Fotbolti.net
Besta deildin
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta karla
Greifavöllurinn
KA
KA
2 - 0
ÍBV
ÍBV
Hallgrímur Mar Steingrímsson 17'1 - 0Felix Örn Friðriksson (sjm) 90'2 - 0
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 540
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leik lokið!
KA fer með sigur af hólmi. Þessi leikur ekki mikið fyrir augað en KA mönnum er alveg sama, tveir sigrar í röð. Vandræði Eyjamanna halda áfram en þeir eru með eitt stig.

Viðtöl og skýsla koma inn á síðuna seinna í kvöld.
ÍBV
94. mín
Gult spjald

Felix Örn Friðriksson

Rífur í Grímsa. Engin hætta í kring.
91. mín
Fjórum mínútum bætt við
KA
90. mín
KA að klára þetta

Felix Örn Friðriksson (sjm)

Valdimar Logi Sævarsson með sendingu meðfram jörðinni inn á teignum. Felix Örn stendur eins og stytta á nærstönginni og fær boltann í sig og boltinn hafnar í netinu.
KA
83. mín
InnKári Gautason
ÚtGuðjón Ernir Hrafnkelsson
Guðjón fer af velli
82. mín
Guðjón Ernir og Róbert Elís skella saman. Róbert er staðinn upp en það er enn verið að hlúa að Guðjóni...Hann stendur upp
80. mín
Filip Stuparevic með fasta skot/sendingu inn á teiginn úr aukaspyrnu en boltinn fer vel framhjá
ÍBV
76. mín
InnArnar Breki Gunnarsson
ÚtBjarki Björn Gunnarsson
ÍBV
76. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtVicente Rafael Valor Martínez
KA
76. mín
InnJakob Héðinn Róbertsson
ÚtDiego Montiel
KA
76. mín
InnDanijel Dejan Djuric
ÚtOliver Heiðarsson
75. mín
Eyjamenn hættulegir. Einna snertinga bolti fyrir framan vítateig KA sem endar með skoti frá Vicente Valor en hann skýtur í varnarmann
KA
68. mín
InnValdimar Logi Sævarsson
ÚtSveinn Margeir Hauksson
67. mín
Montiel með fyrirgjöf en Jóan Símun nær ekki að skalla á markið
ÍBV
60. mín
InnHalldór Jón Sigurður Þórðarson
ÚtSesar Örn Harðarson
ÍBV
60. mín
InnFilip Stuparevic
ÚtLiam Daði Jeffs
59. mín
Grímsi með skot sem fer af varnarmanni og KA fær horn
53. mín
Guðjón Ernir sker inn á teiginn og á fínt skot en Ari ver frá honum.
48. mín
Álitleg skyndisókn hjá Eyjamönnum en Milan Jezdemirovic með slaka sendingu þvert inn á miðjuna
KA
46. mín
InnJóan Símun Edmundsson
ÚtJakob Snær Árnason
Skipting hjá KA í hálfleik
46. mín
Seinni hálfleikur kominn af stað
45. mín
Hálfleikur
+4
Nokkuð rólegur fyrri hálfleikur en það er komið mark í leikinn.
45. mín
+3
Oliver með skotið og mér sýnist Felix Örn Friðriksson ná að tækla boltann yfir, KA fékk allavega horn en ekkert kom út úr því.
45. mín
+2
Frábær löng sending fram völlinn en Seasr Örn Harðarson tekur ekki nægilega vel á móti boltanum og þetta rennur út í sandinn.
45. mín
Fjórar mínútur í uppbótatíma
39. mín
Oliver með skalla framhjá eftir góða fyrirgjöf frá Samuel Kroon.
35. mín
Fyrirliðinn Sigurður Arnar reynir að kveikja á Eyjamönnum með langskoti en skotið mjög slakt og víðsfjarri markinu.
31. mín
Grímsi með sendingu út til hægri á Jakob Snæ sem á sendingu inn á teiginn en Oliver nær ekki til boltans.
ÍBV
29. mín
Gult spjald

Sigurður Arnar Magnússon

Brýtur á Oliver og fær verðskuldað spjald. Oliver hefur fengið að finna fyrir því frá gömlu félögunum
25. mín
Stubbur
Stubbur í smá brasi. Löng sending fram og hann er kominn út og tekur á móti boltanum með maganum. Róbert Elís Hlynsson er í honum en Stubbur er sterkari og kemur boltanum frá
ÍBV
23. mín
InnMilan Jezdemirovic
ÚtArnór Ingi Kristinsson
Eyjamenn neyðast til að gera skiptingu
KA
17. mín
MAAAARK

Hallgrímur Mar Steingrímsson

Diego Montiel með frábæra stungusendingu á Oliver. Ari í marki Eyjamanna er á undan í boltann. Boltinn berst til Grímsa á miðjunni og hann lætur vaða og skorar á opið markið.

