Fotbolti.net
@fotboltinetElíza Gígja Ómarsdóttir
EM U19 kvenna - Riðill B
Asim Ferhatovic-Hase
Ísland
Ísland
3 - 4
Sviss
Sviss
0 - 116' Ramona SchallbergerIngibjörg Magnúsdóttir 26'1 - 11 - 228' Ramona Schallberger1 - 345' Melissa Rondalli1 - 463' Emanuela Pfister (víti)Ingibjörg Magnúsdóttir 70'2 - 4Líf Joostdóttir Van Bemme 83'3 - 4

SKÝRSLAN: Ekkert stig á EM niðurstaðan

Hvað réði úrslitum?

Þrátt fyrir að heilt yfir hafi leikur Íslands einkennst af baráttu og hörku þá fannst mér það akkúrat það sem vantaði í öllum mörkunum sem þær fengu á sig. Mér fannst þær ekki verjast heilshugar sem varð til þess að þeim var refsað og tengingin á milli varnarlínunnar og Herdísar virtist aðeins óstöðug en þær voru í veseni með háa bolta inn fyrir allan leikinn. Þrátt fyrir að hafa skorað þrjú mörk þá hefði þessi leikur auðveldlega getað farið 6-4 fyrir Ísland en það vantaði aðeins upp á gæðin fyrir framan markið. Einbeitingarleysi á þessum augnablikum í báðum teigum er það sem fer með leikinn.

Bestu leikmenn

1. Ingibjörg Magnúsdóttir

Eini leikurinn á þessu móti sem hún byrjar og hún heldur betur þakkaði traustið. Setti tvö mörk og var heilt yfir hættuleg. Átti fínar aukaspyrnur sem liðsfélagar hennar hefðu mátt vera grimmari á.

2. Líf Joostdóttir Van Bemmel

Líf fannst mér frábær í leiknum. Ofboðslega agressív í sínum aðgerðum og braut leikinn upp hægri vinstri með sprettum upp hægri kantinn. Skemmir ekki fyrir að hún skorar gott skallamark eftir hornspyrnu frá Védísi.

Atvikið

Þriðja mark Sviss var síðasta spyrna fyrri hálfleiksins og var það ótrúlega svekkjandi mark að fá á sig þar sem að íslenska liðið var búið að vera líklegra til að jafna en Sviss að bæta við. Það hefði verið allt annað að fara inn í seinni hálfleikinn í 1-2 en 1-3.

Hvað þýða úrslitin?

Ísland fer heim af EM með 0 stig og markatöluna 3-11.

Vondur dagur

Berglind Freyja hefði auðveldlega getað sett tvö, ef ekki þrjú, mörk í leiknum í dag en var í krummafót fyrir framan markið. Hún fékk líklega tvö bestu færi Íslands í leiknum, annað þeirra setti hún beint á Zwyssig í markinu og hitt setti hún yfir markið.

Dómarinn - 6

Dómari leiksins var allt of fljót að flauta oft á tíðum og hefði bara mátt sleppa því í einhverjum tilvikum líka. Það var harka í leiknum en ekki þannig að leikurinn væri að fara úr böndunum og hann hefði mátt flæða betur. Eina stóra ákvörðunin sem teymið þurfti að taka var vítið og þau negldu það en heilt yfir nokkuð pirrandi frammistaða fannst mér.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.