Fotbolti.net
@fotboltinetViktor Ingi Valgarðsson
Lengjudeild karla
GeoSalmo völlurinn
Smá blautt en logn
Ægir
Ægir
0 - 1
Grótta
Grótta
0 - 133' Grímur Ingi Jakobsson (víti)
Dómari: Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson

SKÝRSLAN: Grótta sækir sinn fyrsta sigur í Þorlákshöfn

Hvað réði úrslitum?

Það var eina markið sem kom úr vítaspyrnu sem réði úrslitum í dag. Jafnleikur, ekki fallegur og nóg til gera betur og bæta hjá báðum liðum.

Bestu leikmenn

1. Grímur Ingi Jakobsson

Fær þetta í dag, spilaði allan leikinn og skoraði af öruggi í vítinu sínu sem reyndist heldur betur dýrmætt

2. Harley Willard

Ef það var einhver annar líklegur til að skora var það örugglega Willard, átti nokkrar tilraunir á markið.

Atvikið

Vítaspyrnan og væri gaman að skoða aftur þegar Ómar Castaldo í marki Ægis tók boltann upp fyrir utan teig að sögn Gróttu leikmanna.

Hvað þýða úrslitin?

Grótta fer með þrjú stig heim og vonandi fyrir þá að þeir geti nýtt sér þennan sigur til að byggja á. Ægismenn þurfa hinsvegar að bíða lengur eftir fyrsta stigi í Lengjudeildinni. Grótta færist úr fallsætinu og taflan er jöfn eftir þessa 3.umferð þannig allt er mögulegt.

Vondur dagur

Fyrir fallegan fótbolta held ég. Þetta var fullmikið af næstum því leik. Bæði lið í miklu brasi að skapa almennilega en það má ekki taka það af Gróttu að þeir börðust og vörðust nógu vel til að sækja þessi þrjú stig.

Dómarinn - 6

Held að þeir stóðu sig bara vel, hefði mögulega verið hægt að hafa meira flæði. En vítið var rétt og ég treysti að línuvörðurinn hafi séð hvort Ómar Castaldo hafi ekki gripið boltann alveg örugglega inn í teignum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.