Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Lengjudeild karla
Afturelding
45' 4
0
Fylkir
Besta karla
Valur
45' 0
3
Víkingur R.
Besta karla
ÍBV
LL 6
1
Keflavík
Besta karla
Þór
LL 1
3
Stjarnan
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 4
1
HK
Besta karla
KR
LL 5
3
KA
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 2
3
Ægir
Lengjudeild karla
Njarðvík
LL 1
2
Grótta
Lengjudeild karla
ÍR
LL 0
1
Vestri
Leiknir R.
4
1
HK
Birnir Breki Burknason '28 1-0
Djorde Vladisavljevic '41 2-0
Shkelzen Veseli '45 3-0
Brynjar Björn Gunnarsson '45
Shkelzen Veseli '60 4-0
4-1 Dominik Radic '62
31.05.2026  -  17:00
Leiknisvöllur
Lengjudeild karla
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
4. Marko Veselinovic
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
7. Birnir Breki Burknason ('65)
10. Shkelzen Veseli ('90)
15. Rúrik Gunnarsson ('83)
19. Axel Freyr Harðarson ('65)
22. Þorsteinn Emil Jónsson ('65)
32. Eiríkur Örn Beck
45. Djorde Vladisavljevic
55. Anton Fannar Kjartansson
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Jakub Górski (m)
8. Gísli Alexander Ágústsson ('83)
9. Jóhann Kanfory Tjörvason ('65)
11. Aron Skúli Brynjarsson ('90)
16. Viktor Andri Pétursson ('65)
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('65)
33. Arnór Valur Ágústsson
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Arion Aron Veselaj (Leikgr.)
Halldór Fannar Júlíusson (Sjúkraþj.)
Gísli Friðrik Hauksson (Liðsstj.)
Nemanja Pjevic (AÞ)
Loftur Páll Eiríksson (Styrktarþj.)
Ari Þór Kristinsson (MÞ)

Gul spjöld:
Axel Freyr Harðarson ('11)
Þorsteinn Emil Jónsson ('30)
Brynjar Björn Gunnarsson ('31)
Eiríkur Örn Beck ('38)
Daði Bærings Halldórsson ('71)
Jóhann Kanfory Tjörvason ('84)

