Leik lokið!
94. mín
Leiktíminn er liðinn en aðeins bætt við vegna meiðsla Marvin.
93. mín
ÍR fær aukaspyrnu
Skalli sem ratar ekki á markið og Vestramenn fá markspyrnu.
90. mín
4 mínútum bætt við.
90. mín
Fall með vesen inni í eigin teig og nær ekki að hreinsa en Marvin handsamar knöttinn að lokum og virðist hafa fengið eitthvað högg þar sem hann liggur eftir.
89. mín
InnGabríel Heiðberg Kristjánsson
ÚtBreki Þór Hermannsson
87. mín
Vestri að spila 6-3-1 þessar lokamínútur og ætla að sigla þessu heim.
85. mín
ÍR klaufar að missa boltann og Vestramenn gera vel og halda í boltann og róa þetta niður.
83. mín
InnMarinó Steinar Hagbarðsson
ÚtJohannes Selvén
83. mín
InnBirkir Eydal
ÚtEmmanuel Agyeman Duah
81. mín
ÍR sækir
Góð hreyfing hjá Ágústi sem kemur sér í gott færi en Marvin ver vel.
80. mín
Tíu mínútur eftir og ÍRingar í leit að jöfnunarmarkinu.
80. mín
InnTareq Shihab
ÚtEmil Nói Sigurhjartarson
80. mín
InnAndré Musa Solórzano Abed
ÚtKristján Atli Marteinsson
78. mín
InnGunnar Jónas Hauksson
ÚtGuðmundur Páll Einarsson
78. mín
InnGuðmundur Arnar Svavarsson
ÚtEdson Eduardo Dias Gomes
76. mín
Balde sendir Breka inn fyrir vörnina en Vilhelm nær snertingu á boltann og Vestri fær hornspyrnu.
75. mín
Færi!
Víðir Freyr fær frían skalla á fjærstönginni eftir hornspyrnu ÍR en hittir boltann illa og setur hann yfir.
72. mín
Gult spjald
Edson Eduardo Dias Gomes
Edson tekur Óliver Andra niður og fær réttilega fyrsta gula spjald leiksins.70. mín
InnÓliver Elís Hlynsson
ÚtHákon Dagur Matthíasson
Þreföld skipting heimamanna
70. mín
InnÓliver Andri Einarsson
ÚtHrafn Hallgrímsson
70. mín
InnVíðir Freyr Ívarsson
ÚtOrri Bjarkason
66. mín
ORRI
Orri með skot rétt fram hjá markinu. Enn sækja Breiðhyltingar.
65. mín
Langt innkast hjá ÍR sem Bergvin fannar skallar áfram á Guðjón sem kemur honum á markið en beint á Marvin.
ÍRingar með öll völd þessa stundina.
ÍRingar með öll völd þessa stundina.
63. mín
Emil tekur spyrnuna sem ratar beint í veggnum og Balde liggur eftir. Virðist hafa fengið boltann beint í magann.
62. mín
Konstantin sparkar Orra niður rétt fyrir utan teig og er niðurstaðan aukaspyrna á hættulegum stað.
58. mín
Guðjón Máni með fastan skalla úr fínu færi en beint á Marvin sem grípur boltann.
57. mín
Konstantin fullur sjálfstrausts reynir skot frá miðju úr aukaspyrnu en ekkert vesen á Vilhelm í þetta skiptið.
54. mín
ÍRingar þjarma að marki Vestra en komast ekkert áleiðis.
50. mín
ÍSINN ER BROTINN
Konstantin Cheshmedjiev (stoðsending: Breki Þór Hermannsson)
Konstantin með skot fyrir utan teiginn sem fer beint á Vilhelm í markinu en hann missir boltann klaufalega í gegnum klofið á sér og boltinn lekur inn.48. mín
Boltinn fer aftur fyrir mark ÍR og Vestri fær hornspyrnu og bekkur Breiðhyltinga lætur vel í sér heyra.
46. mín
Síðari hálfleikur farinn af stað
Við vonumst eftir aðeins meiri skemmtun.
45. mín
Hálfleikur
Ekki sekúndu bætt við þennan rólega fyrri hálfleik.
Tökum okkur 15 mínútna hlé.
Tökum okkur 15 mínútna hlé.
44. mín
Halldór Atli með hægri fótar skot sem fer rétt yfir markið.
Síðustu mínútur hafa verið líflegar.
Síðustu mínútur hafa verið líflegar.
43. mín
ÍRingar keyra hratt upp völlinn og Hákon rennir boltanum á Guðjón sem skýtur fram hjá markinu.
42. mín
Selvén með góðan bolta fyrir markið úr hornspyrnu og mikið klafs myndast inni á teignum sem endar með skoti frá Phete en það ratar ekki á markið.
40. mín
Hákon Dagur með góðan sprett og sækir hornspyrnu. Boltanum er hreinsað frá og Halldór tekur skot af 40 metra færi sem endar víðsfjarri markrammanum.
35. mín
Balde vinnur boltann af Hákoni og gefur á Fall sem tekur skot sem fer yfir markið.
34. mín
Duah dæmdur rangstæður í þriðja sinn hér í dag og Badu ekki sáttur út í hann.
30. mín
30 mínútur á klukkunni og hafa þær verið afar rólegar.
25. mín
Fyrsta færið komið!
Marvin neglir boltanum fram beint á pönnuna á Breka sem flikkar boltanum í gegn á Duah sem er einn á móti Vilhelm sem sér við honum.
23. mín
Selvén keyrir upp völlinn og gefur á Balde sem kemur með góða fyrirgjöf en Breki nær ekki að teygja sig í boltann og Vilhelm handsamar hann.
18. mín
Góð fyrirgjöf í hættusvæðið frá Ágústi en Bergvin Fannar kiksar boltann úr góðri stöðu.
14. mín
Nú komið að Vestra að halda aðeins í boltann en við bíðum enn eftir fyrsta alvöru marktækifærinu.
10. mín
ÍRingar halda áfram að þjarma að Vestramönnum og fá aukaspyrnu í góðri fyrirgjafastöðu.
8. mín
Spyrnan tekin stutt og Emil Nói á fyrsta skot leiksins sem ratar fram hjá markinu.
7. mín
ÍR heldur meira í boltann hér og sækir fyrstu hornspyrnu leiksins.
5. mín
Leikurinn fer rólega af stað.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn farinn af stað hér í Breiðholtinu.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin
Jóhann Birnir gerir 5 breytingar frá skellnum gegn Ægi í síðustu umferð. Halldór, Hrafn, Kristján, Guðjón og Hákon koma allir inn í byrjunarliðið.
Badu gerir þrjár breytingar frá 0-3 tapinu gegn Njarðvík en Johannes Selvén, Emmanuel Duah og Guðmundur Páll taka sæti í byrjunarliðinu frá síðasta leik.
Badu gerir þrjár breytingar frá 0-3 tapinu gegn Njarðvík en Johannes Selvén, Emmanuel Duah og Guðmundur Páll taka sæti í byrjunarliðinu frá síðasta leik.
Fyrir leik
Vestri
Vestri situr í 9. sæti einnig með 7 stig eftir 6 leiki en þeir koma inn í þennan leik kaldir eftir síðustu leiki liðsins. Liðið hefur fengið á sig 8 mörk í síðustu tveimur umferðum, nú síðast tapaði liðið 0-3 gegn Njarðvíkingum á Kerecisvellinum.


