Fotbolti.net
@HilmarjokullHilmar Jökull Stefánsson
Hilmar Jökull Stefánsson
Fótbolti.net bikarinn
SÚN-völlurinn
KFA
KFA
3 - 2
Augnablik
Augnablik
Kifah Moussa Mourad (víti) 2'1 - 0Þór Sigurjónsson 60'2 - 02 - 168' Kormákur Pétur Ágústsson2 - 276' Finnur Breki FinnssonNenni Þór Guðmundsson 79'3 - 2
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: KFA áfram í bikarnum eftir hörkuskemmtilegan leik

Hvað réði úrslitum?

Þetta samspil sem Nenni og Jawed áttu í aðdraganda sigurmarksins var líklega það sem réði úrslitum. Svo mætti tala um færanýtingu heimamanna, sem óðu í færum í fyrri hálfleik og hefðu hæglega getað skorað fleiri. En gæðamunur liðanna sýndi sig í 3. marki KFA, klárlega.

Bestu leikmenn

1. Nenni Þór Guðmundsson (KFA)

Nenni var frábær í dag. Ógnaði ítrekað með hraða sínum og krafti og átti urmul af skotum, sendingum og var oft að leika bakverði Augnabliks grátt. Hann lagði upp annað mark KFA og skoraði síðan það sem reyndist sigurmark leiksins.

2. Kristján Lúðvík Möller (Augnablik)

Kantmaðurinn knái var mikið í boltanum í dag og því til vitnisburðar heyrði maður leikmenn Augnabliks kalla „Möller“ ansi oft í leiknum. Hann átti ótrúlega rispu í öðru marki Augnabliks og hefði átt að skora mark í fyrri hálfleik sem má lesa meira um hér að neðan.

Atvikið

Á 9. mínútu leiksins tekur AD2, hann Gabríel Gyðuson, fullkomlega löglegt mark af Augnabliki þegar Kristján Möller kemst í gegn og var aldrei nálægt því að vera rangstæður. Það hefði klárlega breytt gangi leiksins ef Augnablik hefði jafnað á þessu augnabliki.

Hvað þýða úrslitin?

Þau þýða einfaldlega það að KFA heldur áfram leik í Gatorade bikar Fótbolti.net og er komið í 8-liða úrslitin. Augnabliksmenn geta verið stoltir af frammistöðunni og þeir Oliver og Gabríel geta klárlega tekið eitthvað jákvætt út úr leiknum fyrir sína menn. Einnig má nefna það að KFA tengir þarna saman tvo sigra. Eitthvað sem liðið hefur átt erfitt með í sumar.

Vondur dagur

Eftir langan umhugsunarfrest ákvað undirritaður að brjóta eina af reglum fréttaritara Fótbolti.net og velja AD2, Gabríel Gyðuson í vondan dag. Það var enginn leikmaður sem átti eitthvað áberandi vondan dag en Gabríel tók fullkomlega löglegt mark af Augnablik í fyrri hálfleik og virtist hvorki vita út né suður hvar línan væri, hvorki í fyrri hálfleik né þeim síðari.

Dómarinn - 5

Sveinn Arnarsson, skattasérfræðingurinn frá Akureyri, var gjörsamlega frábær í leiknum. Hann hafði mikla stjórn á leiknum, lét hann flæða þegar það átti við og spjaldaði þegar það átti við, negldi vítadóminn í byrjun leiks og eftir að hafa ráðfært mig við ýmsa hlutlausa og hlutdræga þá virðist hann hafa neglt það að dæma ekki annað vítið á Augnablik seinna í leiknum. EN eins og kemur fram í vondur dagur þá var AD2 ekki að eiga sinn besta dag og AD1 tók nokkrar rangar ákvarðanir líka (sem gerist alltaf í leik hjá öllum dómurum) en þess vegna lækkar heildareinkuninn. Sveinn var flottur, Sváfnir allt í lagi og Gabríel átti vondan dag. Niðurstaða: 5 í einkunn og þeir rétt ná að falla ekki á prófinu saman.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.