Fotbolti.net
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Lengjudeild karla
Þarfaþingsvöllurinn
ÍR
ÍR
0 - 1
Afturelding
Afturelding
0 - 12' Aron Elí Sævarsson (víti)
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Lærisveinar Magga sigla sigrinum heim

Hvað réði úrslitum?

ÍR var meira með boltann og fékk töluvert fleiri færi. Afturelding var meira til baka og með þétta vörn, eftir fyrsta mark leiksins þá læsti Maggi vörninni. Ekkert komst í gegn í 90 mínútur fyrir utan nokkur færi. Bæði lið voru með góðar varnarframmistöður.

Bestu leikmenn

1. Aron Elí Sævarsson

Fyrirliðinn skoraði eina mark leiksins og var með hreint lak.

2. Axel Óskar Andrésson

Hreint lak, fyrir utan það var vörnin á lás. Hann skallaði og sparkaði alla bolta burt.

Atvikið

Það er vítið. Þegar Aron Elí skorar þá fer Afturelding í vörn og ÍR reynir að leita eftir jöfnunarmarkinu. ÍR lá alveg á þeim en gestirnir náðu að verjast.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding er komin í fyrsta sæti en ÍR er komið í níunda sætið.

Vondur dagur

Það var enginn lélegur í dag, Óðinn Bjarkason missti opið mark, honum líður ábyggilega ekki vel með það.

Dómarinn - 6

Ekkert augljóst atvik, vítið var rétt. Maggi vildi annað víti, sem ég átti erfitt með að sjá þannig að ég segi að það sé rétt metið hjá dómaranum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.