Oliver fékk væna byltu een er í góðu lagi.
14. mín
Þetta byrjar afskaplega rólega hérna
7. mín
Eyjamenn eru að komast upp kantinn mikið en kemur lítið út úr því
2. mín
Dauðafæri
Sending fyrir en Jakob Snær Árnason nær ekki skallanum. Ari i Haraldstovu kýlir boltann út en ekki langt. Oliver Heiðarsson nær skotinu en í varnarmann.
1. mín
Leikur hafinn
Hallgrímur Mar Steingrímsson kemur þessu af stað fyrir KA
Fyrir leik
Liðin eru að ganga út á völl
Þetta er að bresta á
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Það eru fjórar breytingar á liði KA sem vann granna sína í Þór í síðustu umferð. Birgir Baldvinsson og Rodri meiddust gegn Þór. Kári Gautason og Danijel Dejan Djuric setjast á bekkinn. Sveinn Margeir Hauksson, Diego Montiel, Jakob Snær Árnason og Guðjón Ernir Hrafnkelsson koma inn í þeirra stað.

Oliver Heiðarsson er í byrjunarliði KA en hann spilaði með ÍBV frá 2023-2025.

Það eru tvær breytingar á liði ÍBV sem tapaði gegn Breiðabliki í síðustu umferð. Bjarki Björn Gunnarsson og Pisco koma inn fyrir Milan Tomic og Halldór Jón Sigurð Þórðarson. Tomic er fyrsti leikmaðurinn sem er í banni vegna uppsafnaðra gulra spjalda en Halldór er á bekknum. Það er athyglisvert að það eru aðeins sjö leikmenn á bekknum hjá ÍBV.
Fyrir leik
Fyrir leik
Tengingar milli félaganna
Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, er að snúa aftur til Akureyrar en hann spilaði með KA frá 2006-2007. Hann spilaði síðan með nágrönnunum í Þór frá 2008-2011.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Oliver Heiðarsson fór í KA í byrjun tímabilsins. Hann spilaði með ÍBV frá 2023-2025. Hann átti stórkostlegt tímabil árið 2024 þegar hann skoraði 14 mörk í 20 leikjum.
Mynd: Raggi Óla

Guðjón Ernir Hrafnkelsson gekk til liðs við KA frá ÍBV í fyrra og spilaði þá gegn sínum gömlu félögum.
Fyrir leik
Hitaðu upp með því að hlusta á útvarpsþáttinn
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 voru leikirnir fimm sem voru á föstudag gerðir upp. Upptaka er komin á allar hlaðvarpsveitur.

   09.05.2026 13:58
Útvarpsþátturinn - Úrslitaleikur um starfið


Sjáðu öll mörkin frá föstudeginum:
   09.05.2026 19:50
Sjáðu mörkin: 26 marka kvöld í Bestu deildinni
Fyrir leik
Hans Viktor verður hetjan
Júlíus Mar Júlíusson, leikmaður Kristiansund í Noregi, spáði í þessa umferð en hann spáir heimasigri.

KA 1 - 0 ÍBV
Hans Viktor tekur enga fanga og sækir öll stigin þrjú. Hansi skorar eftir fast leikatriði og fagnar með því að rífa upp gítarinn því gítarinn er það eina sem hann áááá…
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Júlíus Mar
Fyrir leik
Dómarateymið
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Aðstoðardómarar: Gylfi Már Sigurðsson og Eysteinn Hrafnkelsson
Fjórði dómari: Arnar Þór Stefánsson
Eftirlitsmaður: Halldór Breiðfjörð Jóhannsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
ÍBV leitar að sínum fyrsta sigri
ÍBV er á botninum með aðeins eitt stig eftir jafntefli gegn FH í fyrstu umferð. Sigurður Arnar Magnússon, fyrirliði ÍBV, var bjartsýnn eftir 2-1 tap liðsins gegn Breiðabliki í síðustu umferð.

„Ef við spilum svona tökum við einhver stig í sumar. Við þurfum samt að skerpa á ákveðnum hlutum, mörkin sem við fáum á okkur eru ódýr og við megum gera betur í ákveðnum stöðum sem við komumst í. Grunnvinnan var í lagi og þetta var ágætis leikur," sagði Sigurður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
KA með montréttinn
KA nældi í sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið lagði granna sína í Þór 1-0 á útivelli. Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði markið úr vítaspyrnu. Mikið hefur verið rætt og ritað um að KA hafi byrjað illa undanfarin ár og því miður fyrir þá hefur ekki orðið breyting á því. Spurning hvort sigurinn í grannaslagnum gefi þeim auka kraft.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrir leik
Góðan og blessaðan
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik KA og ÍBV í 6. umferð Bestu deildarinnar.

Leikurinn fer fram á Greifavellinum á Akureyri og hefst klukkan 16:30.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.