Rauð spjöld:
Brynjar Björn Gunnarsson ('45)
Leik lokið!
4-1 sigur Leiknis staðreynd Heimamenn sigra þennan leik verðskuldað og koma sér í níu stig. Skýrsla og viðtöl koma inn í kvöld.
90. mín
+5 Aftur er hornið tekið stutt og nú vinna þeir innkast.
90. mín
+4 Þeir taka hornið stutt, halda honum úti í horni og vinna annað horn
90. mín
+4 Leiknismenn sækja horn.
90. mín
+1 Fimm mínútur í uppbót.
90. mín
+1 Aron Kristófer setur hornið inn á miðjan teiginn, boltinn berst þaðan út á Arnþór Ara sem þrumar honum yfir í næsta póstnúmer.
90. mín
Inn:Aron Skúli Brynjarsson (Leiknir R.) Út:Shkelzen Veseli (Leiknir R.)
90. mín
HK í sókn og ná skot í átt að marki sem fer af varnarmanni og aftur fyrir.
89. mín
Marko Veselinovic þarf aðhlynningu og þarf að fara út fyrir í mínútu
85. mín
Aron Kristófer með fína spyrnu á fjær en enginn HKingur nóg og grimmur á boltann og hann fer í gegnum allt og aftur fyrir.
84. mín Gult spjald: Jóhann Kanfory Tjörvason (Leiknir R.)
Klaufalegt brot hægra megin, ekki fjarri vítateigshorninu
83. mín
Inn:Gísli Alexander Ágústsson (Leiknir R.) Út:Rúrik Gunnarsson (Leiknir R.)
82. mín
Marko Veselinovic gerir frábærlega eftir að samherji hans reyndi að leggja upp fyrir Dominik Radic. Marko rétt nær til boltans of setur hann aftur fyrir.
81. mín Gult spjald: Aron Kristófer Lárusson (HK)
80. mín
Inn:Alexander Örn Guðmundsson (HK) Út:Atli Þór Gunnarsson (HK)
79. mín
Hár bolti inn á teig Leiknis sem Haukur Leifur þarf að teigja sig í og nær þar af leiðandi ekki að stýra á markið.
77. mín
Langt innkast frá HK sem fer í gegnum stóran hluta af pakkanum í teignum áður en Leiknismenn ná að hreinsa frá.
76. mín
Shkelzen með bolta fyrir markið sem Dagur Ingi gerir sitt besta í að koma á markið en fyrirgjöfin í erfiðri hæð og Dagur setur hann fram hjá.
71. mín Gult spjald: Daði Bærings Halldórsson (Leiknir R.)
Braut af sér á miðjum vellinum í aðdragandanum og fær gult.
71. mín
Ólafur Íshólm!! Karl Ágúst fær boltann vinstra megin í teignum, nálægt markinu. Tekur skotið sem Óli Íshólm ver, boltinn berst til Tuma sem á skot aftur og aftur ver Óli. Aftur berst boltinn til Tuma sem setur hann fram hjá í annari tilraun.
70. mín
Tréverkið! Atli Þór tekur spyrnuna og ætlar að setja hana í nær en setur hann ofan á hornið á samskeytunum.
69. mín
HK að fá aukaspyrnu á hættulegum stað á milli hliðarlínunnar og vítateigs vinstra megin.
65. mín
Inn:Arnþór Ari Atlason (HK) Út:Þorvaldur Smári Jónsson (HK)
65. mín
Inn:Aron Kristófer Lárusson (HK) Út:Ívar Örn Jónsson (HK)
65. mín
Inn:Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Leiknir R.) Út:Þorsteinn Emil Jónsson (Leiknir R.)
65. mín
Inn:Viktor Andri Pétursson (Leiknir R.) Út:Birnir Breki Burknason (Leiknir R.)
65. mín
Inn:Jóhann Kanfory Tjörvason (Leiknir R.) Út:Axel Freyr Harðarson (Leiknir R.)
62. mín MARK!
Dominik Radic (HK)
Þeir minnka muninn HK sækja upp hægri kantinn, boltinn kemur fyrir þar sem Radic gerir vel, kemur sér fram fyrir varnarmanninn og setur hann fram hjá Óla.
60. mín MARK!
Shkelzen Veseli (Leiknir R.)
Stoðsending: Birnir Breki Burknason
Shkelzen Veseli, Take a bow! Fær boltann úti hægra megin og nær að cutta inn á vinstri, í sína uppáhalds stöðu og smyr hann í samskeytin fjær. Þetta slútt sem allir ungir leikmenn eiga í vopnabúrinu í dag samkvæmt Hjör.
60. mín
Axel Freyr gerir vel í að vinna boltann í teignum vinstra megin og lætur vaða á markið en skotið er fram hjá.
58. mín
Ívar tekur spyrnuan á fjær þar sem Jóhan Þór er nokkuð óvaldaður. Óli Íshólm stekkur út í sprellikall á móti honum og eftir einhvern darraðadans í teignum nær Óli Íshólm að handsama boltann.
57. mín
Góð sókn frá HK sem endar með fyrirgjöf frá hægri sem Leiknismenn eru fyrstir á og setja aftur fyrir. HK fá horn
55. mín
Jóhann Þór kominn inn á teiginn og reynir að ná stjórn á skoppandi boltanum en Óli Íshólm á seinasta snúning kemur út úr markinu og kýlir boltann frá. Óli hefði ekki mátt vera nanósekúndu seinni í þetta úthlaup.
53. mín
Shkelzen tekur spyrnuna sjálfur á fjær og á einvern ótrúlegan hátt lekur boltinn í gegn um allan pakkann og aftur fyrir. Leiknir vilja horn, vilja meina að þetta hafi farið í einhvern HK haus á leiðinni út af en ég skal ekki segja.
52. mín Gult spjald: Þorvaldur Smári Jónsson (HK)
Togar í Shkelzen sem er að komast í skotstöðu fyrir utan teiginn hægra megin.
52. mín
Axel Freyr gerist brotlegur og lætur Gunnar dómara aðeins heyra það. Axel Freyr á gulu og dansandi á línunni með að fá annað.
51. mín
Jóhann Þór sækir upp hægri kantinn en þar er grjótharður Marko Veselinovic sem tæklar hann í tvígang og nær af honum boltanum
50. mín
Leiknir fá horn sem Shkelzen Veseli tekur á nær þar sem Marko er og stangar hann fram hjá.
48. mín
Ólafur Örn áfram mjög óöruggur í löppunum en sleppur fyrir horn í þetta skiptið
46. mín
Leikurinn farinn aftur af stað
45. mín
Inn:Tumi Þorvarsson (HK) Út:Magnús Arnar Pétursson (HK)
Gunnar Heiðar gerir tvær breytingar í hálfleik
45. mín
Inn:Ívar Orri Gissurarson (HK) Út:Karl Ágúst Karlsson (HK)
45. mín
Hálfleikur
Kominn hálfleikur í Breiðholtinu. Mjög fjörugur fyrri hálfleikur, nóg af spjöldum og þrjú mörk. Meira af því sama í seinni takk! Tökum okkur 15.
45. mín Rautt spjald: Brynjar Björn Gunnarsson (Leiknir R.)
+3 Fær annað gult, fyrir að taka bolta sem Svavar Örn var að fara að taka upp til að taka innkast og leika sér aðeins með hann.
Mjög sérstakt hjá Brynjari verandi á gulu verður að segjast.
45. mín MARK!
Shkelzen Veseli (Leiknir R.)
Stoðsending: Þorsteinn Emil Jónsson
3-0!!!! Fullkominn vigt í boltanum frá Þorsteini inn fyrir á Shkelzen Veseli. Ólafur Örn stígur langt út úr markinu en hann er og seinn og Shkelzen potar boltanum fram hjá honum og setur hann í opið markið frá nákvæmlega sama stað og Birnir Breki áðan.
45. mín
Spyrnan hjá Ívari er fín á fjær en þar er bara enginn samherji hans og boltinn fer yfir allan pakkann
45. mín
Fyrirgjöf frá hægri sem Djorde Vladisavljevic hreinsar klaufalega aftur fyrir og HK fá horn.
42. mín
Dauðafæri Dominik Radic kominn einn á móti Óla en er allt of lengi að athafna sig og nær ekki skoti á markið því að Marko Veselinovic kemur á fleygiferð og tæklar boltann aftur fyrir.

