Fotbolti.net
@fotboltinetHelgi Inguson
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Grótta
Grótta
2 - 1
HK
HK
Andri Freyr Jónasson 4'1 - 0Andri Freyr Jónasson 20'2 - 02 - 131' Aron Kristófer Lárusson
Dómari: Hreinn Magnússon

SKÝRSLAN: 10 leikmenn Gróttu unnu 10 leikmenn HK

Hvað réði úrslitum?

Ungt lið Gróttu barðist fyrir sigrinum í dag. Eftir að komast tveimur mörkum yfir gerði Grótta vel. HK skapaði sér lítið af opnum færum og Gróttumenn sérstaklega hættulegir í skyndisóknum sínum. Auðvitað er hægt að benda á klikkað víti í stöðunni 2-0 en HK minnkaði muninn sjö mínútum seinna og ekki víst að það hafi breytt gangi leiksins mikið.

Bestu leikmenn

1. Andri Freyr Jónasson

Viðburðarríkar 40 mínútur hjá Andra. Skoraði tvö mörk í dag og framlag hans það sem skilur liðin að. Andri fékk höfuðhögg og þurfti að fara útaf í fyrri hálfleik en Rúnar Páll staðfesti í viðtali að ekki hafi verið um heilahristing að ræða.

2. Halldór Hilmir Thorsteinsson

Það er erfitt að velja menn leiksins í kvöld. Halldór Hilmir var öruggur í öllum sínum aðgerðum í vörninni í kvöld. Það má líka nefna Grím Inga á miðjunni og Björgvin Brima á kantinum sem settu sinn svip á leikinn.

Atvikið

Hreinn lyftir tveimur rauðum spjöldum þegar stundarfjórðungur er eftir af venjulegum leiktíma. Viktor Helgi fær að líta beint rautt spjald fyrir grófa tæklingu á Elmari Frey. Caden McLagan var vægast sagt ósáttur með tæklinguna og hljóp í Viktor Helga sem féll til jarðar. McLagan fékk sitt annað gula spjald fyrir þá tilburði.

Hvað þýða úrslitin?

Grótta styrkir stöðu sína í 8. sæti Lengjudeildarinnar og er nú með 16 stig og aðeins þremur stigum frá sæti í umspilinu. HK er með 19 stig í 5. sæti.

Vondur dagur

Viktor Helgi og Caden McLagan fá báðir rautt spjald í dag. Dominik Radic sem hefur verið góður það sem af er tímabils átti síðan arfaslakan leik í dag í framlínu HK.

Dómarinn - 4

Skrítinn leikur hjá Hreini. Var alls ekki góður í fyrri hálfleik og hafði litla stjórn á leiknum. Mér þótti lítið í vítinu sem hann dæmir og hann er lengi að taka eftir Andra Frey sem vildi koma inná eftir að hafa aðhlynningu. Mér fannst hins vegar allt annað að sjá til hans í seinni hálfleik og að mínu mati neglir hann stóru ákvörðunina þegar tveir leikmenn fá rautt spjald.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.