Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Besta karla
ÍBV
4' 0
0
Keflavík
Besta karla
Þór
1' 0
0
Stjarnan
Lengjudeild karla
Leiknir R.
4' 0
0
HK
Besta karla
KR
5' 1
0
KA
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 2
3
Ægir
Lengjudeild karla
Njarðvík
LL 1
2
Grótta
Lengjudeild karla
ÍR
LL 0
1
Vestri
Vináttulandsleikur
Japan
LL 1
0
Ísland
ÍR
0
1
Vestri
0-1 Konstantin Cheshmedjiev '50
31.05.2026  -  14:00
Þarfaþingsvöllurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Byrjunarlið:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
3. Halldór Atli Kristjánsson
5. Hrafn Hallgrímsson ('70)
6. Kristján Atli Marteinsson ('80)
8. Emil Nói Sigurhjartarson ('80)
9. Bergvin Fannar Helgason
11. Guðjón Máni Magnússon
19. Hákon Dagur Matthíasson ('70)
23. Ágúst Unnar Kristinsson (f)
25. Jón Arnar Sigurðsson
61. Orri Bjarkason ('70)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
27. Jóhannes Kristinn Hlynsson (m)
2. André Musa Solórzano Abed ('80)
4. Sigurður Karl Gunnarsson
14. Víðir Freyr Ívarsson ('70)
17. Óliver Andri Einarsson ('70)
28. Óliver Elís Hlynsson ('70)
46. Tareq Shihab ('80)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson (Þ)
Jónþór Atli Ingólfsson (Leikgr.)
Ómar Atli Sigurðsson (Styrktarþj.)
Ívan Óli Santos (Leikmaður utan hóps)
Davíð Örvar Ólafsson (AÞ)
Stefán Þór Pálsson (Leikmaður utan hóps)
Helgi Freyr Þorsteinsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Vestramenn næla sér í sterkan 0-1 sigur í heldur bragðdaufum leik.

Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í dag.

Ég þakka fyrir mig.
94. mín
Leiktíminn er liðinn en aðeins bætt við vegna meiðsla Marvin.
93. mín
ÍR fær aukaspyrnu Skalli sem ratar ekki á markið og Vestramenn fá markspyrnu.
90. mín
4 mínútum bætt við.
90. mín
Fall með vesen inni í eigin teig og nær ekki að hreinsa en Marvin handsamar knöttinn að lokum og virðist hafa fengið eitthvað högg þar sem hann liggur eftir.
89. mín
Inn:Gabríel Heiðberg Kristjánsson (Vestri) Út:Breki Þór Hermannsson (Vestri)
87. mín
Vestri að spila 6-3-1 þessar lokamínútur og ætla að sigla þessu heim.
85. mín
ÍR klaufar að missa boltann og Vestramenn gera vel og halda í boltann og róa þetta niður.
83. mín
Inn:Marinó Steinar Hagbarðsson (Vestri) Út:Johannes Selvén (Vestri)
83. mín
Inn:Birkir Eydal (Vestri) Út:Emmanuel Duah (Vestri)
81. mín
ÍR sækir Góð hreyfing hjá Ágústi sem kemur sér í gott færi en Marvin ver vel.
80. mín
Tíu mínútur eftir og ÍRingar í leit að jöfnunarmarkinu.
80. mín
Inn:Tareq Shihab (ÍR) Út:Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR)
80. mín
Inn:André Musa Solórzano Abed (ÍR) Út:Kristján Atli Marteinsson (ÍR)
78. mín
Inn:Gunnar Jónas Hauksson (Vestri) Út:Guðmundur Páll Einarsson (Vestri)
78. mín
Inn:Guðmundur Arnar Svavarsson (Vestri) Út:Edson Eduardo Dias Gomes (Vestri)
76. mín
Balde sendir Breka inn fyrir vörnina en Vilhelm nær snertingu á boltann og Vestri fær hornspyrnu.
75. mín
Færi! Víðir Freyr fær frían skalla á fjærstönginni eftir hornspyrnu ÍR en hittir boltann illa og setur hann yfir.
72. mín Gult spjald: Edson Eduardo Dias Gomes (Vestri)
Edson tekur Óliver Andra niður og fær réttilega fyrsta gula spjald leiksins.
70. mín
Inn:Óliver Elís Hlynsson (ÍR) Út:Hákon Dagur Matthíasson (ÍR)
Þreföld skipting heimamanna
70. mín
Inn:Óliver Andri Einarsson (ÍR) Út:Hrafn Hallgrímsson (ÍR)
70. mín
Inn:Víðir Freyr Ívarsson (ÍR) Út:Orri Bjarkason (ÍR)
66. mín
ORRI Orri með skot rétt fram hjá markinu. Enn sækja Breiðhyltingar.
65. mín
Langt innkast hjá ÍR sem Bergvin fannar skallar áfram á Guðjón sem kemur honum á markið en beint á Marvin.

