Fotbolti.net
@fotboltinetSigurjón Árni Torfason
Fótbolti.net bikarinn
Grýluvöllur
Hamar
Hamar
1 - 2
Dalvík/Reynir
Dalvík/Reynir
0 - 145' Magnús Máni Sigursteinsson0 - 268' Elvar Máni GuðmundssonMáni Snær Benediktsson 90'1 - 2
Dómari: Guðmundur Halldórsson

SKÝRSLAN: Dalvík/Reynir áfram eftir blautan bikarslag á gervigrasinu

Hvað réði úrslitum?

Í raun réðu meiri gæði Dalvíkur/Reynis á síðasta þriðjungi vallarins úrslitum. Hamar voru hins vegar sprækir og komust í ágætar stöður, en áttu erfitt með að nýta færin sín og klára sóknirnar.

Bestu leikmenn

1. Einar Ari Ármannsson

Einar Ari átti mjög flottan leik í dag ,og varði nokkrum sinnum fáránlega vel og bjargaði 1-2 marki.

2. Elvar Máni Guðmundsson

Elvar var einnig mjög sprækur í dag, hljóp mikið og skoraði seinna mark Dalvíkur var mjög flottur í dag.

Atvikið

Ætla setja það á fyrsta mark Dalvíkur, þegar Magnús Máni skoraði og það breytti leiknum svoldið þar sem það slokknaði á Hamars mönnum, sem voru búnir að vera sterkari ef eitthvað er.

Hvað þýða úrslitin?

Þau þýða það einfaldlega að Dalvík/Reynir eru komnir áfram í 8-liða úrslit Fótbolta.net bikarsins.

Vondur dagur

Enginn einstakur leikmaður fær þetta. Hamar komust í nokkrar efnilegar stöður en skorti gæði á síðasta þriðjungi vallarins og náðu ekki að nýta færin sín. Það má þó hafa í huga að liðið spilar tveimur deildum neðar en Dalvík/Reynir og því kannski ekki hægt að gera miklu meiri kröfur.

Dómarinn - 7

Mér fannst Guðmundur dæma þennan leik bara fínt, stundum of flautuglaður en missti aldrei leikinn kom flott frá þessum leik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.