HK ná svo ekki að búa neitt til úr horninu.
41. mín MARK!
Djorde Vladisavljevic (Leiknir R.)
Stoðsending: Anton Fannar Kjartansson
2-0 Shkelzen Veseli tekur spyrnuna sem lendir hægra megin upp við endalínu. Þar er Anton Fannar sem kemur boltanum fyrir markið og eftirleikurinn auðveldur fyrir Djorde.
39. mín Gult spjald: Atli Þór Gunnarsson (HK)
Leiknismenn fá aukaspyrnu í miðjunni á vallarhelmingi HK og Atli Þór er ósáttur
38. mín Gult spjald: Eiríkur Örn Beck (Leiknir R.)
Brýtur á Magnúsi Arnari rétt fyrir utan teig HK, öll gul spjöld Leiknis innanvallar komið á vallarhelmingi HK, óþarfi!
37. mín
HK eiga langt innkast sem Ívar tekur á hausinn á Sigurði Gunnari en þaðan á Leiknismenn sem hreinsa. HK eru ekki með neinn til baka og Leiknismenn í kjörstöðu til þess að sækja hratt en Shkelzen Veseli á þunga snertingu sem hægir aðeins á. Hann kemur boltanum þó upp völlinn en þá komast varnarmenn HK aftur fyrir boltann og koma honum frá.
36. mín
Spyrnan hjá Ívari kemur út í teiginn þar sem Dominik Radic nær skallanum en hann er beint á Óla í markinu.
35. mín
HK sækja hratt upp vinstri kantinn og uppskera hornspyrnu.
34. mín
HK spila sig vel í gegn um miðjuna og eru við það að sleppa í gegn en Marko Veselinovic stekkur fyrir stungusendinguna og kemur hættunni frá.
33. mín
Djorde Vladisavljevic virðist vera góður og stendur upp en Ólafur Íshólm fær aðhlynningu en kveinkar sér eitthvað en heldur þó áfram leik.
32. mín
Aukaspyrnan er tekin inn á teiginn þar sem menn lenda saman og Ólafur Íshólm og Djorde Vladisavljevic liggja eftir.
31. mín Gult spjald: Brynjar Björn Gunnarsson (Leiknir R.)
HK fá aukaspyrnu beint fyrir framan hann og hann lætur óhamingju sína í ljós
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín Gult spjald: Þorsteinn Emil Jónsson (Leiknir R.)
Er flaggaður rangstæður og tekur tryllinginn
28. mín MARK!
Birnir Breki Burknason (Leiknir R.)
ÚFF Ólafur Örn áfram í gjafastuði og er lengst fyrir utan teiginn með boltann, er pressaður og Birnir skorar í opið markið.
26. mín
Ólafur Örn ætlar að finna Magnús Arnar á miðjunni en sá síðatnefndi hittir ekki boltann og Leiknismenn fá tækifæri til að sækja hratt en eru allt of lengi að þessu. Boltinn kemst á endanum inn á teiginn en þar er skallinn fram hjá
25. mín
Vandræðagangur aftast hjá HK en þeir ná að leysa vel úr því á endanum og spila sig út úr pressunni.
24. mín
Dominik Radic leikur listir sínar en missir boltann aðeins of langt frá sér á endanum og Leiknismenn hreinsa áður en Radic nær að hlaða í skot.
22. mín
Haukur Leifur liggur eftir og fær aðhlynningu.
21. mín
Ívar Örn tekur langt innkast inn á teig Leiknis en eftir smá skallatennis koma heimamenn boltanum frá.
18. mín
Ólafur Örn ekki öruggur í spyrnunum sínum hér í upphafi og í þetta skiptið hittir hann beint á Leiknismenn sem sækja hratt. Axel Freyr endar á að ná skoti en Ólafur ver það í horn.

