74. mín
InnBríet Jóhannsdóttir
ÚtErin Flurey
Góður leikur hjá Erin Flurey í dag
72. mín
Mist Funadótti með góðann sprett upp kantinn og kemur með boltann inn í teig á Alessöndru sem er í miklu veseni en nær að grípa boltann á endanum
65. mín
Góð sókn!! Dauðafæri
Erin Flurey vinnur boltann hátt uppi á vellinum og kemur boltanum á Elísu sem rennir botlanum yfir á Huldu Ósk sem á skot sem Mollee Swift ver og Elísa mætir svo á fjærstöngina og fylgir eftir en setur boltann í hliðarnetið
63. mín
Alessandra Augur fær sendingu tilbaka og hittir ekki boltann og Unnur Dóra er nálægt því að komast í boltann en Karen Hulda gerir vel og kemur þessu frá
61. mín
InnÞórdís Nanna Ágústsdóttir
ÚtSigríður Theód. Guðmundsdóttir
57. mín
Erin Flurey vinnur boltann og skýtur lengst fyrir utan teig annað svona skot frá Þór/KA aldrei nálægt því að skora
56. mín
Margrét Árnadóttir með skot lengst fyrir utan teig sem fer langt framhjá en Þór/KA hafa ger vel að klárar sínar sóknir með skoti
55. mín
Þór/KA í skydisókn en Hulda Ósk með slaka sendingu á Erin Flurey en sóknin endar í hornspyrnu fyrir Þór/KA
53. mín
Þróttur fær hornspyrnu
50. mín
Hildur Anna með 2 skot rétt fyrir utan teig sem fara bæði beint í varnarmann
49. mín
Gult spjald
Alexia Marin Czerwien
First gula spjaldið fyrir að toga aftan í Hildi Önnu eftir að hún komst framhjá Alexiu48. mín
Hulda Ósk með bjartsýnis skot fyrir utan teig sem fer langt framhjá
47. mín
Komin grenjandi rigning á Akureyri og völlurinn vel blautur
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað!
Þróttur R. sparka seinni hálfleiknum í gang þær hljóta að mæta grimmari til leiks í seinni!
45. mín
2-0 í hálfleik
Þór/KA virkilega flottar í þessum fyrri hálfleik. Jóhann Kristinn þjálfari Þróttar þarf að bregðast við þessu í hálfleik býst við að hann breyti einhverju.
45. mín
+1
Þróttur R. fá hornspyrnu
45. mín
Þór/KA fá hornspyrnu
44. mín
Áhorfendur í dag eru 171!
Ágætlega mætt hérna í dag
43. mín
Þróttur eru í veseni að spila sig upp völlinn úr þessari pressu sem Þór/KA eru búnar að vera með í fyrri hálfleik
38. mín
Þór/KA vilja hendi en sýndist Mist Funadóttir vera að styðja sig við jörðina og vera með hana í frekar náttúrulegri stöðu
35. mín
Þór/KA miklu betra þessa stundina ógna mikið og pressa hátt
32. mín
Hulda Ósk með skot fyrir utan teig beint í andlitið á Sæunni og boltinn endar í hornspyrnu, Sæunn liggur eftir og þarf aðhlynningu.
30. mín
Byrjað að rigna aðeins á Akureyri
28. mín
Þróttur með góða hornspyrnu sem Arna Sif nær að skalla aftur fyrir og þær fá annað horn
25. mín
MAARKK! 2-0!!!!
Amalía Árnadóttir (stoðsending: Erin Flurey)
Erin Flurey vinnur boltann ofarlega á vellinum og kemur með sendingu út í teiginn beint á Amalíu sem klárar þetta vel og Þór/KA að spila virkilega vel!
23. mín
Margrét Árnadóttir með frábæra takta upp við endalínu og ætlar svo að renna boltanum inn á teiginn en Þróttarar koma þessu frá
16. mín
MAAAARKK! ÞÓR/KA eru að komast yfir 1-0
María Dögg Jóhannesdóttir
Elísa Bríet á skot í varnarmann sem skoppar út í teiginn beint á Maríu Dögg sem klippir boltann á lofti og Mollee átti aldrei séns í þennan bolta! Þvílíkt mark!
11. mín
Þór/KA fá hornspyrnu sem endar í aukaspyrnu fyrir Þrótt
9. mín
Sæunn Björnsdóttir með aukaspyrnu sem fer beint á Alessandra Augur í markinu
7. mín
Dauðafæri!!!
Fyrirgjöf inn í teig þar sem Jelena Tinna er ein fyrir framan markið en hún skallar boltann framhjá!!
Þetta hefði getað verið mark!
6. mín
Fyrstu hornpyrnu leiksins fær Þróttur
3. mín
Amalía með fyrsta skot á markið en Mollee Swift ver vel
2. mín
Mikel barátta á miðjum vellinum sem endar með broti og Þór/KA fá aukaspyrnu á fínum stað
1. mín
Þetta er farið af stað!
Þór/KA byrja með með boltann og sparka þessu í gang, Góða skemmtun.
Fyrir leik
Liðin eru að labba inn á völlinn
Liðin eru að gera sig klár og eru að ganga inn á völlinn
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Þór/KA gera eina breytingu á sínu liði frá 0-0 jafnteflinu við Val í seinustu umferð Karen María sest á bekkinn og inn fyrir hana kemur Erin Flurey.
Þróttur R. gera 3 breytingar á sínu liði frá 0-0 jafnteflinu við ÍBV, inn koma Kristrún Ýr Holm, Brynja Rán Knudsen og Alexia Marin Czerwien út úr byrjunarliðinu fara Þórdís Elva Ágústsdóttir, Björg Gunnlaugsdótti og María Eva Eyjólfsdóttir.


Fyrir leik
Spáin
Magnús Haukur spáir í 9. umferð Bestu kvenna og hafði þetta að segja um leikinn.
Þór/KA 1 - 0 Þróttur R. (18:00 í kvöld)
Fáum einstaklega leiðinlegan og lokaðan leik þar sem að sigurmarkið kemur eftir hornspyrnu á 76 min. Viðtölin eftir leik verða skemmtileg.
Fyrir leik
Dómarar
Aðaldómari í dag er Ásmundur Þór Sveinsson og honum til aðstoðar eru Leyla Ósk Jónsdóttir og Birkir Örn Pétursson.
fjórði dómari er Sveinn Arnarsson

Fyrir leik
Staða liðanna
Þór/KA eru á botni deildarinnar með 3 stig á meðan Þróttur R. sitja í 5.sæti með 13 stig einu stigi frá 3.sæti.
Þór/KA gerðu 0-0 jafntefli á útivelli gegn Val í seinustu umferð og Þróttur R. gerðu einnig 0-0 jafntefli á móti ÍBV á heimavelli.
Munu Þór/KA ná að sækja sinn fyrsta sigur í deild í flottu veðri á Akureyri í dag?


Fyrir leik
9.umferð í Bestu deild kvenna
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu á leik Þórs/KA og Þróttar R. í 9. umferð Bestu deildar kvenna.




