SKÝRSLAN: EuroVikes byrja vel
Hvað réði úrslitum?
Víkingar voru mun betri aðilinn frá fyrstu mínútu og fengu mikið af góðum færum en tókst loksins að skora eftir mikið harðfylgi Nikolaj Hansens. Víkingar áttu sigurinn fyllilega skilið og hefðu í raun átt að vinna leikinn stærra.
Bestu leikmenn
1. Oliver Ekroth
Var virkilega góður í vörninni og vann klárlega baráttuna á milli hans og framherja Györ, sem þeir leituðu mikið að.
2. Nikolaj Hansen
Kemur inn á í lok fyrri hálfleiks og skorar sigurmark leiksins. Var flottur í leiknum og er mjög drjúgur í stóru leikjunum og hann sýndi það í kvöld.
Atvikið
Sigurmark leiksins er það sem stendur upp úr en þá fékk Nikolaj Hansen einnig spark beint í andlitið og steinlá eftir það. Svo sannarlega verðskuldað mark sem gefur Víkingum forskot til þess að taka með sér til Ungverjalands.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar eru að fara á erfiðan útivöll í gjörólkíkar aðstæður. Grasvöllur, yfir 30 stiga hiti og yfir 10.000 öskrandi Ungverjar. Eins marks forskot hjálpar klárlega og Víkingar þurfa bara að spila jafn vel og í dag til þess að fara áfram í þessu einvígi.
Vondur dagur
Dómari leiksins fær þetta bara á sig og hann má bara díla við það. Frakkinn hafði einungis dæmt einn leik í forkeppni Meistaradeildarinnar fyrir þennan leik og var hann ekki nægilega góður í dag. VAR búnaðurinn var ekki nýttur við vítaspyrnu ákall þar sem sjónarhorn fannst ekki, sem er svo sem ekki honum að kenna, en dómarateymið var bara ekki upp á marga fiska og hann Romain Lissorgue aðaldómari tekur þetta á sig.
Dómarinn - 4
Fæst orð bera minnsta ábyrgð en ég æti skrifað ansi mikið um Frakkann ágæta sem dæmdi þennan leik. Kannaðist ekki við reglunýjungar, sleppti augljósu víti og lélegar ákvarðanir í gegnum leikinn.