Hornið er síðan allt of fast, yfir allan pakkann og í innkast hinummegin.
16. mín
Jóhann Þór kominn einn á móti Óla Íshólm sem gerir mjög vel í markinu og lokar vel á hann.
15. mín
Karl Ágúst með góðan sprett með boltann en ætlar fram hjá einum of mörgum og Leiknismenn skýla boltanum út af á endanum
13. mín
Leiknir fá aukaspyrnu úti á vinstri kanti sem Marko Veselinovic tekur á fjær. Þar eru einhver átök og Marko Veselinovic fellur við, Leiknismenn vilja aftur víti en aftur segir Gunnar Freyr nei við því.
11. mín Gult spjald: Axel Freyr Harðarson (Leiknir R.)
Brýtur af sér á vallarhelmingi HK, mjög óþarft gult spjald
10. mín
Hornið we mjög lélegt hjá Ívari og Axel Freyr sem er á nær vinnur hann
10. mín
HK vinna horn
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
10. mín
Innkast frá vinstri sem lekur inn á teiginn hjá Leikni og HK ná skoti en það er yfir.
8. mín
Þorsteinn Emil fær boltann i teignum vinstra megin, kemur honum fyrir á Shkelzen Veseli sem að setur hann vel yfir markið.
6. mín
Leiknismenn komnir í fína stöðu á hægri kantinum en aftur fer flaggið á loft.
5. mín
Leiknismenn fá aukaspyrnu vinstra megin nálægt teignum sem Shkelzen Veseli tekur á fjær þar sem að Leiknismenn eru fyrstir á hann, skalla hann fyrir en flaggið á loft.
4. mín
Leiknismenn taka langt innkast inn á teiginn og Ólafur Örn er í vandræðum að handsama boltann en það tekst þó á endanum, veik vítaköll frá Leiknismönnum en það virtist ekki vera mikið í því
2. mín
Boltinn kemur inn á nær þar sem HKingar ná til hans en skallinn er rétt fram hjá
1. mín
HK fá fyrstu hornspyrnu leiksins
1. mín
Leikur hafinn
HK byrja með boltann
Fyrir leik
Byrjunarliðin Brynjar Björn gerir þrjár breytingar á sínu liði frá tapinu í Árbænum. Shkelzen Veseli, Alex Freyr Harðarson og Eiríkur Örn Beck koma allir inn á meðan Viktor Andri Pétursson, Dagur Ingi Hammer og Arnór Valur Ágústsson fá sér sæti á bekknum.

