Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Besta karla
ÍBV
4' 0
0
Keflavík
Besta karla
Þór
1' 0
0
Stjarnan
Lengjudeild karla
Leiknir R.
4' 0
0
HK
Besta karla
KR
5' 1
0
KA
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 2
3
Ægir
Lengjudeild karla
Njarðvík
LL 1
2
Grótta
Lengjudeild karla
ÍR
LL 0
1
Vestri
Vináttulandsleikur
Japan
LL 1
0
Ísland
Njarðvík
1
2
Grótta
0-1 Grímur Ingi Jakobsson '49
Hrafn Guðmundsson '83 1-1
1-2 Axel Sigurðarson '90
31.05.2026  -  14:00
JBÓ völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Sólin skín og mikill vindur
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Byrjunarlið:
1. Guy Smit (m)
2. Felix Lima Santos ('46)
5. Arnar Helgi Magnússon
6. Arnleifur Hjörleifsson
7. Bragi Karl Bjarkason
10. Valdimar Jóhannsson ('69)
11. Freysteinn Ingi Guðnason ('32)
14. Aron Einarsson ('79)
17. Símon Logi Thasaphong ('69)
21. Alexander Helgi Sigurðarson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson (f)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Daði Fannar Reinhardsson (m)
3. Sigurjón Már Markússon ('46)
8. Leandro Fernandes ('69)
9. Oumar Diouck ('79)
16. Hrafn Guðmundsson ('32)
29. Haraldur Smári Ingason ('69)
77. Guðmundur Magnússon
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
N/A (Styrktarþj.)
Halldór Geir Heiðarsson (AÞ)
Stefán Marteinn Ólafsson (Liðsstj.)
Jaizkibel Roa Argote (MÞ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Frábær seinni hálfleikur að baki Ótrúlegur 1-2 sigur Gróttu á Njarðvík.

Eftir rólegan fyrri hálfleik varð sá seinni mun betri og Gróttumenn munu fara sáttir heim og þá sérstaklega Axel Sigurðarsson eftir þetta ótrúlega mark.

Takk fyrir mig, skýrsla væntanleg.
95. mín
Njarðvík fá horn á 95 mínútu Guy mættur inn á teiginn.

Grótta hreinsa.
91. mín
Inn:Patrik Orri Pétursson (Grótta) Út:Andri Freyr Jónasson (Grótta)
90. mín MARK!
Axel Sigurðarson (Grótta)
Stoðsending: Dagur Bjarkason
ÓTRÚLEGT MARK!!!!!! Grótta taka innkastið á Axel sem tekur illa á móti boltanum og ákveður bara að skjóta og sá hitti hann á ótrúlegan hátt sláinn, stönginn inn.
Guy Smit átti ekki séns í þetta.

Þetta verður 100% eitt af mörkum tímabilsins!
89. mín
Grótta fá horn Taka það stutt og enda á því að fá innkast
87. mín
Oumar Diouk gerir vel að snúa af sér varnamann Gróttu og á ferðina en tekur skotið of snemma og það fer beint á Guðmund í markinu.
85. mín
Stönginn!!! Alexander Helgi kemst inn á teig Gróttu og tekur fast skot í stöngina.

Njarðvík að ógna sigurmarkinu mikið þessa stundina.
83. mín MARK!
Hrafn Guðmundsson (Njarðvík)
Stoðsending: Arnleifur Hjörleifsson
Þeir jafna!! Leandro Fernandes kemur með frábæran bolta út á vinstri kantinn á Arnleif sem sendir boltann fyrir beint á kollinn á Hrafni sem skallar boltann í fjærhornið.

79. mín
Inn:Oumar Diouck (Njarðvík) Út:Aron Einarsson (Njarðvík)
Fyrsti leikurinn hjá Oumar í sumar.
73. mín
Góð varsla! Nökkvi Már með fast skot fyrir utan teig sem Guy gerir vel að verja í horn.
72. mín
Færi!! Skyndisókn hjá Gróttu, Kristófer keyrir upp kantinn og átti sendingu inn á teig sem var ekkert sérstök en Njarðvík klaufalegir og missa leikmann Gróttu framfyrir sig sem nær skoti á markið en Guy snöggur út og ver vel.
69. mín
Inn:Haraldur Smári Ingason (Njarðvík) Út:Valdimar Jóhannsson (Njarðvík)
69. mín
Inn:Leandro Fernandes (Njarðvík) Út:Símon Logi Thasaphong (Njarðvík)
66. mín
Inn:Einar Tómas Sveinbjarnarson (Grótta) Út:Tristan Freyr Ingólfsson (Grótta)
66. mín
Inn:Axel Sigurðarson (Grótta) Út:Mattías Kjeld (Grótta)
64. mín
Valdimar með skot yfir rétt fyrir utan teig.
60. mín
Njarðvík að ógna! Njarðvík gal opna vörn Gróttu og Arnleifur er komin í kjörstöðu til að leggja upp auðvelt mark en sendingin beint á Gróttumann og þeir hreinsa.
56. mín
Rólegt yfir þessu eftir markið, Njarðvík hafa aðeins verið að ógna en ekkert hættulegt.
49. mín MARK!
Grímur Ingi Jakobsson (Grótta)
Stoðsending: Andri Freyr Jónasson
Vááááááá!!!! Grótta vinna boltann í uppspili Njarðvíkur, Andri fær boltann og rennir honum á Grím sem klínir boltanum í skeytinn. Frábært skot.

