Fotbolti.net
@fotboltinetViktor Ingi Valgarðsson
Lengjudeild karla
GeoSalmo völlurinn
Smá blautt en logn
Ægir
Ægir
0 - 1
Grótta
Grótta
0 - 133' Grímur Ingi Jakobsson (víti)
Dómari: Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson
Leik lokið!
Fyrsti sigur Gróttu!
1-0 hér í Þorlákshöfn og Ægir þarf að bíða lengur eftir fyrsta stiginu. Takk fyrir mig
90. mín
+3
Auka fyrir Ægir á miðjunni
90. mín
+2mín
Boltinn varla í leik um þessar mundir
90. mín
Komnir í uppbótartíma Verður ekki mikill tími nema bara fyrir skiptingarnar.
Grótta
87. mín
InnEinar Tómas Sveinbjarnarson
ÚtMattías Kjeld
85. mín
Sláin!
Loksins almennileg hornspyrna sem fór í þéttan pakka og fór í slána en Ægir náðu ekki að koma honum í netið.
85. mín
Hornspyrnar fyrir Ægir
83. mín
Gróttumenn tryllast!!
Langur bolti fram sem kom í átt að Ómar Castaldo í teignum. Gróttumenn brjálaðir og vildu meina að hann hafi gripið boltann fyrir utan teiginn.
80. mín
Hætta á ferð!
Skot sem Gróttu menn fleygja sér fyrir.
Ægir
77. mín
InnEinar Breki Sverrisson
ÚtHarley Bryn Willard
Ægir
77. mín
InnBenedikt Þór Viðarsson
ÚtPaul Leonard Skoczylas JR
Ægir
75. mín
InnMarkús Máni Jónsson
ÚtNikola Kristinn Stojanovic
73. mín
Þessi tvöfalda skipting eflaust hugsuð til að lífga upp á sóknarleikinn sem hefur sést lítið í hjá Gróttu í seinni.
Grótta
72. mín
InnElmar Freyr Hauksson
ÚtAndri Freyr Jónasson
Grótta
72. mín
InnBjörgvin Stefánsson
ÚtBjörgvin Brimi Andrésson
68. mín
Varsla hjá Ómar!
Fínasta skot úr töluverðri fjarlægð frá markinu, Ómar þurfti að hafa sig allan fyrir að ná til boltans og gerði það vel.
65. mín
Nokkur föst leikatriði í röð hjá Gróttu. Hornspyrnurnar hafa ekki verið góðar hjá báðum liðum, en nóg hefur verið af þeim.
63. mín
Fínt spil hjá fremstu mönnum Gróttu og Björgvin Brimi tók skotið en það hefði þurft að vera mun betra til að sigra Ómar Castaldo í markinu.
62. mín
Þarna kom fyrsta skotið í seinni hálfleik hjá Gróttu en það endaði í hliðarnetinu.
60. mín
Ægir búnir að byrja þennan seinni hálfleik mun betur. Grótta ekkert náð að gera í sókn
58. mín
Kristinn Ásgeir með góða aukaspyrnu inn á teiginn en þeir missa boltann rétt framfyrir sig og útaf.
Ægir
57. mín
InnBaptiste Gateau
ÚtDajan Ponjevic
55. mín
Það er ekki mikið að frétta, boltinn mikið fram og tilbaka án einhverja færa sem eru að myndast.
Ægir
51. mín
InnKristinn Ásgeir Þorbergsson
ÚtBenedikt Darri Gunnarsson
Var ein skipting í hálfleik
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
Jafnleikur hingað til og alveg möguleikar fyrir bæði lið hér í þessum seinni hálfleik
45. mín
Frekar jöfnum fyrri hálfleikur lokið. Bæði liðin fengu sín hálffæri en eina sem varð úr einhverju var þetta víti sem var vel tekið af Grími.
43. mín
Ægir að breyta aukaspyrnu af kantinum í horn og svo annað horn. Seinasta hornið fór bara beint útaf.
40. mín
Kristófer Dan með fyrirgjöf frá hægri kantinum sem Andri Freyr fer upp í...nær skallanum hjá nærstönginni en stýringin ekki nógu góð og framhjá markinu fór boltinn.