Hjá gestunum eru tvær breytingar frá sigrinum gegn Völsungi. Svavar Örn Þórðarson og Magnús Arnar Pétursson koma inn fyrir þá Atla Hrafn Andrason og Viktor Helga Benediktsson sem eru báðir utan hóps. Atli Hrafn fór út af eftir korter í síðasta leik vegna meiðsla.
Fyrir leik
Adam Páls og kristalkúlan Adam Pálsson, leikmaður Vals, er spámaður umferðarinnar og hér er það sem hann hefur að segja um þennan leik:

Leiknir R. 0 - 2 HK

Held HK menn með þennan hraða í ginger bullet þarna frammi vinna þetta 2-0.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið Gunnar Freyr Róbertsson er aðaldómari í dag og með honum eru AD1, Tomasz Piotr ZietaL, og AD2, Ragnar Arelíus Sveinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
HK HK hafa sótt 12 stig í fyrstu sex leikjum tímabilsins og sitja í þriðja sætinu. Þrátt fyrir góða stigasöfnun hafa þeir ekki verið að vinna leikina sannfærandi og leitast líklega eftir því að sýna betri frammistöðu.
Í síðasta leik fengu þeir Völsung í heimsókn í leik sem þeir kláruðu 1-0.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Leiknir Leiknismenn hafa farið ágætlega af stað á þessu tímabili í nokkuð jafnri deild. Þeir eru í 10. sæti með sex stig eins og er en það eru aðeins þrjú stig upp í það fimmta. Þeir heimsóttu Fylkismenn í síðustu umferð þar sem þeir þurftu að sætta sig við 3-0 tap.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Leikdagur í Lengjunni Góðan daginn og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Leiknis og HK
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Byrjunarlið:
1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
2. Sigurður Gunnar Jónsson
6. Þorvaldur Smári Jónsson ('65)
9. Jóhann Þór Arnarsson
16. Svavar Örn Þórðarson
17. Dominik Radic
19. Atli Þór Gunnarsson ('80)
21. Ívar Örn Jónsson (f) ('65)
22. Haukur Leifur Eiríksson
24. Magnús Arnar Pétursson ('45)
29. Karl Ágúst Karlsson ('45)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
25. Andri Már Steinsson (m)
4. Aron Kristófer Lárusson ('65)
5. Þorsteinn Aron Antonsson
8. Arnþór Ari Atlason ('65)
26. Ívar Orri Gissurarson ('45)
28. Tumi Þorvarsson ('45)
45. Alexander Örn Guðmundsson ('80)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson (Liðsstj.)
Þjóðólfur Gunnarsson (Liðsstj.)
Guðný Björk Halldórsdóttir (Sjúkraþj.)
Sigurður Már Birnisson (Styrktarþj.)
Arnar Freyr Smárason (AÞ)
Sandor Matus (MÞ)

Gul spjöld:
Atli Þór Gunnarsson ('39)
Þorvaldur Smári Jónsson ('52)
Aron Kristófer Lárusson ('81)

Rauð spjöld: