0. mín
Innbyrðis viðureignir
Þessi lið hafa aðeins mætt hvoru öðru átta sinnum, en í þeim viðureignum hafa Kormáks/Hvatarmenn sigrað 5, Kári sigrað 2 og liðin skilað jöfnu einu sinni.
Þessi jafnteflisleikur er mörgum minnisstæður og ekki fyrir góða ástæðu. Alls fóru 5 rauð spjöld á loft í þessum leik og þar af 4 fyrir Kormák/Hvöt. Hilmar Halldórsson, leikmaður Kára, var fyrir því atviki að vera bitinn í kálfann af mótherja og var sendur í stífkrampasprautu eftir leik.
En nóg um vampírur og rauð spjöld!
Stærsti sigur í þessum viðureignum var fyrir rúmum mánuði síðan á Blönduósvelli, en þar sigruðu heimamenn 4-1.
Stærsti sigur Kára var einnig í ar, en það var í Lengjubikarnum fræga þar sem þeir sigruðu 4-2.
Hins vegar hafa lið Kára og Hvatar mæst þrisvar. Hvöt sigraði tvo leiki og Kári einn, en þessir leikir gerðust allir fyrir 20 árum síðan. Merkilegt nokk er það í tvemur af þessum leikjum skoraði Dejan Djuric, pabbi Danijel Dejan Djuric, fyrir Hvöt!
0. mín
Tímabil Kára
Káramenn sitja sæti og stigi ofar en Kormákur/Hvöt með 17 stig eftir 11 leiki. Seinasti leikur þeirra var fyrir viku síðan gegn Haukum á Ásvöllum, en þar töpuðu Káramenn 1-4.
Markahæsti leikmaður Kára þetta tímabil hefur verið Matthías Daði, en hann hefur skorað 10 mörk í 11 leikjum þegar talið er í deild og Gatorade-bikarnum!
Fyrsti leikur Kára þetta árið í Gatorade-bikarnum var stórsigur heimamanna á Akranesi 5-1 gegn bitlausum Vængjum Júpíters.

0. mín
Tímabil Kormáks/Hvatar
Húnvetningarnir sitja í 5. sæti 2. deildar þetta árið, með 16 stig eftir 11 leiki. Seinasti leikur þeirra var 1-1 jafntefli gegn Fjölni í Grafarvoginum.
Án efa er afkastamesti leikmaður þeirra Pere Belmonte, hann er kominn með 5 mörk í bæði deild og Gatorade-bikarnum í 9 leikjum.
Fyrsti leikur þeirra í Gatorade-bikarnum þetta árið var gegn Víkingi Ó. á Blönduósvelli, en heimamenn sigruðu 3-2 í æsispennandi leik sem fór í framlengingu!

0. mín
Dómaramál
Dómari leiksins er Róbert Þór Guðmundsson, honum til aðstoðar eru Heimir Árni Erlendsson og Margeir Valur Sigurðsson.

0. mín
Heilir og sælir lesendur góðir og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Blönduósvelli, en þar munu Kormáks/Hvatarmenn etja kappi við Kára í 16-liða úrslitum Gatorade-bikarsins!




