Fotbolti.net
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Fótbolti.net bikarinn
Malbikstöðin að Varmá
Hvíti riddarinn
Hvíti riddarinn
0 - 2
Ýmir
Ýmir
0 - 137' Breki Ottósson0 - 279' Breki Ottósson
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Leik lokið!
Skýrsla og viðtöl á leiðinni, takk fyrir mig.
93. mín
Hvíti eru að reyna að skora sárabótamark en Ýmir er bara að bíða eftir því að dómarinn flautar af.
Ýmir
90. mín
Gult spjald

Björn Ingi Sigurðsson

89. mín
Leikmaður Hvíti kemst inn í teiginn, leikmapur Ýmis tekur hann niður. Hvíti vill víti en dómarinn dæmir ekki neitt.
88. mín
Guðbjörn kemur með svaka sendingu inn í teig Ýmis, en dómarinn dæmir rangstöðu. Ósammála því.
85. mín
Dauðafæri aftur
Björn Ingi kemst í gegn aftur 1v1 á móti markmanni en hann missir boltann klaufalega og Nóel tekur boltann.
84. mín
Dauðafæri!
Theodór sendir Andra í gegn, Theodór er í duaðafæri en skýtur framhjá markinu.
Ýmir
83. mín
InnBjörn Ingi Sigurðsson
ÚtSteingrímur Dagur Stefánsson
Ýmir
83. mín
InnJóhann Króknes Torfason
ÚtBreki Ottósson
82. mín
Steingrímur er tekinn niður í boxinu en dómarinn dæmir ekki neitt, gestirnir vilja víti.
81. mín
Dómarinn dæmir á Óðinn fyrir að hlaupa með boltann út af.
Ýmir
79. mín
MAAAARK!

Breki Ottósson

Langur bolti fram í áttina að Breka sem er staddur á hægri kantinum. Breki og Örnólfur eru að kljást við boltann, Nóel fer út úr markinu og Breki kemst framhjá honum. Breki skýtur svo í autt markið. Sá nú ekki alveg hver var með stoðsendinguna.
Ýmir
76. mín
InnTheodór Unnar Ragnarsson
ÚtÁsgeir Marteinsson
Ýmir
76. mín
InnAndri Már Harðarson
ÚtBaldvin Dagur Vigfússon
75. mín
Rangstaða á Óðinn.
73. mín
Langt innkast fyrir Hvíta, Björn Mikael nær að grípa boltann en leikmaður Ýmis fer í hann og Björn Mikael fer niður í jörðina.
70. mín
Dauðafæriii
Hvíti kemur með sending fram fyrir markið, boltinn rennir á Óðinn sem nær að pota í boltann en Björn Mikael ver! Skotið var að fara í markið og þetta er besta færi Hvíta hingað til.
69. mín
Guðbjörn tekur langt innkast sem er skallað burt af Ými.
67. mín
Leikmaður Ýmis lætur vaða langt langt frá, skotið ógnaði alls ekki.
65. mín
Davíð labbar á bekkinn, virðist vera góður.
64. mín
Davíð fer niður, virðist misstíga sig eða fengið krampa. Sá þetta ekki alveg.
63. mín
Hætta á ferð
Breki lætur vaða langt frá, boltinn curlar í átt að markinu. Nóel grípur boltann, missir hann svo en tekur hann svo aftur.
62. mín
Hvíti er að reyna að spila sig í gegnum Ými en vörnin stendur þétt og þeir ná að taka boltann af heimamönnum.
Hvíti riddarinn
60. mín
InnDaníel Búi Andrésson
ÚtHrafn Elísberg Hjartarson
58. mín
Davíð kemur með sendingu inn í teiginn en Björn grípur boltann.
58. mín
Annað horn hjá Hvíta sem Björn Mikael lemur burt.
57. mín
Davíð kemur með fyrirgjöf sem fer af varnarmanni og fyrir horn, hornið er ekki gott og er skallað burt.
55. mín
Hrafn kemur með fasta sendingu fram fyrir markið en Róbert Andri nær ekki að koma hausnum í sendinguna.
54. mín
Rólegar fyrstu 10 mínútur.
53. mín
Breki kemur með fyrirgjöf af hægri kantinum en heimamenn ná að koma boltanum burt.
48. mín
Sævar Eðvald kemst í gott færi en skotið er í hliðarnetið og framhjá.
47. mín
Davíð setur Óðinn í gegn en Björn Mikael nær svo að koma sér fyrir boltann áður en hann nær skotinu.
Hvíti riddarinn
46. mín
InnGuðbjörn Smári Birgisson
ÚtBenedikt Sturla Steingrímsson
Hvíti riddarinn
46. mín
InnAron Daði Ásbjörnsson
ÚtSölvi Geir Hjartarson
Hvíti riddarinn
46. mín
InnJúlíus Valdimar Guðjónsson
ÚtÓðinn Breki Þorvaldsson
46. mín
Seinni hálfleikur
Heimamenn byrja.
45. mín
Myndi segja að Ýmir ætti þetta skilið en það eru 45 mínútur eftir, sjáumst eftir korter.
44. mín
Ýmir að taka sinn tíma í innkastinu.
43. mín
Dauðafæri
Skyndisókn fyrir Ými og Breki sleppur í gegn en hann Hrafn nær honum og tæklar svo boltann af honum ef Hrafn hefði ekki náð boltanum hefði Breki líklega skorað.
42. mín
Algjör darraðadans í teig Hvíta, Ýmir tekur hornið stutt og boltinn skoppar og leikmenn eiga í erfiðleikum að koma honum burt, dómarinn endar svo að dæma brot á Ými.
41. mín
Aukaspyrna fyrir Ými á góðum stað, Ásgeir tekur skotið en það fer í varnarmann í veggnum og fyrir horn.
40. mín
Horn fyrir Ými, Nóel nær að lemja boltann burt en hann dettur svo á leikmann Ýmis fyrir utan teiginn sem skýtur en skotið fór rétt yfir markið.
Ýmir
37. mín
MAAAARK!

