Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Samsungvöllurinn
Blautt, hlýtt og logn
Stjarnan
Stjarnan
1 - 2
FH
FH
0 - 136' Deja Jaylyn Sandoval0 - 264' Hafrún Birna HelgadóttirHulda Hrund Arnarsdóttir 93'1 - 2
Dómari: Bríet Bragadóttir

SKÝRSLAN: Super subs kláruðu Stjörnuna

Hvað réði úrslitum?

Það réði úrslitum í dag var góður fyrri hálfleikur hjá FH og frábærar skiptingar. FH höfðu öll tök á leiknum í fyrri hálfleik og skoruðu gott mark úr föstu leikatriði. Í Seinni hálfleiknum átti Guðni svo frábæra skiptingu þegar hann setti Berglindi Freyju, Elínu Björgu og Hafrúnu Birnu inn, þær voru varla komnar inn á þegar þær þrjár græjuðu tvöfalda forystu fyrir FH liðið. Fyrsta mark Stjörnunnar kom aðeins of seint en þær voru komnar með momentum og hefðu mögulega getað hleypt meiri spennu í leikinn ef það hefði verið meiri tími eftir.

Bestu leikmenn

1. Deja Jaylyn Sandoval

Skoraði fyrsta mark FH og var frábær í vörninni hjá FH. Steig virkilega vel upp þegar Katla María meiddist í fyrri hálfleik og gerði sóknarmönnum Stjörnunnar mjög erfitt fyrir í dag. Las leikinn vel og stoppaði sóknarmenn frá því að koma einar í gegn.

2. Ída Marín Hermannsdóttir

Það er ekki hægt annað en að setja Ídu Marín hér líka, hún var potturinn og pannan í sóknarleik FH kvenna sérstaklega í fyrri hálfleik. Færðist aðeins aftar í seinni hálfleik og var þá ekki jafn mikið í því en tók stærra varnarhlutverk í staðinn. Helena Maree og Andrea Rán voru síðan sprækar.

Atvikið

Ég verð að setja þetta á seinna markið hjá FH, frábær skipting hjá bræðrunum. Berglind Freyja, Elín Björg og Hafrún Birna voru vart komnar inn á þegar þær gerðu ótrúlega vel og tvöfölduðu forystu FH á krúsíal tíma. Svokölluð SUPER SUB skipting!

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það einfaldlega að FH fer upp í 3. sætið með 7 stig en Stjörnukonur sitja í 5. sætinu með 4 stig.

Vondur dagur

Kannski skrítið að setja þetta á leikmann í sigurliðinu en Nia Raisa Christopher átti bara ekki góðan dag. Var klárlega veikast hlekkurinn í sóknarleik FH. Náði ekki að halda boltanum þegar hún fékk sendingu upp, gjörn á að missa hann og fór illa með góð færi. Hún þarf að fara koma sér betur í gang

Dómarinn - 5

Dómgæslan í dag var svona bara þokkaleg. Þau þurftu svo sem ekki að taka neinar stórvægilegar ákvarðanir en það voru alveg nokkrar skrítnar ákvarðanir og línan var svolítið bara út um allt fannst manni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.