35. mín
Andrea Mist fær boltann við vítateigslínuna og lætur vaða en boltinn hátt yfir
31. mín
Andrea með hornið en Ashley grípur þetta örugglega
30. mín
Fanney Lísa komin upp að endalínu og ætlar að setja hann fyrir en Brookelynn rennir sér fyrir, Horn!
29. mín
Úfffff
Taylor í baráttu við Telmu en er nautsterk og nær svo að snúa hana af sér rennir boltanum fyrir en boltinn svo rétt framhjá markinu
28. mín
Andrea sem fyrr með hornið en það svífur beint útaf á nær
27. mín
Stjörnukonur sækja þriðja hornið á stuttum tíma eftir fínustu skyndisókn
25. mín
Andrea með horn fyrir Stjörnukonur en Taylor Marie nær að skalla þetta frá
23. mín
Andrea tekur hornið stutt á Úlfu, fær hann aftur og setur hann háan fyrir en Ashley Brown vel á verði kýlir boltann í burtu
23. mín
Úlfa Dís nælir í horn fyrir Stjörnukonur
20. mín
Jakobína fær tiltal frá Bergrósu dómara leiksins fyrir brot á öldu
16. mín
Sara Svanhildur kemst í góða stöðu ætlar að lauma boltanum inn á Taylor en ekki nægilega nákvæm sending
15. mín
Stálheppnar
Ashley Brown Orkus HEPPIN þarna, ætlaði að leggjast auðveldlega niður og taka léttan bolta en MISSIR hann frá sér, Framkonur stálheppnar þarna að Fanney Lísa var ekki á tánum
13. mín
Framkonur eru að mæta hérna að þvílíkum krafti, þetta er spilamennskan sem þær hefðu þurft að sýna fyrr í sumar
12. mín
Brookelynn gerir vel og kemst inn í sendingu, tekur boltann með sér út að endalínu, reynir svo að setja hann út í teiginn en Stjörnukonur ná að komast í þetta áður en hættan verður of mikil!
9. mín
Una Rós með aukaspyrnu af vinstri kantinum en hún setur hann á nær þar sem engin frammari er...
8. mín
Taylor!
Taylor Marie böðlast í gegnum Stjörnuvörnina og nær skoti á markið en það er hárfínt framhjá! Það er sjálfstraust í Framkonum hérna!
7. mín
Brookelynn með frábæra fyrirgöf á fjær þar sem Alda er í góðri stöðu en þær skalla tvær saman og boltinn út fyrir endalínu!
Þetta var alvöru færi
6. mín
Úlfa Dís með stórhættulega fyrirgjöf sem eiginlega bara lekur í gegnum teiginn, stórhættulegur bolti sem Snædís náði ekki að gera sér mat úr
5. mín
Una Rós tekur aðra spyrnu en Skiba nær að kýlann frá
5. mín
Una Rós tekur spyrnuna og minnstu mátti þarna muna að þær næðu boltanum inn!
4. mín
Brookelynn skýtur í varnarmann út við endalínu og nælir í horn fyrir gestina
1. mín
Snædís María sparkar þessu af stað fyrir heimakonur
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin ganga hér út á völlinn, við erum alveg á áætlun!
Hvet annars þá sem sjá þessa textalýsingu að drífa sig á Samsungvöllinn, hér er allt til alls! Sjoppan opin, grillið rjúkandi heitt og skemmtilegur leikur í vændum
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
Stjarnan
Óskar Smári þjálfari Stjörnunar gerir 4x breytingar á liðinu sínu frá bikarleiknum gegn Gri/Nja, inn kemur Jakobína, Fanney Lísa, Snædís María og Andrea Mist. Á bekkinn setjast Rósa María, Hrefna, Aníta Ýr og Erika Ýr
Fram
Anton Ingi gerir einnig 2x breytingar á sínu liði frá bikarleik sínum gegn FHL. Inn koma Júlía Margrét og Freyja Dís en á bekkinn setjast Kristín Magdalena og Sylvía.
Fyrir leik
Magnús Haukur spáir í 9. umferðina
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson spáir í leikina að þessu sinni.
Stjarnan 4 - 1 Fram
Eftir ákveðið “meltdown” eftir bikarleikinn mætir Óskar Smári með nýja klippingu og fer það vel í leikmenn liðsins og skora fjögur mörk í öllum regnbogans litum. Fram er auðvitað hátt uppi eftir bikarinn í vikunni og dalnum dreymir.

Fyrir leik
Fram
Framkonur aftur á móti eru í botnbaráttu og sitja í 9. sætinu með 4 stig, 1 stigi á undan Þór/KA í 10. sætinu og 4 stigum á eftir Val í 8. sætinu.
Framkonur hafa ekki verið að ríða feitum hesti í Bestu deildinni í sumar og hafa einungis unnið einn leik og gert eitt jafntefli. Þá hafa þær ekki skorað nema 8 mörk.
Þær hins vegar hljóta að koma hér í dag með sjálfstraust og kassann út en þær skoruðu hvorki meira né minna en 7 mörk í Mjólkurbikarnum sl. miðvikud. gegn Lengjudeildarliðinu FHL.
Þær ættu því að hafa náð að æfa sig nóg í að skora, Taylor Marie Hamlett skoraði m.a. þrennu og þá náði Brookelynn Paige Entz að skora sitt fyrsta mark fyrir Fram.
Ég vil því sjá þær koma með smá blóð á tönnunum og tilbúnar að sækja sigur sem mun hjálpa þeim gríðarlega í botnbaráttunni!

Fyrir leik
Stjarnan
Stjörnukonur sitja fyrir þennan leik í 3. sætinu með 14 stig líkt og ÍBV í 4. sætinu en hafa betri markatölu.
Þá eru þær 4 stigum á eftir Breiðablik í 2. sætinu, sem Stjarnan gerði sér lítið fyrir og sigraði í síðustu umferð 3-1 á Kópavogsvelli. Frábær frammistaða sem þær ætla vafalaust að byggja ofan á í þessum leik.
Það er þó spurning hvort einhver þreyta sitji í Stjörnukonum en þær töpuðu naumlega 2-1 gegn Grindavík/Njarðvík í hörku framlengdum leik í Grindavík sl. fimmtud. Það getur heldur betur tekið á þreyttar lappir að spila 120 mínútur á grasvelli.
En það breytir því ekki að hér erum við komin í Bestu deildina og þrjú stig í pokann getur skipt sköpum í toppbaráttunni!

Fyrir leik
9. umferðin
Þrír leikir eru spilaðir í dag, tveir klukkan 18:00 og svo þessi leikur klukkan 19:15. Umferðin klárast svo á morgun með tveimur leikjum klukkan 19:15.
9. umferðin lítur þá svona út:
Í dag:
18:00 Þór/KA - Þróttur
18:00 ÍBV - Breiðablik
19:15 Stjarnan - Fram
Á morgun:
19:15 Grindavík/Njarðvík - Víkingur
19:15 FH - Valur

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Bergrós Lilja Unudóttir og henni til halds og trausts verða Eydís Ragnarsdóttir og Ingibjörg Garðarsdóttir Briem aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Ágúst Hjalti Tómasson og eftirlitsmaður í dag er Þorsteinn Ólafs.

Fyrir leik
Besta deildin kallar!
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Samsungvellinum þar sem Stjarnan tekur á móti Fram í 9. umferð Bestu deildarinnar
Leikurinn hefst á slaginu 19:15!





