SKÝRSLAN: ÍBV enn á sigurbraut
Hvað réði úrslitum?
ÍBV voru án efa betri aðilinn í þessum leik, þó að Þór/KA voru hættulegar inn á milli. Munurinn liggur greinilega í því að ÍBV er með fleiri ,,match winnera" í sínum röðum.
Bestu leikmenn
1. Olga Sevcova
Olga enn og aftur með góðan leik fyrir ÍBV. Mér finnst ég vera að endurtaka mig frá því í síðasta leik gegn Val en Olga er allt í öllu í sóknarleik liðsins. Mark og stoðsending í dag og kemur þar af leiðandi að báðum mörkum liðsins og hefði auðveldlega getað gert fleiri mörk.
2. Allesandra Doherty Augur
Kemur í veg fyrir að ÍBV kæmist í þrjú til fjögur - núll með fullt af flottum vörslum sérstaklega í fyrri hálfleik. Mjög flottur leikur hjá henni sem kom í veg fyrir stærra tap.
Atvikið
Allison fer af velli í lok fyrri hálfleiks og virtist vera tognuð aftan í læri. Var búin að vera mjög atvkæðamikil í sóknarleik ÍBV fram að því og útlitið óljóst með markahæsta leikmann deildarinnar.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að nýliðar ÍBV eru efstar í deildinni emð fullt hús stiga eftir fjórar umferðir og kemur það sjálfsagt mörgum á óvart. Þór/KA er án sigurs eftir fjórar umferðir og eru með tvö stig í níunda sæti.
Vondur dagur
Allison Lowrey, ekki fyrir slæma frammistöðu, langt í frá heldur fyrir meiðslin sem hún varð fyrir í lok fyrri hálfleiks.
Dómarinn - 7
Lítið út á dómarann að setja nema þegar hann gefur leikmanni Þór/KA gult spjald fyrir peysutog en stuttu seinna fær leikmaður ÍBV einungis tiltal fyrir nákvæmlega sama brot á svipuðum stað. Annars lítið um vafaatriði.



