Fotbolti.net
@fotboltinetKristján Hrafn Kristjánsson
Lengjudeild karla
Kerecisvöllurinn
Sól og blíða framan af en varð skýjað þegar leið á leikinn
Vestri
Vestri
4 - 3
HK
HK
0 - 116' Jóhann Þór Arnarsson (víti)Ibrahima Balde 34'1 - 1Chriss-Albin Mörfelt 44'2 - 1Ibrahima Balde 72'3 - 1Pétur Bjarnason 80'4 - 14 - 280' Jóhann Þór Arnarsson4 - 387' Dominik Radic
Dómari: Hreinn Magnússon

SKÝRSLAN: Fyrsti sigur Vestra í sumar eftir viðburðaríkan leik

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum hér í dag var hversu vel Vestramenn nýttu tækifærin sín. HK voru oft á tíðum mjög opnir varnarlega og Vestramenn nýttu sér það vel.

Bestu leikmenn

1. Ibrahima Balde

Balde frábær í dag, skorar tvö frábær mörk og átti heldur betur stóran þátt í þessum sigri Vestra í dag.

2. Jóhann Þór Arnarsson

Jóhann skoraði tvö mörk í leiknum og var besti maður HK í dag.

Atvikið

Það eru mörg atvik til að velja úr þessum stórkostlega leik en ætli atvikið sé ekki fjórða mark Vestra sem Pétur Bjarnason skorar. HK voru ný búnir að minnka muninn í 3:2, þá tóku Vestri miðju fóru upp í sókn og skorðuðu beint í andltið á HK mönnum.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að HK missa toppsætið í hendur Þróttara og detta niður í annað sætið og taka á móti íslandsmeisturunum Víkings í Kórnum á Miðvikudaginn Vestramenn fara úr 10. sæti upp í það sjöunda með sigri sínum í dag og taka á móti Gróttu á Fimmtudaginn

Vondur dagur

Dómarateymið í heild sinni áttu því miður mjög slæman dag, það eru mjög mörg atvik sem voru mjög sérstaklega dæmd. Það var enginn lína í leiknum annað hvort var flautað á allt sem gerðist og síðan snérist það alveg við og allt var leyft. Bæði lið voru vel pirruð á þessu. Annað og þriðja mark HK áttu ekki að standa að mínu mati vegna augljósra brota í aðdragandanum. Þeir voru flottir í fyrri hálfleik en misstu þetta út í algjöra vitleysu í seinni.

Dómarinn - 3

Ekki nógu góðir í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.