Fotbolti.net
@fotboltinetEinar Már Þórólfsson
Lengjudeild karla
GPG völlurinn
Völsungur
Völsungur
0 - 3
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 12' Aron Snær Ingason0 - 228' Örn Bragi Hinriksson0 - 331' Magnús Þórðarson
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Þægilegir Þróttarar með fullt hús stiga

Hvað réði úrslitum?

Gæði Þróttara. Þetta lið er stúfullt af frábærum fótboltamönnum og þeir voru einfaldlega töluvert betri en heimamenn í dag. Alls ekki hræðileg frammistaða hjá þeim grænu en gæðamunurinn sást vel.

Bestu leikmenn

1. Sigurður Egill Lárusson

Sigurður er ekki eðlilega góður í fótbolta og sýndi það oft í dag. í raun ótrúlegt að svona góður leikmaður sé í Lengjudeildinni.

2. Aron Snær Ingason

Skoraði gott mark strax í byrjun leiks og setti tóninn fyrir gestina. Var virkilega góður í dag.

Atvikið

Mark Arons í byrjun leiks. Leikurinn var varla byrjaður en samt fannst manni liggur við eins og úrslitin hafi verið ráðin eftir þetta mark.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur er með fullt hús stiga eftir þrjá sigurleiki. Frábær byrjun á mótinu hjá þeim. Völsungur er enn án sigurs eftir þrjá leiki en þeir töpuðu sínum fyrsta leik í dag.

Vondur dagur

Vörn Völsungs. Þá sérstaklega hvernig þeir vörðust fyrstu hornspyrnu leiksins. Agalegt fyrir heimamenn að lenda undir á annari mínútu gegn svona sterku liði og menn verða einfaldlega að mæta tilbúnari en þetta.

Dómarinn - 6

Eins og alltaf þá er hægt að finna hin ýmsu atriði en heilt yfir bara fínt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.