Sigurjón Már var virkilega klaufalegur í aðdraganda marksins, hann heldur bolta inn á sem var á leiðinni út fyrir í markspyrnu, hleypur síðan upp völlinn og gefur boltann frá sér beint á Gróttumann.
46. mín
Inn:Sigurjón Már Markússon (Njarðvík) Út:Felix Lima Santos (Njarðvík)
Njarðvík gerðu skiptingu í hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað Grótta byrja þetta og sækja með vindinn.
45. mín
Hálfleikur
Tíðindalítill fyrri hálfleikur að baki Bæði til hafa verið í mismundandi erfiðleikum, Njarðvík hafa átt í erfitt með sendingar á köflum og Grótta átt erfitt með vindinn.

Tökum okkur 15 mínútna pásu.
45. mín
Hálfleikur
+2 í uppbót
41. mín
Grótta fá horn eftir gott spil. Njarðvík hreinsa.
36. mín
Björgvin Brimi liggur eftir tæklingu frá Felix Santos.
Hann stendur upp og það virðist vera í lagi með hann.
32. mín
Vel spilað hjá Gróttu. Mattías og Tristan spila vel á vinstri kantinum, Tristan sendir boltann fyrir á kollinn á Grím sem skallar yfir.
32. mín
Inn:Hrafn Guðmundsson (Njarðvík) Út:Freysteinn Ingi Guðnason (Njarðvík)
Freysteinn af velli, möguleg meiðsli á hrjá hann.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Tristan með skot fyrir utan teig sem fer hátt yfir markið.
27. mín
Njarðvík í færi. Freysteinn fær boltann rétt fyrir utan teig Gróttu, hann sendir hann út á Arnleif Hjörleifsson sem á skot beint á Guðmund í markinu.
23. mín
Skot frá miðju! Guðmundur stendur framarlega á sínum helming og Njarðvík reyna skot frá miðju sem Guðmundur slær í horn.

Guðmundur virðist hafað lent á stönginni og fær aðhlynningu
17. mín
Grótta með tvær fyrirgjafir í sömu sókn, í þeirri fyrra hreinsaði Eiður Aron og seinni greip Guy Smit boltann.
15. mín
Grótta aðeins að vakna! Gróttumenn vinna sig vel upp hægri kantinn og koma með sendingu fyrir sem Njarðvíkurmenn voru ekki í vandræðum með.
11. mín
Fyrsta færið! Grótta hreinsa hornspyrnuna en boltinn berst aftur til Njarðvíkinga sem senda boltann fyrir þar sem leikmaður Njarðvíkur kemmst í skotfæri en skýtur yfir.
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
10. mín
Njarðvík fá horn.
8. mín
Njarðvík fá aukaspyrnu í góðri fyrirgjafarstöðu. Grótta hreinsa eftir smá klafs í teignum.
5. mín
Njarðvík halda boltanum að mestu leiti hér í byrjun en ógna lítið.
2. mín
Öflugur leikmaður snýr til baka hjá Njarðvík Það eru góðar fréttir fyrir Njarðvíkinga að Oumar Diouck er mættur aftur í leikmannahópinn eftir meiðsli. Hann endaði sem jafnmarkahæsti leikmaður deildarinnar í fyrra, en meiddist á hné í vetur og hefur því verið fjarri góðu gamni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. mín
Leikur hafinn
Njarðvík sparka þessu í gang.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja Liðið ganga hér inn á völlinn og gera sig klár.
Fyrir leik
Grótta Lið Gróttu hefur verið í miklum uppgang í síðustu leikjum og þeir hafa unnið þrjá leiki af síðustu fjórum í Lengjudeildinni. Grótta sitja í 5. sæti deildarinnar eftir sex leiki.
Grótta unnu Þrótt 2-3 í Laugardalnum á síðustu helgi í mjög svo skemmtilegum leik.
Fyrir leik
Njarðvík Njarðvík koma inn í þennan leik í 6. sæti. Eftir að hafa hikstast aðeins í byrjun er liðið komið á flottan stað í deildinni og getað með sigri í dag farið yfir mótherja sína í Gróttu og kannski lengra ef úrslit umferðarinnar fara þeim í hag.
Njarðvík gerðu góða ferð vestur á Ísafjörð í síðustu umferð þar sem þeir lögðu Vestra 3-0.
Fyrir leik
Dómarateymið Dómari leiksins í dag er hann Þórður Þorsteinsson Þórðarsson (ÞÞÞ) og honum til halds og traust eru Guðni Freyr Ingvarsson og Þráinn Jón Elmarsson. Eftirlitsmaður er Gunnar Helgasson.

Mynd: Víkingur - Hörður Ágústsson

Fyrir leik
Velkomin til Njarðvíkur Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir til Njarðvíkur þar sem leikur Njarðvíkur og Gróttu fer fram í Lengjudeildinni. Leikurinn er liður í 7. umferð deildarinnar og flautar Þórður Þorsteinsson Þórðarson til leiks klukkan 14:00 á JBÓ vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
31. Guðmundur Rafn Ingason (m)
4. Dagur Bjarkason
7. Björgvin Brimi Andrésson
8. Caden Robert McLagan
9. Andri Freyr Jónasson ('91)
10. Grímur Ingi Jakobsson (f)
20. Kristófer Dan Þórðarson
21. Tristan Freyr Ingólfsson ('66)
24. Nökkvi Már Nökkvason
30. Mattías Kjeld ('66)
96. Emil Skúli Einarsson
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
1. Alexander Arnarsson (m)
3. Jónatan Ari Bragason
5. Patrik Orri Pétursson ('91)
11. Axel Sigurðarson ('66)
13. Björgvin Stefánsson
14. Einar Tómas Sveinbjarnarson ('66)
25. Elmar Freyr Hauksson
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Paul Benjamin Westren (AÞ)
Patrekur Ingi Þorsteinsson (Liðsstj.)
Bjarni Björnsson (Styrktarþj.)
Anton Bogdanov (MÞ)
Halldór Svavar Sigurðsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: