SKÝRSLAN: Hvernig í ósköpunum var þetta ekki Stjörnusigur?
Hvað réði úrslitum?
FH-ingar byrjuðu miklu betur og voru með öll völd fyrstu 10-15 mínúturnar. Þeir skoruðu sitt fyrsta mark á 10. mínútu, en FH-ingar svöruðu fljótlega eftir það. Þá var fyrri hálfleikurinn mjög kaflaskiptur og liðin skiptust á að sækja. 2-2 í hálfleik en í seinni hálfleik var bara spilað á eitt mark. Stjörnumenn gjörsamlega áttu þennan hálfleik en inn vildi boltinn ekki. Því endaði leiktíminn bara á að vera ekki nógu langur og jafntefli niðurstaða.
Bestu leikmenn
1. Jökull Andrésson (FH)
Magnið af skotunum sem Stjarnan átti í seinni var svakalegur. Jökull tók allt sem hann átti að taka, en tók nefnilega líka það sem hann átti bara alls ekki að taka. Frábær leikur frá honum í dag sem bjargaði stigi fyrir heimamenn.
2. Örvar Eggertsson (Stjarnan)
Örvar skoraði gull af marki til að koma Stjörnunni í 2-1 og svo var hann mjög hættulegur fyrir utan það. Einnig bjargaði hann algjöru dauðafæri með flugskalla inn í eigin teig. Ég hefði hins vegar viljað vera með þrjá dálka hér því Kjartan Kári með sínar tvær stoðsendingar á líka skilið hrós.
Atvikið
Á 79. mínútu héldu allir í heiminum að Stjarnan væri að skora sigurmarkið. Atburðarrásin er svona: Horn hjá Stjörnunni og boltinn berst á fjær og er mögulega bara að fara inn beint úr horninu. Nema hvað að boltinn fer í Grétar sem virtist ekkert vita af honum og í slánna og FH-ingar ná að hreinsa.
Stjörnumenn koma boltanum bara strax aftur inn í teig og Alex nær góðum skalla á markið, en Jökull með frábæra vörslu.
Hvað þýða úrslitin?
FH-ingar ennþá ekki tapað núna fjóra leiki í röð og jafna Þórsara af stigum. Því eru þau lið bæði með 8 stig neðst í töflunni. Stjarnan fer upp um eitt sæti, komnir í 15 stigí 7. sæti á undan ÍA vegna markatölu.
Vondur dagur
Erfitt að tala um vondan dag í svona leik. Daníel Finns kemur inná á 69. mínútu og fær þónokkur tækifæri til að verða hetjan. Það var hins vegar bara alltaf varið frá honum eða skotið rétt framhjá. Ég myndi segja óheppinn dagur frekar en vondur.
Dómarinn - 9
Sigurður með eiginlega allt í teskeið í kvöld. Eitt skiptið sem hann dæmir markspyrnu þegar mér sýnist Jökull verja og því ætti það að vera horn. Annars allt mjög gott, leyfði leiknum að flæða og hélt línu.




