarinnar í kvöld, þá klárast með því einvígið og hægt verður að hefja fótboltaleikinn klukkan 18:00 á Samsungvellinum. En ef Tindastóll vinnur í kvöld, og framlengir með því einvígið um a.m.k. einn leik, þá verður spilaður körfuboltaleikur klukkan 20:00 í Garðabæ á sunnudag og fótboltaleikurinn myndi þá líklega hefjast klukkan 16:00.

Seinni leikur liðanna í sumar mun fara fram á ELKEM vellinum en samkvæmt plani á að hann að fara fram 26. júlí.

5. umferð Bestu deildarinnar
laugardagur 2. maí
16:00 Þór-KA (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-KR (N1-völlurinn Hlíðarenda)

sunnudagur 3. maí
XX:XX Stjarnan - ÍA (Samsungvöllurinn)
18:00 Keflavík-Víkingur R. (HS Orku völlurinn)
18:00 ÍBV-Breiðablik (Hásteinsvöllur)
18:00 FH-Fram (Kaplakrikavöllur)
Slapp
banner
banner
banner