ÍRingar með öll völd þessa stundina.
63. mín
Emil tekur spyrnuna sem ratar beint í veggnum og Balde liggur eftir. Virðist hafa fengið boltann beint í magann.
62. mín
Konstantin sparkar Orra niður rétt fyrir utan teig og er niðurstaðan aukaspyrna á hættulegum stað.
58. mín
Guðjón Máni með fastan skalla úr fínu færi en beint á Marvin sem grípur boltann.
57. mín
Konstantin fullur sjálfstrausts reynir skot frá miðju úr aukaspyrnu en ekkert vesen á Vilhelm í þetta skiptið.
54. mín
ÍRingar þjarma að marki Vestra en komast ekkert áleiðis.
50. mín MARK!
Konstantin Cheshmedjiev (Vestri)
Stoðsending: Breki Þór Hermannsson
ÍSINN ER BROTINN Konstantin með skot fyrir utan teiginn sem fer beint á Vilhelm í markinu en hann missir boltann klaufalega í gegnum klofið á sér og boltinn lekur inn.
48. mín
Boltinn fer aftur fyrir mark ÍR og Vestri fær hornspyrnu og bekkur Breiðhyltinga lætur vel í sér heyra.
46. mín
Síðari hálfleikur farinn af stað Við vonumst eftir aðeins meiri skemmtun.
45. mín
Hálfleikur
Ekki sekúndu bætt við þennan rólega fyrri hálfleik.

Tökum okkur 15 mínútna hlé.
44. mín
Halldór Atli með hægri fótar skot sem fer rétt yfir markið.

Síðustu mínútur hafa verið líflegar.
43. mín
ÍRingar keyra hratt upp völlinn og Hákon rennir boltanum á Guðjón sem skýtur fram hjá markinu.
42. mín
Selvén með góðan bolta fyrir markið úr hornspyrnu og mikið klafs myndast inni á teignum sem endar með skoti frá Phete en það ratar ekki á markið.
40. mín
Hákon Dagur með góðan sprett og sækir hornspyrnu. Boltanum er hreinsað frá og Halldór tekur skot af 40 metra færi sem endar víðsfjarri markrammanum.
35. mín
Balde vinnur boltann af Hákoni og gefur á Fall sem tekur skot sem fer yfir markið.
34. mín
Duah dæmdur rangstæður í þriðja sinn hér í dag og Badu ekki sáttur út í hann.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
30 mínútur á klukkunni og hafa þær verið afar rólegar.
25. mín
Fyrsta færið komið! Marvin neglir boltanum fram beint á pönnuna á Breka sem flikkar boltanum í gegn á Duah sem er einn á móti Vilhelm sem sér við honum.
23. mín
Selvén keyrir upp völlinn og gefur á Balde sem kemur með góða fyrirgjöf en Breki nær ekki að teygja sig í boltann og Vilhelm handsamar hann.
18. mín
Góð fyrirgjöf í hættusvæðið frá Ágústi en Bergvin Fannar kiksar boltann úr góðri stöðu.
14. mín
Nú komið að Vestra að halda aðeins í boltann en við bíðum enn eftir fyrsta alvöru marktækifærinu.
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
10. mín
ÍRingar halda áfram að þjarma að Vestramönnum og fá aukaspyrnu í góðri fyrirgjafastöðu.
8. mín
Spyrnan tekin stutt og Emil Nói á fyrsta skot leiksins sem ratar fram hjá markinu.
7. mín
ÍR heldur meira í boltann hér og sækir fyrstu hornspyrnu leiksins.
5. mín
Leikurinn fer rólega af stað.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn farinn af stað hér í Breiðholtinu.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin Jóhann Birnir gerir 5 breytingar frá skellnum gegn Ægi í síðustu umferð. Halldór, Hrafn, Kristján, Guðjón og Hákon koma allir inn í byrjunarliðið.

