SKÝRSLAN: Blikar skemma fyrir Skagamönnum
Hvað réði úrslitum?
Skiptingar hjá Óla Skúla réði þessu, leikurinn breytist í seinni hálfleik Blikar mun sprækari.
Bestu leikmenn
1. Þór Andersen Willumson
Kom inn sem varamaður og skorðai sigurmark og sitt fyrsta mark í efstu deild.
2. Dagur Örn Fjeldsted
Kom inn í lið blika og var mjög góður og lagði upp sigurmark Blika.
Atvikið
Þegar Þór Andersen Skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild. Hann var mjög líflegur þegar hann kom inn fær þetta frá mér.
Hvað þýða úrslitin?
Að Blikar eru komnir á gott skrið og vandræði Skagamanna halda áfram að loka leikjum.
Skagamenn sitja nú í 9.sæti deildarinnar meðan Blikar sitja í því fjórða
Vondur dagur
Verð að setja það á sóknarleik ÍA í heild fengu fullt af færum en nýttu ekkert af þeim
Dómarinn - 7
Elli fær 7 frá mér enginn vafaatriði nema Skagamenn gleyma honum aldrei fyrir frægan leik gegn Víkingum fyrir tveimur árum.




