Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
Besta karla
Hásteinsvöllur
Sól og smá gola.
ÍBV
ÍBV
1 - 0
Valur
Valur
Alex Freyr Hilmarsson 58'1 - 065' Hólmar Örn Eyjólfsson
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Sterkur sigur ÍBV í Goslokaleik

Hvað réði úrslitum?

Í raun nýttu ÍBV færin sín betur, þetta var samt ekki leikur margra færa en þó hefði Tryggvi Hrafn getað jafnað leikinn í síðari hálfleik þegar hann kemst einn í gegn á móti markmanni. Hann ætlaði að vippa yfir Ara í marki ÍBV en boltinn beint í hendur Ara.

Bestu leikmenn

1. Alex Freyr Hilmarsson

Alex er einfaldlega bara drifkraftur ÍBV liðsins og það skína af honum gæðin bæði varnar- og sóknarlega. Hann skorar svo auðvitað úrslitamark leiksins.

2. Milan Tomic

Gott fyrir Eyjamenn að fá hann til baka svona sterkan inn á miðjuna. Skín af honum leikgleðin og hann smitar út frá sér. Hann var ásamt Alex Frey mjög góður inn á miðvæðinu hjá ÍBV. Einnig var Mathias Edeland klettur í vörninni hjá Eyjamönnum.

Atvikið

Rauða spjaldið hjá Hólmari Erni Eyjólfssyni. Stórskrítið að koma sér í þessa stöðu hvort sem hann er sáttur með dóminn eða ekki, þá áttu bara ekki að vera að þessu.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Eyjamenn halda áfram sinni velgengni og eru komnir upp í sjöunda sæti með 15 stig. Valsmenn eru í fimmta sæti með 19 stig og ætluðu sér örugglega meira. Eru með fleiri töp heldur en sigra það sem af er af móti.

Vondur dagur

Hólmar Örn Eyjólfsson fær þetta fyrir að fá rautt spjald á 65. mínútu leiksins. Eins góður leikmaður og Hólmar er þá finnst mér hann koma sér í þessar stöður alltof oft. Þarna skilur hann samherja sína eftir einum færri útaf kjánaskap.

Dómarinn - 7

Twana var heilt yfir bara nokkuð öruggur í sínum leik í dag. Hefði samt getað spjaldað fleiri leikmenn en hann gerði því það var frekar mikil harka í leiknum, þá aðallega á miðjusvæðinu þar sem endalaust var verið að brjóta á mönnum. Ég er samt enginn áhugamaður um of mörg spjöld en þarna fannst mér hann kannski aðeins of soft.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.