Breki Ottósson (stoðsending: Steinn Logi Gunnarsson)

Steinn Logi neglir honum upp í loftið og Breki tekur á móti honum á kantinum. Hann keyrir svo inn í teiginn og nær að sóla varnarmann Hvíta og skýtur svo beint í netið.
35. mín
Benedikt fær gott færi til þess að skjóta en skotið fer beint í varnarmann.
34. mín
Markvörður Hvíta missir boltann frá sér klaufalega en Ýmir nær ekki að refsa.
33. mín
Aukaspyrna fyrir Ými, sendingin kemur inn í boxið og Nóel grípur boltann. Arnar og Steinn ætla líka í boltann og taka nóel niður, brot á Ými.
32. mín
Ýmir kemst í skyndisókn, Ásgeir fær boltann en varnarmaður Hvíta hirðir hann af honum.
31. mín
Davíð kemur með fyrirgjöf en Björn mikael grípur hann.
31. mín
Færi
Davíð keyrir upp hægri kantinn og sendir á Óðinn sem lætur vaða, skotið fer í fótinn af varnarmanni og í innkast.
26. mín
Hætta
Baldvin kemst í gegnum nokkra varnarmenn þangað til að hann sendir á Steingrím, sem sendir á Ásgeir en hann missir svo boltann og fær dæmt brot á sig.
23. mín
Smá darraðadans við D boga við teig heimamanna en Hvíti nær að sparka boltanum burt. Baldvin er að hóta.
21. mín
Steingrímur og varnarmaður Hvíta eru í skallabaráttu og Steingrímur fer niður, ekkert á þetta segir dómarinn.
18. mín
Hætta á ferð
Breki er að komast í góða stöðu og kemur boltanum fyrir markið en vörnin hjá Hvíta nær að koma sér fyrir skotið og kemur boltanum burt.
18. mín
Hvíti er pressa Ými á meðan Ýmir er að senda á milli sín. En gestirnir ná að koma boltanum frá þeim.
16. mín
Dauðafæri
Róbert Andri situr Óðinn í gegn, 1v1 gegn markmanninum en hann er of lengi að hugsa og Björn hoppar á boltann og tekur hann.
12. mín
Ýmir er að komast í góða skotstöðu en leikmaðurinn missir boltann og leikmaður Hvíta sparkar boltanum burt.
10. mín
Ýmir kemst í skyndisókn, Ásgeir fær boltann rétt fyrir utan teiginn og lætur vaða, skotið fór rétt yfir slána.
10. mín
Skalli hjá Hvíta rétt framhjá eftir hornspyrnu.
9. mín
Maður tekur eftir því að bandið hjá fyrirliða Hvíta Riddarans passar ekki alveg á hann, sá þarf að skella sér í ræktina.
8. mín
Arnar Máni lætur vaða langt frá, en Nóel þarf ekki að gera mikið.
7. mín
Baldvin Dagur kemst upp vinstri kantinn, nær skotinu en Nóel ver skotið.
4. mín
Róleg byrjun, Hvíti Riddarinn er að halda meira í boltann hingað til.
1. mín
Hvíti Riddarinn spilar í svörtu og Ýmir í hvítu.
1. mín
Gestirnir byrja.
0. mín
0. mín
Dómaratríóið
Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson verður með flautuna, Nour Natan Ninir og Damian Pawlik verða með flöggin.
0. mín
Aðeins um liðin tvö
Hvíti Riddarinn eru í 9 sætí í 2. deildinni, 2 sigrar, 6 jafntefli og 3 töp. Síðast spiluðu þeir gegn Dalvík/Reyni sem endaði 3-3 á heimavelli. Í síðustu umferð .net bíkarsins spilaði Hvíti Riddarinn á móti Tindastóla á heimavelli og unnu 5-1.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Ýmir eru í 9. sæti í 3. deild. 3 sigrar, 3 jafntefli og 5 töp. Í síðasta leik liðsins töpuðu þeir gegn KV á heimavelli. Ýmir sigraði Álalfoss í síðustu umferð .net bikarsins 7-0 á heimavelli.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
0. mín
.net bikarinn heilsar
Heil og sæl kæru lesendur og verði velkomin í beina lýsingu frá leik Hvíta Riddaranum sem fær Ými í heimsókn. Þetta er 16 liða úrslitin og sá sem sigrar kemst í átta liða úrslit og nær úrslitum.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.