39. mín
Grímur Ingi með tilraun að finna Björgvin Brimi í hlaupi bakvið vörn Ægis en boltinn aðeins of fastur.
38. mín
Benedikt Darri orðið fyrir einhverju smávegis hnjaski. Verið að hlúa að honum hér.
Grótta
33. mín
Mark úr víti!

Grímur Ingi Jakobsson

Setur hann fast í mitt markið og Ómar Castaldo skutlaði sér. Grótta komið yfir 1-0!
33. mín
Grótta að fá víti!
Frekar klaufalegt, leikmaður Gróttu sem var feldur niður alveg við endalínuna og virtist búið að loka á sendingu frá honum þannig hættan var lítil á ferð. Þó eflaust alveg réttur dómur hjá Þorfinni á flautunni
31. mín
Kristófer Dan með erfitt skot rétt yfir slána.
29. mín
Grótta að sækja horn.
28. mín
Stefan Dabetic með slaka sendingu í öftustu línu en Grótta nær ekki að nýta sér það í að skapa alvöru dauðafæri
27. mín
Harley Willard aftur!
Hann er búin að eiga nokkur góð skot og þetta virtist á leiðinni inn á fær, Guðmundur Rafn átti aldrei séns í þetta en sem betur fer fyrir hann fór boltinn rétt framhjá
21. mín
Ægir komnir vel í leikinn, annað skot sem Guðmundur Rafn lendir í smá brasi með. Boltinn í horn en það var vel gripið.
16. mín
Harley Willard með skot!
Tekur fínasta skot sem var varið af Guðmundi en ekki sannfærandi varsla. Nokkuð heppnir að Ægismenn komust ekki í seinni boltann.
15. mín
Bjarki Rúnar núna fyrir Ægir með flotta sendingu fyrir markið en það var enginn sem náði til boltans.
13. mín
Í raun fyrsta sókn Ægis sem endar þægilega í höndum Guðmundar Rafns. Slök fyrirgjöf frá Skoczylas JR
11. mín
Grótta heldur áfram sóknarleik, Andri Freyr sem náði töpuðum bolta hjá vörn Ægis en skotið alls ekki nógu gott.
5. mín
Góður kraftur í Gróttu þessar fyrstu 5 mínútur. Halda í boltann og óhræddir að skjóta þó það sé ekki að skila inn marki strax. Pressan líka kröftug frammi á við.
3. mín
Fyrsta horn er Gróttu. Skot frá Grími sem fór í varnarmann og útaf
2. mín
Björgvin Brimi með fyrsta skotið, myndaðist fínt færi fyrir hann en vel blokkað af vörn Ægis manna
1. mín
Grótta á upphafsspark
Fyrir leik
Liðin að tölta inn á völlinn
Styttist í startið á þessum leik. Fínasta aðstaða fyrir vonandi góðan fótbolta.
Fyrir leik
Staðan
Ef taflan er skoðuð þá eru um alvöru snemmbúin fallbaráttu slag að ræða. Liðin sitja í neðstu tveimur sætum Lengjudeildarinnar fyrir þessa 3.umferð. 0 stig og bæði með -2 í markatölu. Ég get ekki trúað öðru en hörkuleik hér þar sem bæði lið vilja fara ræsa tímabilin sín almennilega
Fyrir leik
Grótta
Svipaða sögu er að segja um gestina sem koma hingað eftir tap gegn Leikni og undan því var tap gegn HK í fyrstu umferð. Þeir hafa að minnsta kosti skorað í báðum leikjunum sínum.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Ægis menn
Þetta er fyrstu heimaleikur Ægis sem fer fram hér í dag. Byrjun liðsins hefur verið erfið en tvo töp eru niðurstaðan hingað til. Eitt gegn Fylkir og hitt á móti HK. Nú er heldur betur tækifæri til að sækja fyrstu stig tímabilsins
Fyrir leik
Verið velkomin
Heil og sæl kæru lesendur. Við erum í Þorlákshöfn á GeoSalmo Vellinum hér í dag þar sem leikur Ægis og Gróttu fer fram. Leikurinn hefst kl.14:00
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.