Badu gerir þrjár breytingar frá 0-3 tapinu gegn Njarðvík en Johannes Selvén, Emmanuel Duah og Guðmundur Páll taka sæti í byrjunarliðinu frá síðasta leik.
Fyrir leik
Vestri Vestri situr í 9. sæti einnig með 7 stig eftir 6 leiki en þeir koma inn í þennan leik kaldir eftir síðustu leiki liðsins. Liðið hefur fengið á sig 8 mörk í síðustu tveimur umferðum, nú síðast tapaði liðið 0-3 gegn Njarðvíkingum á Kerecisvellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
ÍR ÍR situr í 8. sæti með 7 stig eftir 6 leiki en einungis 2 stig eru í 5. sætið sem gefur sæti í umspilinu um sæti í Bestu deildinni á næsta ári. Í síðustu umferð máttu Breiðhyltingar þola þungt 4-1 tap fyrir Ægi sem var fyrsti sigur Ægismanna og er því mikilvægt fyrir Breiðhyltinga að ná í úrslit hér í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Adam spáir sannfærandi sigri Adam Ægir Pálsson, leikmaður Vals, spáði fyrir um úrslit 7. umferðar Lengjudeildar karla. Spáði hann þægilegum 3-0 sigri heimamanna og bendir á að fylgjast með Ísaki Atla, leikmanni ÍR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Breiðhyltingar bæta við sig Í gær tilkynni knattspyrnudeild ÍR að nýr leikmaður væri genginn til liðs en það er hann Róbert Kolbeins Þórarinsson. Róbert kemur úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum þar sem hann er nýústkrifaður úr Eckerd College og er hafsent að upplagi.
Fyrir leik
Dómarateymið Dómari leiksins hér í dag er hann Stefán Ragnar Guðlaugsson pg aðstoðardómararnir tveir eru þeir Ragnar Þór Bender og Breki Sigurðsson, eftirlitsmaður er Jón Magnús Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Breiðholtið heilsar Heil og sæl og verið velkomin í textalýsingu fyrir leik ÍR og Vestra í 7. umferð Lengjudeildar karla. Bæði lið þurfa á stigum að halda hér í dag en liðin sitja í 8. og 9 sæti með jafn mörg stig.
Byrjunarlið:
1. Marvin Darri Steinarsson (m)
3. Edson Eduardo Dias Gomes ('78)
6. Ibrahima Balde
11. Johannes Selvén ('83)
12. Thibang Phete
19. Emmanuel Duah ('83)
22. Elmar Atli Garðarsson (f)
23. Breki Þór Hermannsson ('89)
29. Konstantin Cheshmedjiev
45. Guðmundur Páll Einarsson ('78)
77. Sergine Fall
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
33. Benedikt Jóhann Þ. Snædal (m)
2. Gabríel Heiðberg Kristjánsson ('89)
13. Albert Ingi Jóhannsson
14. Birkir Eydal ('83)
15. Guðmundur Arnar Svavarsson ('78)
17. Gunnar Jónas Hauksson ('78)
18. Marinó Steinar Hagbarðsson ('83)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Jón Þór Hauksson (Þ)
Daniel Osafo-Badu (Þ)
Vladan Djogatovic (MÞ)
Jón Ólafur Ragnarsson (Liðsstj.)
Ferran Montes I. Corominas (Styrktarþj.)

Gul spjöld:
Edson Eduardo Dias Gomes ('72)

Rauð spjöld: