SKÝRSLAN: Fátt um fína drætti en KA menn kvarta ekki
Hvað réði úrslitum?
Þetta var eiginlega ekki spurning eftir fyrra mark KA. Eyjamenn áttu í miklum vandræðum með að skapa sér almennileg færi en eins og menn segja er 1-0 engin forysta svo það var gott fyrir KA menn að ná inn marki í lokin.
Bestu leikmenn
1. Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Skoraði gríðarlega mikilvægt og gott mark.
2. Jeppe Pedersen (KA)
Pedersen var flottur í sexunni hjá KA. Eyjamenn komust lítið áleiðis. Markús og Hans flottir í miðverðinum
Atvikið
Fyrra markið. Ari i Haraldstovu Petersen, markvörður ÍBV, kemur út á móti Oliver Heiðarssyni sem fékk stungusendingu. Ari er á undan í boltann og Oliver klessir á hann. Boltinn berst til Grímsa sem skoraði af löngu færi.
Hvað þýða úrslitin?
KA er komið í 6. sæti deildarinnar eftir tvo sigurleiki í röð. Liðið hefur hafnað í 7. sæti tvö ár í röð og ætlar sér stærri hluti. ÍBV er hins vegar í vandræðum og situr á botninum með eitt stig.
Vondur dagur
Sóknarleikur ÍBV er ekki upp á marga fiska. Komust oft í álitlegar stöður en það vantar endahnútinn á þetta hjá þeim.
Dómarinn - 7
Þurfti ekki að hafa mikið fyrir þessu.