Fyrir leik
ÍR
ÍR situr í 8. sæti með 7 stig eftir 6 leiki en einungis 2 stig eru í 5. sætið sem gefur sæti í umspilinu um sæti í Bestu deildinni á næsta ári. Í síðustu umferð máttu Breiðhyltingar þola þungt 4-1 tap fyrir Ægi sem var fyrsti sigur Ægismanna og er því mikilvægt fyrir Breiðhyltinga að ná í úrslit hér í dag.


Fyrir leik
Adam spáir sannfærandi sigri
Adam Ægir Pálsson, leikmaður Vals, spáði fyrir um úrslit 7. umferðar Lengjudeildar karla. Spáði hann þægilegum 3-0 sigri heimamanna og bendir á að fylgjast með Ísaki Atla, leikmanni ÍR.


Fyrir leik
Breiðhyltingar bæta við sig
Í gær tilkynni knattspyrnudeild ÍR að nýr leikmaður væri genginn til liðs en það er hann Róbert Kolbeins Þórarinsson. Róbert kemur úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum þar sem hann er nýústkrifaður úr Eckerd College og er hafsent að upplagi.
Fyrir leik
Dómarateymið
Dómari leiksins hér í dag er hann Stefán Ragnar Guðlaugsson pg aðstoðardómararnir tveir eru þeir Ragnar Þór Bender og Breki Sigurðsson, eftirlitsmaður er Jón Magnús Guðjónsson.


Fyrir leik
Breiðholtið heilsar
Heil og sæl og verið velkomin í textalýsingu fyrir leik ÍR og Vestra í 7. umferð Lengjudeildar karla. Bæði lið þurfa á stigum að halda hér í dag en liðin sitja í 8. og 9 sæti með jafn mörg stig.





Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í dag.
Ég þakka fyrir mig.